Innsýn í molnandi hjónaband: „Persónuleikinn þinn var ekki svona fyrir nokkrum árum“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 14. ágúst 2025 14:01 Kim Kardashian reynir að róa æstan Kanye West niður eftir að sá síðarnefndi hætti að taka geðlyfin sín. Myndefni úr nýrri heimildarmynd um Kanye West, sem var tekin upp yfir sex ára tímabil, sýnir hvernig molnaði undan hjónabandi hans við Kim Kardashian samhliða versnandi andlegri heilsu hans.
Ný stikla fyrir heimildarmyndina In Whose Name? sem birtist á miðvikudag. Leikstjóri myndarinnarNicolas Ballesteros hóf átján ára að fanga persónulegar stundir West og hefur á síðustu sex árum tekið upp þúsundir klukkustunda. Stiklan sem er mínútulöng hefst á West segja: „Ég hef ekki verið á lyfjunum mínum í fimm mánuði.“ Næst má heyra grátandi Kim segja: „Persónuleikinn þinn var ekki svona fyrir nokkrum árum.“ West greindist árið 2018 með geðhvarfasýki en sagði síðan fyrr á þessu ári að hann væri í raun einhverfur. Þar á eftir má sjá Kim reyna að róa niður reiðan Kanye sem liggur æstur í leðursófa. „Aldrei segja mér að ég muni vakna einn daginn og ekki eiga neitt!“ segir Kanye við Kim sem svarar: „Við getum talað um það seinna, en...“ „Það er ekkert en!“ gargar þá Kanye. Kim Kardashian og Kanye West voru gift í átta ár frá 2014 til 2022 og eiga saman fjögur börn: North, Saint, Chicago og Psalm. Eftir skilnaðinn hefur andað köldu milli þeirra. Frekar dauður en á lyfjum Heimildarmyndin sýnir einnig frá framboði West til forseta og sunnudagsmessu-tónleikum sem hann hélt vikulega árið 2019. Á einum þeirra má sjá hann brotna niður og lýsa því yfir að hann hafi skammast sín fyrir að gráta. „Ég myndi frekar vera dauður en á lyfjum. Annað hvort eyðileggja þau mig, eða ég eyðilegg þau,“ segir hann á einum tímapunkti. „Þau eru að drepa hæfni okkar til að hugsa út fyrir kassann!“ segir hann jafnframt. Stiklan endar svo á því að West segir: „Veistu hvað er það besta við að vera listamaður með geðhvarfasýki? Allt sem þú gerir og segir er listaverk.“ In Whose Name? verður frumsýnd vestanhafs 19. september næstkomandi í völdum kvikmyndahúsum og dettur vonandi inn á streymisveitur seinna á árinu fyrir okkur hin.
Bandaríkin Mál Kanye West Hollywood Tengdar fréttir „Ye mátti þola versnandi andlega heilsu vegna gjörða þinna“ Kanye West og Bianca Censori hyggjast lögsækja tannlækninn Thomas Connelly fyrir að hafa útvegað rapparanum „hættulegt“ magn hláturgass sem gerði hann háðan gasinu, leiddi til mikilla geðsveifla og olli honum „taugafræðilegum skaða“. 3. maí 2025 14:08 Ætlar í stríð við Kim leyfi hún North ekki að rappa á lagi með Diddy Kanye West gaf út lag með dóttur sinni North og Sean „Diddy“ Combs um helgina en rapp North á laginu virðist vera í óþökk Kim Kardashian, fyrrverandi eiginkonu West. Búið er að eyða laginu en fyrir útgáfuna sagðist West ætla í stríð við Kim ef hún kæmi í veg fyrir útgáfuna. 17. mars 2025 10:50 Segist vera nasisti sem elskar Hitler Kanye West hefur á síðustu klukkutímum sagst vera nasisti og elska Adolf Hitler. Hann segir gyðingahatur bull sem gyðingar bjuggu til og hann ætli aldrei aftur að biðjast afsökunar á ummælum sínum. 7. febrúar 2025 16:10 Mest lesið Matthías Már með krabbamein Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Lífið Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Lífið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Lífið Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lífið Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Lífið Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Fleiri fréttir Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Sjá meira
„Ye mátti þola versnandi andlega heilsu vegna gjörða þinna“ Kanye West og Bianca Censori hyggjast lögsækja tannlækninn Thomas Connelly fyrir að hafa útvegað rapparanum „hættulegt“ magn hláturgass sem gerði hann háðan gasinu, leiddi til mikilla geðsveifla og olli honum „taugafræðilegum skaða“. 3. maí 2025 14:08
Ætlar í stríð við Kim leyfi hún North ekki að rappa á lagi með Diddy Kanye West gaf út lag með dóttur sinni North og Sean „Diddy“ Combs um helgina en rapp North á laginu virðist vera í óþökk Kim Kardashian, fyrrverandi eiginkonu West. Búið er að eyða laginu en fyrir útgáfuna sagðist West ætla í stríð við Kim ef hún kæmi í veg fyrir útgáfuna. 17. mars 2025 10:50
Segist vera nasisti sem elskar Hitler Kanye West hefur á síðustu klukkutímum sagst vera nasisti og elska Adolf Hitler. Hann segir gyðingahatur bull sem gyðingar bjuggu til og hann ætli aldrei aftur að biðjast afsökunar á ummælum sínum. 7. febrúar 2025 16:10