Dauðsföll í Gaza-stríðinu og Mogginn Egill Þórir Einarsson skrifar 31. október 2025 15:01 Dauðsföll í stríðinu á Gaza sem staðið hefur í 2 ár eru, skv. upplýsingum heilbrigðisyfirvalda á staðnum (Gaza Health Ministry), komin yfir 70 þús. manns. Vitað er að fjöldi fólks er grafið í rústum og talið er að heildartala látinna sé yfir 100 þús. Fjöldi slasaðra er einnig yfir 100 þús. manns og hvergi í heiminum eru fleiri sem misst hafa útlim miðað við fólksfjölda alls um 5 þúsund manns. Um 80 % þeirra sem látist hafa eru almennir borgarar og þar af er um 60 % konur, börn og aldraðir. Skv. þessari heimild er fjöldi skráðra drepinna í stríðinu á Gaza 68.234 þ. 22. október 2025 og þar af eru 18.500 börn eða 27,1 %. Fjöldi drepinna á Vesturbakkanum á sama tíma er 1002 manns, þar af 212 börn eða 21,1 %. Tímaritið Lancet telur dauðsföll í opinberum tölum vanmetin um 41 % þar sem eingöngu eru taldir þeir sem látast í hernaðaraðgerðum. Ekki er meðtalinn fjöldi þeirra sem látast af sárum sínum, þeir sem látast af sjúkdómum vegna skorts á heilbrigðisþjónustu og þeir sem látast vegna hungurs eða annarra afleiðinga stríðsins. Þúsundir deyja af sjúkdómum og konur vegna barnsfæðinga. Ef önnur dauðsföll eru tekin með í reikninginn áætlar tímaritið að í maí 2025 hafi dauðsföll, sem tengjast stríðinu, verið um 93 þús. sem samsvarar um 4-5 % af íbúafjölda Gaza. Þótt tölum um dauðsföll beri ekki alveg saman er varleg áætlun að heildarfjöldinn sé á bilinu 70-100 þús. Meðal þeirra dauðsfalla sem átt hafa sér stað á Gaza eru: 217 fréttamenn 120 háskólakennarar 224 hjálparstarfsmenn (þ.á.m. starfsmenn UNRWA) Skv. ísraelskum heimildum féllu 1195 Ísraelsmegin í árásum Hamas þ. 7. október 2023 og þar af voru 36 börn eða 1,8 % og til viðbótar hafa 788 látist í stríðsátökunum, aðallega hermenn, og er heildartalan þeim megin 1.983 manns. Tölfræðilegir útreikningar sýna hlutföllin Palestínumenn/Ísraelar: Heildarfjöldi látinna í stríðinu: 35-faldur munur Heildarfjöldi látinna almennra borgara: 67-faldur munur Heildarfjöldi látinna barna: 520-faldur munur Fréttamenn og hjálparstarfsmenn hafa eingöngu látist Palestínu megin Á meðfylgjandi súluriti er sundurliðun dauðsfalla fyrir Gazabúa og íbúa Vesturbakkans annars vegar og Ísraela hins vegar. Fram kemur fjöldi látinna barna, almennings og heildarfjöldi látinna. Dauðsföll hjá Ísrael örlítið brot af því sem er hjá Palestínu, sem er í takt við fyrri átök þar sem dauðsföll hjá Palestínu eru 10-30 föld m.v. Ísrael. Tölurnar tala sínu máli um mat á mannslífum þar sem Ísraelar telja sig hafa orðið fyrir miklu mannfalli þ. 7. október en það er vart mælanlegt á súluritinu. Sama má segja um samanburð á þessum aðilum vegna fangelsana. Þar er eina viðmiðið þeir 251 gíslar sem Hamas tóku þ. 7. október 2023 en fangar Ísraela skipta þúsundum og þar á meðal er fjöldi barna sem Ísrael hefur fangelsað án dóms og líkja má við gíslatöku. Einnig er athyglisvert að sjá mannfall sem orðið hefur á Vesturbakkanum meðan á stríðinu í Gaza hefur staðið þótt ekkert