Orri Steinn lengra frá því að ná þessum leikjum en þeim í síðasta glugga Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. nóvember 2025 13:33 Orri Steinn Óskarsson hefur glímt við meiðsli allt þetta tímabil. Vísir/Hulda Margrét Orri Steinn Óskarsson, fyrirliði íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, getur ekki tekið þátt í næsta verkefni landsliðsins og Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari var spurður út í stöðuna á Orra á blaðamannafundi í dag. „
Það eru alltaf tveir til þrír meiddir í hverjum einasta glugga. Orri er því miður enn og aftur frá,“ sagði Arnar Gunnlaugsson á fundinum í dag. Orri hefur ekki verið með liðinu í síðustu verkefnum vegna meiðsla. „Hans sjötti leikur í röð sem hann missir af. Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessa stráka enda skemmtilegt verkefni fram undan,“ sagði Arnar. „Okkur hefur gengið ágætlega hingað til að manna þessi skörð en auðvitað söknum við hans mikið,“ sagði Arnar en var Orri nálægt því að geta tekið þátt í þessum leikjum? „Nei, því miður. Bara eiginlega lengra frá því heldur en síðast. Hann fékk bara ‚setback', að ég held viku eftir að síðasta glugga lauk,“ sagði Arnar „Án þess að vera að fábúlera eitthvað um hans meiðsli þá myndi ég halda seinni hluta desember og janúar,“ sagði Arnar um mögulega endurkomu Orra í lið Real Sociedad. „Gulrótin fyrir hann er klárlega að við náum þessum umspilsleikjum í mars og hann verði hundrað prósent klár í það,“ sagði Arnar en til þess að þarf íslenska liðið að tryggja sér annað sætið í riðlinum í komandi leikjum.
Landslið karla í fótbolta HM 2026 í fótbolta Mest lesið Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Enski boltinn Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Fótbolti Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka Körfubolti „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Fótbolti UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Fótbolti Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Fótbolti Grindavík mokar inn verðlaunum Körfubolti Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt Fótbolti Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Handbolti Fleiri fréttir Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Barcelona - Athletic | Fyrsti leikur Rodri fyrir Börsunga Borac - Víkingur | Verða að snúa taflinu við á erfiðum útivelli Fyrstir til að fara alla leið án þess að vinna leik Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Goretzka mættur til Villa UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Zirkzee til Fiorentina: Samkeppnin eykst enn frekar hjá Alberti Felur samkynhneigðina og fer til félags í Sádi-Arabíu Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Sjáðu Breiðablik fara á kostum og valta yfir andstæðing sinn í Evrópu Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjá meira