Fótbolti

Bein út­sending: Þor­steinn til­kynnir hópinn fyrir leikina gegn Norður-Írum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Þorsteinn Halldórsson svarar spurningum um nýjasta landsliðshóp sinn.
Þorsteinn Halldórsson svarar spurningum um nýjasta landsliðshóp sinn. vísir/vilhelm

Vísir er með beina útsendingu frá blaðamannafundi KSÍ þar sem hópur kvennalandsliðsins í fótbolta fyrir næstu leiki þess verður tilkynntur.

Fundurinn hefst klukkan 13:15 og verður sýndur beint á Vísi. Útsendinguna má sjá í spilara sem birtist hér fyrir neðan tíu mínútum fyrir fundinn.

Ísland mætir Norður-Írlandi í tveimur leikjum, 24. og 28. október, en þeir skera úr um það hvort íslenska liðið haldi sér í A-deild Þjóðadeildarinnar.

Þetta eru jafnframt fyrstu leikir íslenska liðsins síðan á EM í Sviss í sumar. Þar tapaði Ísland öllum þremur leikjum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×