Sopranos-stjarna látin Atli Ísleifsson skrifar 25. ágúst 2025 08:29 Jerry Adler fór með hlutverk Hesh Rabkin í Sopranos-þáttunum. AP Bandaríski leikarinn Jerry Adler, sem þekktastur er fyrir hlutverk sitt sem Herman „Hesh“ Rabkin í þáttunum The Sopranos, er látinn. Hann varð 96 ára.
Fjölskylda Adler staðfesti andlátið í gær segja hann hafa andast á lagardaginn. Í frétt BBC segir að Adler hafi lengi starfaði í leikhúsi, allt frá upphafi sjöunda áratugarins, bæði sem sviðsmaður og leikstjóri í leikhúsum á Broadway í New York. Hann vann þannig meðal annars með stórstjörnum a borð við Julie Andrews, Angela Lansbury og Richard Burton. Adler stýrði hinni upprunalegu uppsetningu á My Fair Lady sem skartaði einmitt Andrews í aðalhlutverki, sýningunni Coco með Katerine Hepburn árið 1969, Annie árið 1977 og Camelot með Richard Burton árið 1980. Þegar Adler hugðst hætta störfum í leikhúsi bauð vinur hans honum svo hlutverk sem leikari í myndinni The Public Eye. Hann átti svo síðar eftir að leika í myndum á borð við Manhattan Murder Mystery frá 1993 og Getting Away with Murder frá árinu 1996. Hann sló þó fyrst almennilega í gegn sem leikari þegar honum var boðið hlutverk Hesh Rabkin, ráðgjafa mafíósans Tony í túlkun James Gandolfini í þáttunum The Sopranos. Síðar átti hann svo líka eftir að fara með hlutverk í þáttunum The Good Wife og The Good Fight sem lögmaðurinn Howard Lyman og í þáttunum Northern Exposure og Mad About You. Þá birtist hann einnig í þáttum á borð við Curb Your Enthusiasm og The West Wing. Adler lætur eftir sig eiginkonuna Joan Laxman sem hann giftist árið 1994.
Andlát Bíó og sjónvarp Hollywood Bandaríkin Mest lesið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Britney ákærð fyrir ölvunarakstur Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Guðjón Friðriksson heiðursborgari Reykjavíkur Menning Stór brjóst eru stór Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Fleiri fréttir Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Patrick Muldoon er látinn Endurlífguðu Kilmer með gervigreind fyrir fornleifamynd „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Cruise tekur á loft í þriðja sinn Gaylord Focker deyr ekki drottni sínum Joy Harmon er látin Höfði í stóru hlutverki í æsispennandi stiklu Tæplega helmingur tilnefndra leikara til Eddunnar erlendur Leikarinn Michael Patrick látinn eftir baráttu við MND Ólétt af fyrsta barni ári eftir andlát fyrrverandi Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi Hugmyndir að hámhorfi um páskana Sjá meira