Íslenski hönnuðurinn sem Dorrit dýrkar Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 23. september 2025 11:33 Sól Hansdóttir og Dorrit Moussaieff glæsilegar í hönnun Sólar á tískuviku í London. Instagram Fatahönnuðurinn og listakonan Sól Hansdóttir er stödd á tískuviku í London þar sem hún sýndi nýjustu línuna sína við góðar viðtökur. Vogue blaðakonan Mosha Lundström Halbert lét sig ekki vanta og dró fyrrum forsetafrúna og tískudrottninguna Dorrit Moussaieff með sér á sýninguna.
Umtalað útgáfuhóf Dorrit var heldur betur hrifin af hönnun Sólar og var ekki lengi að skella sér í kjól frá Sól og birta myndir af því á Instagram. Blaðamaður tók púlsinn á Sól og fékk að heyra nánar frá. „Við vorum sumsé að halda útgáfuhóf fyrir nýjustu línuna okkar sem er vorlínan 2026. Stemningin var alveg frábær, við vorum með ótrúlega flotta uppsetningu á „lookbook“ myndum sem við höfðum prentað út á um 150 A4 blöð. Fyrirsæturnar voru eins og eins konar kvenskörungar sem tóku yfir rýmið. Svo var nóg af víni, vinum og súkkulaðinu Ferraro Rocher, sem verður alltaf að vera,“ segir Sól kímin og bætir við að viðbrögðin hafi verið gríðarlega góð. View this post on Instagram A post shared by Sól Hansdóttir (@solhansdottir) Dorrit sýndi fötunum strax áhuga. „Hún keypti ekki kjólinn sem hún mátaði því það var ekki hægt að kaupa það, þar sem um var að ræða sýnieintak. En það er kannski líka bara passlegt fyrir fyrrverandi forsetafrú að láta sérsauma á sig,“ segir Sól brosandi. Brunaði beint af flugvellinum á sýninguna Stöllurnar voru að hittast í fyrsta sinn þarna. „En við alveg smullum saman og mig hafði lengi langað að hitta hana og klæða hana. Hún er með svo æðislega orku sem ég met mikils og svo er hún glæsileg. Hún alveg smell passaði til dæmis í fötin beint af tískupallinum.“ Sól og Dorrit glæsilegar í Sól Hansdóttir design.Instagram Mosha er vinkona Sólar og hefur löngum sýnt sköpun hennar mikinn áhuga. „Hún skrifar fyrir Vogue og fleiri flott tímarit og þekkir Dorrit. Hún ákvað að bjóða henni með, Dorrit var akkúrat nýlent í London og kom beint af flugvellinum á sýninguna.“ Það er svo ótal margt spennandi á döfinni hjá Sól. „Við erum að byrja sölu á haustlínunni okkar 2025, svo erum við með pop up í Berlín eftir þrjár vikur til að fagna samstarfi Sól Hansdóttur við þýska skófyrirtækið Trippen en við hönnuðum saman skópar fyrir haustlínuna okkar. Svo eru nokkur önnur spennandi verkefni sem ég get ekki sagt frá núna,“ segir Sól glöð í bragði að lokum. Sól Hansdóttir var viðmælandi í menningarþáttunum Kúnst haustið 2023. Viðtalið má sjá hér:
Íslendingar erlendis Tíska og hönnun Bretland Ólafur Ragnar Grímsson Mest lesið Sleppti tökunum á ástarsorgarplötu aldarinnar Tónlist Gugga lét Gauta heyra það fyrir hæð sína Lífið „Aldraðir bræður“ leigðu sér hjólastóla með ökumönnum Ferðalög Stjörnulífið: Aníta Briem og Inga Tinna þakklátar ástinni Lífið Endurkoma flatjarðarkenningarinnar: „Ef þau ljúga um þetta …“ Lífið Minnist náins kollega og elskhuga Bíó og sjónvarp „Ókei, mér er ætlað annað hlutverk núna“ Lífið Aron Mola og Birgitta Líf í glitrandi stemningu Lífið Trúði varla eigin augum þegar hún sá fyrir og eftir myndirnar Lífið samstarf „Hann er góð blanda af Labrador og German Shepherd“ Lífið Fleiri fréttir Léti aldrei sjá sig í ökklasokkum Gelluorkan í hæstu hæðum hjá Ginu Heitir pabbar í hlaupaklúbbi Skilnaðar-toppur í París Fann ástina í örlagaríkum kjól Íslensk fyrirsæta slær í gegn á tískupöllum Mílanó Kláraði lögfræði meðan hún sat fyrir hjá Dior Heitasta handatískan í dag Íslenski hönnuðurinn sem Dorrit dýrkar Með sálfræðigráðu á leið í skartgripahönnun í Róm Heklaði á sig forsýningarkjólinn Sjóðheit stemning á rauða dreglinum Ástin sigrar í nýrri herferð gegn ofbeldi Í þrjátíu ára gömlum fötum af mömmu Tískan við þingsetningu: Þjóðlegur þriðjudagur Rokkar pils sem bol og snýr flíkum öfugt Fögnuðu Þjóðbúningadeginum með stæl Fáklædd og flott á dreglinum „Hugsa fallega til stelpunnar sem ég var þá“ Þjóðbúningurinn aðal skvísuflíkin í dag Aðalfyrirsæta í herferð 66°Norður 99 ára gömul Búið að krýna nýjan arftaka Vogue-veldisins Sjá meira