Fótbolti

Mörk Ís­lands og Úkraínu: Sjáðu Mikael Egil jafna metin

Sindri Sverrisson skrifar
Úkraínumenn komust yfir eftir þrettán mínútna leik í kvöld.
Úkraínumenn komust yfir eftir þrettán mínútna leik í kvöld. Sýn Sport

Mikael Egill Ellertsson sá um að jafna metin í 1-1 í hinum mikilvæga slag Íslands og Úkraínu í undankeppni HM í fótbolta á Laugardalsvelli í kvöld. Mörk leiksins má sjá á Vísi.

Mikael skoraði jöfnunarmarkið á 35. mínútu eftir frábæran sprett, úr ansi þröngu færi. Markið má sjá hér að neðan.

Ísland lenti 1-0 undir þegar Ruslan Malinovskiy skoraði eftir 13 mínútna leik. Everton-bakvörðurinn Vitaliy Mykolenko átti stærstan heiðurinn að markinu en hann skeiðaði framhjá Guðlaugi Victori Pálssyni fram vinstri kantinn og gaf svo út í teiginn þar sem Malinovskiy skoraði úr dauðafæri.

Fyrsta mark kvöldsins má sjá hér að neðan en leikurinn er í opinni dagskrá á Sýn Sport.

Hægt er að fylgjast með öllu sem gerist í leiknum í beinni textalýsingu Vísis með því að smella á greinina hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×