Engin hjartaaðgerð en smá magnyl skaðar ekki Valur Páll Eiríksson skrifar 10. október 2025 08:01 Arnar segir ekki þörf á því að umbylta leik liðsins, enda gengið vel. Andrew Milligan/PA Images via Getty Images Ekki má búast við miklum breytingum á íslenska landsliðinu sem mætir því úkraínska í undankeppni HM 2026 á Laugardalsvelli í dag, ef marka má landsliðsþjálfarann. Fáum dylst mikilvægi leiksins upp á framhaldið.
Ísland og Úkraína mætast klukkan 18:45 í kvöld. Leikurinn er sýndur beint á Sýn Sport í opinni dagskrá og hefst útsending klukkan 18:00. Ísland hóf undankeppnina vel, með 5-0 sigri á Aserum hér heima og fylgdi því eftir með naumu 2-1 tapi fyrir Frökkum þar sem strákarnir hefðu að líkindum náð í stig ef ekki hefði verið fyrir inngrip myndbandsdómara á ögurstundu. Úkraína missteig sig gegn Aserbaídsjan á meðan strákarnir voru í París og er Ísland því í lykilstöðu, með þrjú stig í öðru sæti, á meðan Úkraína og Aserar eru með eitt hvort þar fyrir neðan. „Það er gríðarlega mikilvægt upp á að halda skriðþunganum gangandi. Við þurftum að vinna mikið fyrir honum og í íþróttum getur hann farið á núll einni með slakri frammistöðu, segir Arnar Gunnlaugsson í samtali við íþróttadeild. „Með sigri erum við komnir í góða stöðu, jafntefli er enginn heimsendir og tap, þá þarf að endurskipuleggja planið. Hugarfarið er að fara út og vinna leikinn. Við þurfum að vera virkilega agaðir í okkar leik og ekki láta tilfinningar ráða för og fara út í vitleysu. Ef við gerum taktísk mistök eru þeir með gæði til að refsa okkur. Það má ekki einn maður fara út að ætla að vinna þennan leik. Það er taktíkin og strúktúrinn sem kemur þessu yfir línuna fyrir okkur,“ segir Arnar. Munar um Zinchenko Oleksandr Zinchenko, leikmaður Nottingham Forest, sem lék áður með Arsenal og Manchester City, er þekktasta stærðin innan úkraínska liðsins. Hann verður ekki með í kvöld vegna meiðsla. Zinchenko ræðir hér málin við Albert Guðmundsson en sá fyrrnefndi mun þurfa að horfa á leikinn úr sófanum í kvöld.Andrzej Iwanczuk/NurPhoto via Getty Images „Það hefur áhrif. Hann er mjög áhugaverður bakvörður sem er í raun að stýra spilinu fyrir þá, eins og hann gerði hjá Arsenal og City á sínum tíma. Auðvitað breytir það leikstílnum aðeins. Hann er stór póstur í þeirra liði, taktíkin mun breytast aðeins hjá þeim. En þetta er hörkulið og góða leikmenn og góðan þjálfara,“ segir Arnar sem segir okkar menn mæta öllu rólegri til leiks en andstæðingurinn. „Ég var hrifinn af þeim á móti Frökkunum en gegn Aserum tókst þeim ekki að skora. Þeir koma hingað semi stressaðir og skelkaðir, eðlilega. Því þá vantar úrslit, alveg klárlega, þannig að það er meðbyr sem við vonandi náum að nýta okkur.“ Óþarfi að breyta því sem virkar Íslenska liðið hóf undankeppnina vel og því ekki von á miklum breytingum á liðsvalinu. En má búast við einhverju óvæntu af hálfu Arnars? „Það kemur alltaf eitthvað skemmtilegt upp úr hattinum. En mér finnst eins og strúktúrinn og tenging á milli leikmanna sé að verða betri. Það er engin ástæða til að fara í einhverja almenna hjartaaðgerð en það má mögulega gefa eina og eina magnyl öðru hverju,“ segir Arnar og bætir við: „Mögulega verða einhver öðruvísi pressukerfi og svoleiðis sem er líka bara hollt fyrir strákana. Þetta er eins og að vera krakki í leikfangabúð að vinna með þessum elítuleikmönnum því þeir eru svo fljótir og meðtækilegir á að hlusta í bullið í mér og meðtaka það sem er sagt við þá. Það verða einhverjar litlar smáatriðisbreytingar.“ Viðtalið má sjá í heild í spilaranum að neðan. Klippa: Arnar ræðir leikinn við Úkraínu
Landslið karla í fótbolta HM 2026 í fótbolta Fótbolti Tengdar fréttir „Klúðraði þessum frægu vítum en er ógeðslega sterkur“ Úkraínski framherjinn Artem Dovbyk átti eftirminnilega slakan leik gegn Hákoni Arnari Haraldssyni og félögum í síðustu viku, en gæti reynst Íslandi erfiður á morgun. 9. október 2025 13:37 „Getum eyðilagt drauma Úkraínu á morgun“ Arnar Gunnlaugsson segir að íslenska karlalandsliðið í fótbolta komi sér í vænlega stöðu í D-riðli undankeppni HM 2026 með sigri á Úkraínu annað kvöld. 9. október 2025 13:23 „Ekki alltaf hægt að tala vel um mann“ Aron Einar Gunnarsson segir slæmt umtal undanfarið ekki bíta og telur það jafnvel jákvætt að gagnrýnisraddir heyrist þegar hann er valinn í landsliðshóp. 9. október 2025 09:32 „Staða mín er svolítið erfið“ Þórir Jóhann Helgason segist hungraður í að fá að spila mínútur, bæði með íslenska landsliðinu og liði sínu Lecce á Ítalíu. Framundan eru tveir risaleikir hjá Íslandi, gegn Úkraínu á föstudag og Frakklandi á mánudag, í undankeppni HM í fótbolta. 9. október 2025 07:03 Ísak lofar að hlaupa mest: „Mjög gaman að sjá fólkið bakka okkur upp“ „Það er mjög gaman að sjá að fólkið er að bakka okkur upp, og að það sé uppselt á báða leikina. Það er mjög spennandi,“ segir Ísak Bergmann Jóhannesson. Hann ætlar að hlaupa manna mest á Laugardalsvelli á föstudaginn, í leiknum mikilvæga við Úkraínu í undankeppni HM í fótbolta. 8. október 2025 22:02 Mest lesið Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Enski boltinn Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Fótbolti Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka Körfubolti „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Fótbolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Fótbolti Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Fótbolti Grindavík mokar inn verðlaunum Körfubolti Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt Fótbolti Fleiri fréttir Elías og félagar flugu áfram Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fyrstir til að fara alla leið án þess að vinna leik Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Goretzka mættur til Villa UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Zirkzee til Fiorentina: Samkeppnin eykst enn frekar hjá Alberti Felur samkynhneigðina og fer til félags í Sádi-Arabíu Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Sjáðu Breiðablik fara á kostum og valta yfir andstæðing sinn í Evrópu Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Sjá meira
„Klúðraði þessum frægu vítum en er ógeðslega sterkur“ Úkraínski framherjinn Artem Dovbyk átti eftirminnilega slakan leik gegn Hákoni Arnari Haraldssyni og félögum í síðustu viku, en gæti reynst Íslandi erfiður á morgun. 9. október 2025 13:37
„Getum eyðilagt drauma Úkraínu á morgun“ Arnar Gunnlaugsson segir að íslenska karlalandsliðið í fótbolta komi sér í vænlega stöðu í D-riðli undankeppni HM 2026 með sigri á Úkraínu annað kvöld. 9. október 2025 13:23
„Ekki alltaf hægt að tala vel um mann“ Aron Einar Gunnarsson segir slæmt umtal undanfarið ekki bíta og telur það jafnvel jákvætt að gagnrýnisraddir heyrist þegar hann er valinn í landsliðshóp. 9. október 2025 09:32
„Staða mín er svolítið erfið“ Þórir Jóhann Helgason segist hungraður í að fá að spila mínútur, bæði með íslenska landsliðinu og liði sínu Lecce á Ítalíu. Framundan eru tveir risaleikir hjá Íslandi, gegn Úkraínu á föstudag og Frakklandi á mánudag, í undankeppni HM í fótbolta. 9. október 2025 07:03
Ísak lofar að hlaupa mest: „Mjög gaman að sjá fólkið bakka okkur upp“ „Það er mjög gaman að sjá að fólkið er að bakka okkur upp, og að það sé uppselt á báða leikina. Það er mjög spennandi,“ segir Ísak Bergmann Jóhannesson. Hann ætlar að hlaupa manna mest á Laugardalsvelli á föstudaginn, í leiknum mikilvæga við Úkraínu í undankeppni HM í fótbolta. 8. október 2025 22:02