Körfubolti

Með flest frá­köst og varin skot og bestu nýtinguna inni í teig á EM

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Tryggvi Snær Hlinason hefur spilað einstaklega vel á EM.
Tryggvi Snær Hlinason hefur spilað einstaklega vel á EM. vísir/hulda margrét

Ekki verður annað sagt en Tryggvi Snær Hlinason hafi spilað frábærlega með íslenska landsliðinu á EM í körfubolta. Hann er efstur í nokkrum tölfræðiþáttum á mótinu.

Í fyrstu fjórum leikjum Íslands á EM er Tryggvi með 16,3 stig, 12,0 fráköst, 2,0 stoðsendingar og 2,5 varin skot að meðaltali.

Enginn leikmaður á EM hefur tekið fleiri fráköst á mótinu en Tryggvi. Næstur er Svartfellingurinn Nikola Vucevic sem leikur með Chicago Bulls í NBA-deildinni með 11,8 fráköst að meðaltali í leik. Í 3. sæti á frákastalistanum er svo serbneska ofurstjarnan Nikola Jokic með 9,3 fráköst.

Tryggvi hefur einnig varið flest skot allra leikmanna á EM. Jafnir í 2.-3. sæti á þeim lista eru Portúgalinn Neemias Queta og Georgíumaðurinn Goga Bitadze með tvö varin skot að meðaltali í leik.

Tryggvi er sömuleiðis í efsta sæti á listanum yfir þá leikmenn sem hafa spilað flestar mínútur á EM. Hann hefur spilað 147 af þeim 160 mínútum sem hafa verið í boði í fyrstu fjórum leikjum Íslands og þær hefðu eflaust verið fleiri ef hann hefði ekki fengið sína fimmtu villu í 4. leikhluta gegn Slóveníu í gær.

Miðherjinn úr Bárðardalnum spilar 36,8 mínútur að meðaltali í leik en þar á eftir kemur Slóveninn Luka Doncic með 33,4 mínútur. Þeir Tryggvi mættust einmitt í gær þar sem Slóvenar höfðu betur, 79-87.

Tryggvi hefur nýtt 24 af 31 skoti sínu inni í teig á EM sem gerir 77,4 prósenta nýtingu. Enginn leikmaður á mótinu er með betri tveggja stiga nýtingu en hann. Næstur á eftir Tryggva kemur Jokic með 74,3 prósenta nýtingu.

Tryggvi er jafnframt eini leikmaður mótsins sem hefur náð tvennu í öllum fjórum leikjunum, það er að vera með að minnsta kosti tíu stig og tíu fráköst.

Aðeins fimm stjörnur úr NBA eru fyrir ofan Tryggva þegar litið er á listann yfir flest framlagsstig að meðaltali í leik á EM. Þetta eru Doncic, Giannis Antetokounmpo, Lauri Markkanen, Alperen Sengun og Jokic. Tryggvi er með 26 framlagsstig að meðaltali í leik á EM. 

Íslenska liðið á ekki lengur möguleika á að komast í sextán liða úrslit á EM. Það mætir Frakklandi í lokaleik sínum klukkan 12:00 á morgun.


Tengdar fréttir

Skýrsla Vals: Erfitt að vera litla liðið

Leik lokið. 87-79 fyrir Slóveníu niðurstaðan. Líkt og í byrjun leiks eru það stuðningsmenn Íslands sem standa og kalla á lið sitt á meðan minna fer fyrir öðrum. Dagurinn hófst á gæsahúð og endar á henni sömuleiðis.

„Auðvitað er ég svekktur“

„Fannst við aftur eiga góðan leik. Við fengum tækifæri í síðari hálfleik sem við nýttum ekki nægilega vel. Gegn góðu liði eins og Slóveníu þarf maður að nýta slík tækifæri til að halda sér inn í leiknum og gefa sér möguleika á að fara með sigur af hólmi.“

„Verðum að þekkja okkar gildi“

„Væntingastjórnunin var sú að sækja sigur. Við sáum tækifæri til að vinna þennan leik,“ sagði Ægir Þór Steinarsson eftir tap Íslands gegn Slóveníu á Evrópumóti karla í körfubolta. Ægir Þór var að leika sinn 100. A-landsleik.

„Var loksins ég sjálfur“

Martin Hermannsson átti sinn besta leik á Evrópumótinu í körfubolta þegar Ísland tapaði fyrir Slóveníu, 79-87, í dag. Martin var svekktur í leikslok en segir að íslenska liðið sýni leik eftir leik að það eigi heima á stærsta sviðinu.

„Enginn í heiminum að gera þetta nema hann“

„Stoltur af okkur, það eru bara pínulitir hlutir sem vantar upp á“ sagði Jón Axel Guðmundsson eftir 79-87 tap Íslands gegn Slóveníu á EM í körfubolta. Hann fékk það erfiða verkefni að dekka Luka Doncic í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×