stríð sé þar í gangi. Þótt það sé um helmingur dauðsfalla hjá Ísrael á sama tíma hefur það nánast ekkert ratað í fréttir. Á næsta súluriti er svo yfirlit yfir dauðsföll eftir mánuðum þau 2 ár sem stríðið hefur staðið. Fram kemur að heildarfjöldi drepinna hefur sveiflast eftir tímabilum og var á bilinu 5-8 þúsund manns fyrstu mánuðina og hélst nokkuð stöðugur í 1-2000 manns og jókst síðan í síðasta hluta stríðsins í 2-4000 en hefur aldrei verið undir 1000 manns á mánuði, jafnvel þau tímabil þar sem vopnahlé átti að vera í gildi. Hvað ályktanir má draga af þessum tölum? Tölurnar tala sínu máli og sýna ójöfnuð milli stríðandi fylkinga af óþekktri stærð. Því er hæpið að kalla þessi átök „stríð“ og betur hæfa orð eins og „aftökur“ eða „þjóðarmorð“ eins og búið er að skilgreina þau. Því kemur á óvart hvernig eina starfandi dagblað landsins fjallar um stríðið á Gaza. Í forystugrein Morgunblaðisins mánudaginn 27. október segir: „Loks verður að nefna að þó að gyðingaandúð sé líklega ekki jafn útbreidd nú í Evrópu og var fyrir tæpri öld virðist stundum eima eftir af henni, jafnvel hér á landi. Þetta birtist iðulega í viðhorfum gagnvart Ísrael og því skilningsleysi sem gyðingar þar mæta þegar þeir verjast ítrekuðum og hatursfullum árásum sem staðið hafa yfir linnulítið frá því að ríkið var stofnað, skömmu eftir helförina. Vissulega beita þeir stundum hörku en þá verður að hafa í huga að þeir eru að eiga við vel vopnaða hryðjuverkamenn sem hafa notið ríkulegs stuðnings og beita almenningi miskunnarlaust sér til varnar, en Ísraelsmenn reyna í þessum átökum að hlífa almenningi. Þess vegna er líka yfirgengilegt þegar menn leyfa sér að líkja baráttu Ísraela eftir fjöldamorð hryðjuverkaárásar Hamas fyrir tveimur árum við helförina, þar sem milljónir voru myrtar með skipulegum hætti og þar sem tilgangurinn var sá að útrýma miklum fjölda fólks“. Er andúð á framferði Ísraelsmanna í Palestínu, þar sem tugir þúsunda almennra borgara eru myrtir undir því yfirskini að verið sé að ráða niðurlögum Hamas, gyðingaandúð ? Þar sem 60 % allra látinna eru börn, konur og aldraðir og 70 % látinna er drepinn á heimilum sínum. Þar sem fjöldi þeirra sem drepinn er er 35-faldur þeirra sem falla hinum megin víglínunnar. Sú harka sem þeir telja sig beita gegn hryðjuverkamönnum felst í drápi á konum börnum og öldruðum og að þeir hlífi almenningi er skopstæling í besta falli. Þar sem linnulausar loftárásir dynja á heimilum fólks með tilviljunarkenndu skotmarki, þótt í opinberum yfirlýsingum séu Ísraelsmenn að „verjast“. Búið er að hefna svo rækilega fyrir atburðina 7. október að þegar hafa Ísraelar drepið 500-falt fleiri börn en þar létust. Í Morgunblaðinu er gagnrýnt að atburðunum á Gaza sé líkt við helförina en lýsingin sem á eftir fer er einmitt það sem flestir, sem vilja sjá, upplifa á Gaza. Á fjölmiðill sem beitir fyrir sig lygum og ómerkilegheitum af þessu tagi sér uppreisnarvon? Höfundur er verkfræðingur og áhugamaður um mannréttindi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun