Jóhann tekur við af Gunnari hjá Landssambandi veiðifélaga Atli Ísleifsson skrifar 25. ágúst 2025 07:54 Jóhann Helgi Stefánsson nýbúinn að landa einum vænum. Stjórn Landssambands veiðifélaga hefur ráðið Jóhann Helga Stefánsson í starf framkvæmdastjóra. Hann tekur við starfinu af Gunnari Erni Petersen 1. september næstkomandi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Þar segir að Jóhann Helgi hafi frá unga aldri stundað og haft brennandi áhuga á stang- og skotveiði. „Hann var stjórnarmaður í Félagi ungra í stang- og skotveiði og hefur einnig tekið þátt í starfi NASF sem sjálfboðaliði. Hann þekkir því vel til ólíkra þátta veiðiheimsins. Jóhann Helgi er umhverfis- og auðlindafræðingur að mennt og hefur undanfarin ár starfað hjá Landi og skógi (áður Landgræðslan), þar sem hann hefur komið að fjölbreyttum verkefnum á sviði endurheimt vistkerfa, sjálfbærri landnýtingu og þátttöku almennings í vöktun vistkerfa. Þá hefur hann jafnframt birt fjölda greina í fjölmiðlum um málefni veiða, vernd vistkerfa og sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda. „Ég hlakka til að taka við stöðu framkvæmdastjóra Landssambands veiðifélaga á þessum umbrotatímum. Ég tek við góðu búi frá fráfarandi framkvæmdastjóra og núverandi stjórn. Framundan eru mörg stór og erfið mál, en ég trúi því að í sameiningu getum við fundið farsælar lausnir fyrir veiðifélög landsins. Veiði er rótgróin í íslenskri menningu og náttúruvitund Íslendinga – og LV hefur mikilvægu hlutverki að gegna í því að sameina ólíka aðila, verja hagsmuni félagsmanna og stuðla að ábyrgri nýtingu og vernd villtra fiskistofna.“ Stjórn LV þakkar Gunnari Erni Petersen fyrir vel unnin störf og býður Jóhann Helga Stefánsson hjartanlega velkominn til starfa,“ segir í tilkynningunni.
Vistaskipti Félagasamtök Stangveiði Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Sjö ára dómur Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira