Innlent

Tveir hand­teknir eftir hús­leit í Laugar­dal og Kópa­vogi

Agnar Már Másson skrifar
Garðurinn hefur verið girtur af.
Garðurinn hefur verið girtur af. Vísir/Viktor

Lögreglan handtók tvo í gær í húsleitaraðgerðum við Austurbrún í Laugardal annars vegar og Kópavogi hins vegar. Alls eru fimm í haldi í tengslum við rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra á skipulagðri glæpastarfsemi.

Málið tegir anga sína alla leið til Raufarhafnar, þar sem lögreglan rannsakar nú skipulagða glæpastarfsemi og fíkniefnaframleiðslu.

Lögreglan á Norðurlandi eystra greinir frá í tilkynningu að hún hafi ráðist í tvenna húsleit í gær, annars vegar í Laugardal í Reykjavík og hins vegar í Kópavogi. Lögregla segir að tveir hafi verið handteknir í aðgerðum gærdagsins. 

Alls eru fimm manns nú í gæsluvarðhaldi og í dag verður lagt mat á hvort farið verði fram á gæsluvarðhald yfir þeim sjötta, að sögn lögreglu. Með þessu hefur lögregla framkvæmt húsleit í sex húsum í tengslum við málið. 

Fyrstu aðgerðir í málinu voru þann 18. júní síðastliðinn en þá var ráðist í húsleit á þremur stöðum, að sögn lögreglu. Þann dag var ráðist í húsleit á Aðalbraut 37 á Raufarhöfn og Þórólfsgötu 5 í Borgarnesi, auk annars húss á höfuðborgarsvæðinu staðsetning hvers liggur ekki fyrir.

Íbúðahúsnæðið liggur að Aðalbraut 37 en þar var áður leikskóli. Skjáskot/Ja.is

Síðan þá er búið að fara í húsleitir á þremur stöðum, þar með talin aðgerð gærdagsins við Austurbrún 21 í Laugardal, eins og fram kom í umfjöllun Vísis í gær.

Lögreglan hefur lítið viljað segja um málið. 

Rúður voru brotnar til að hægt væri að komast inn við Austurbrún 21.Visir/Viktor freyr

Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×