Innlent

Fjögur hundruð án net­tengingar í Norðlingaholti

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Slitið hefur áhrif á fjögur hundruð nettengingar.
Slitið hefur áhrif á fjögur hundruð nettengingar. Vísir/Vilhelm

Á fimmta tímanum urðu strengslit á stofnstreng Mílu á milli Breiðholts og Hveragerðis. Það hefur áhrif á nettengingar í Norðlingaholti.

Í fréttatilkynningu frá Mílu segir að slitið hefur áhrif á um fjögur hundruð nettengingar í Norðlingaholti. Framkvæmdasvið fór af stað um hálf sex að leita að slitinu sem fannst korteri seinna við Arnarnesveg. 

Ekki liggur fyrir hversu langan tíma viðgerðin kann að taka en grafa þarf að slitinu til að komast að því.

Í tilkynningu á heimasíðu Mílu segir að strengslitið hafi einnig áhrif á farsímasenda í Vatnsenda og í Bláfjöllum. 

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×