Munu leggja fram vísindalegar sannanir fyrir því að Brigitte sé líffræðilega kona Hólmfríður Gísladóttir skrifar 18. september 2025 07:28 Staðhæfingar um að Brigitte sé trans kona eru aðeins hluti af stærri samsæriskenningu Owens um fjölskyldu forsetafrúarinnar. epa/Andy Rain Emmanuel Macron Frakklandsforseti og eiginkona hans Brigitte Macron munu leggja fram myndir og vísindaleg sönnunargögn fyrir dómstól í Bandaríkjunum til að sanna að Brigitte sé líffræðilega kona.
Fá þessu greindi lögmaður þeirra í samtali við hlaðvarpsþáttinn Fame Under Fire á BBC. Forsetahjónin hafa höfðað mál á hendur áhrifavaldinum og hlaðvarpsstjórnandanum Candace Owens, sem heldur því staðfastlega fram að Brigitte sé trans kona og hefur framleitt heila þáttaröð um málið. Lögmenn Owens hafa farið fram á að málinu verði vísað frá dómi. Lögmaður Macron-hjónanna, Tom Clare, segir framferði Owens hafa haft veruleg áhrif á Brigitte og haft truflandi áhrif á forsetann. Það hafi ekki hamlað störfum hans en það sé óneitanlega þreytandi þegar ráðist sé á fjölskyldu manns. Clare sagði von á vísindalegum vitnisburði fyrir dómstólnum. Hann vildi ekki útlista hvað nákvæmlega yrði lagt fram en sagði að forsetahjónin væru reiðubúin til að sanna það bæði „almennt og sérstaklega“ að staðhæfingar Owens væru ósannar. Það væri afar erfitt að neyðast til að grípa til þessara aðgerða en Brigitte væri viljug til þess að opna sig til þess að leiða málið til lykta. Owens hefur fyrir sitt leyti sagst vera tilbúin til að leggja orðspor sitt að veði, svo sannfærð sé hún um að Brigitte sé líffræðilega karl. Samkvæmt lögum í Bandaríkjunum munu forsetahjónin bæði þurfa að sýna fram á það að Owens hafi rangt fyrir sér og að hún hafi vitað að staðhæfingar hennar væru rangar.
Frakkland Bandaríkin Samfélagsmiðlar Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Fleiri fréttir Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Sjá meira