Skjálftum fækkar og kvikan hægir á sér Agnar Már Másson skrifar 11. nóvember 2025 15:42 Enn ríkir talsverð óvissa um hvenær næstu eldsumbrot gætu skollið á. Mikil spenna er í jarðskorpunni á Reykjanesskaga vegna kvikusöfnunar undir Sundhnúksgígaröðinni. Vísir/Vilhelm Aflögun undir Svartsengi er orðin hægari en áður. Á sama tíma hefur verulega dregið úr skjálftavirkni í Krýsuvík undanfarnar vikur. Enn ríkir óvissa um hvenær næstu eldsumbrot gætu orðið. Hættumat helst að óbreyttu eins fram að 25. nóvember.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands. Þar má sjá uppfært hættumatskort en þar eru engar breytingar gerðar. Aflögunarmælingar sýna að bæði land haldi áfram að rísa og að kvika haldi áfram að safnast undir Svartsengi. Aftur á móti hefur dregið úr innstreymi kviku inn í hólfið undir Svartsengi, segir í tilkynningu Veðurstofunnar. Hættumatskort hefur verið uppfært og helst óbreytt til 25. nóvember. Veðurstofan fylgist áfram grannt með þróuninni og uppfærir upplýsingar ef breytingar verða. Veðurstofa Íslands Út frá fyrri eldsumbrotum á Sundhnúksgígaröðinni aukast líkur á nýju kvikuhlaupi þegar sambærilegt magn kviku hefur safnast fyrir undir Svartsengi og hljóp út í síðasta gosi. Magn kviku sem runnið hefur úr Svartsengi í eldsumbrotunum frá því í mars 2024 hefur verið breytilegt, á bilinu 12–31 milljón rúmmetrar en samkvæmt líkanreikningum hafa nú um 15 milljónir rúmmetra af kviku safnast undir Svartsengi frá síðasta eldgosi í júlí. Því er enn talsverð óvissa um hvenær næsti atburður verður, skrifar Veðurstofan. Þar sem innflæðið fer minnkandi hafi tímaramminn á mögulegri tímasetningu næsta atburðar þó lengst. Hættumatskort hefur verið uppfært og helst óbreytt til 25. nóvember. Veðurstofan fylgist áfram grannt með þróuninni og uppfærir upplýsingar ef breytingar verða. Veðurstofa Íslands Jarðskjálftar við Grindavík og á Sundhnúksgígaröðinni eru fáir og litlir, flesta daga mælast aðeins fáeinir smáskjálftar sem eru um eða rétt yfir 1 að stærð. Aflögunarmælingar sýna að landsigið sem hófst í Krýsuvík í sumar hafi hægt mjög á sér og að aflögun sé nú lítil sem engin á svæðinu. Jarðskjálftar í Krýsuvík mælast enn nokkrir á dag, en virkni hefur dregist verulega saman. Heildarfjöldi skjálfta hefur farið úr 250 niður í 100 til 150 á viku. Þetta er í fyrsta sinn frá því í sumar sem skjálftamynstrið sýnir samfellda minnkun. Gosstöðvarnar eins og þær birtust í vefmyndavél staðsettri á Þorbirni að morgni 20. október, 2025. Ljósin í Svartsengi sjást vinstra megin í myndinni.Veðurstofa Íslands
Eldgos á Reykjanesskaga Grindavík Eldgos og jarðhræringar Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Fleiri fréttir Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Sjá meira