Stórkostleg og mögnuð stöð Lára Zulima Ómarsdóttir skrifar 17. nóvember 2025 23:41 NFS minnst Fyrir tuttugu árum var brotið blað í íslenskri fjölmiðlasögu þegar sjónvarpsfréttastöðin NFS fór í loftið. Sjónvarpsstöðin sendi eingöngu út fréttir og fréttatengt efni. Fyrsti fréttatími dagsins fór í loftið klukkan sjö á morgnana og sá síðasti klukkan ellefu á kvöldin. Fréttir voru sagðar í sjónvarpi á heila og hálfa tímanum allan daginn en þess á milli voru fréttatengdir þættir á dagskrá auk ítarlegra hádegisfrétta og kvöldfréttatíma. Þá voru þættir á borð við Ísland í bítið, Fréttavaktin fyrir hádegi, Hrafnaþing, Miklabraut, Fréttavakt eftir hádegi og Ísland í dag með fasta viðveru sem og þættir á borð við Markaðinn, Íþróttir, ítarlegar veðurfréttir, Hádegisviðtalið, Leiðarar dagblaða og Silfur Egils, að ógleymdum fréttaskýringaþættinum Kompás sem þarna leit fyrst dagsins ljós. Þeir sem komu að stofnuninni sóttu fjölmargar stjörnur úr heimi blaðamennskunnar til að gegna störfum á nýju stöðinni. Róbert Marshall var fenginn til að stýra fleyginu og með honum voru blaðamenn með mikla reynslu eins og Sigmundur Ernir Rúnarsson sem var fréttastjóri, Þór Jónsson og Þórir Guðmundsson sem fór fyrir erlendum fréttum. Fréttir fréttastofu Stöðvar 2 færðust undir NFS og hugmyndin var sú að reynsluboltarnir á Stöð 2 fengju meiri tíma til að fara í dýptina í kvöldfréttatímanum en að sérstök fréttaveita sem skipuð var teymi fólks með litla reynslu myndi sinna fréttum líðandi stundar og var Heimir Már Pétursson fenginn til að ritstýra því teymi. Fjaraði hratt undan Mörgum þótti hugmyndin góð til að byrja með en fljótlega fór að bera á því að áhorfendum fannst ekki sem það væru næg umræðuefni til að halda úti svona stöð. Þá kom fljótt í ljós að fréttatímar á heila og hálfa tímanum voru helst til mikið fyrir sjónvarp og stundum rataði í fréttirnar eitthvað sem varla teldist til frétta. Sum viðtölin í fréttatengdu þáttunum þóttu of langdregin enda kom fyrir að umræðuefnið væri þess eðlis að lítið meira var hægt að segja. Eftir því sem leið var hæðst æ meir að dagskrá NFS. Áhorfið náði aldrei flugi enda var erfitt að ná stöðinni, dreifikerfið komst aldrei í samt lag og smám saman fjaraði undan. Svo fór að lokum að síðasta útsending NFS var föstudaginn 22. september 2006. Stöðin lifði því ekki árið af og margoft síðan hefur verið gert grín að þessari stöð og þessari mögnuðu tilraun. Nýjungar sem birtust fyrst á NFS En skilaði NFS einhverju til samfélagsins? Já, því þarna varð til stórkostleg reynsla og þekking. Í fyrsta skipti fór til dæmis í loftið fréttaskýringaþáttur sem byggði á alvöru rannsóknarblaðamennsku, Kompás. Þar var beitt óhefðbundum leiðum við að koma upp um spillingu, barnaníð, undirheima og fíkniefnavanda svo fátt eitt sé nefnt, leiðum eins og að taka upp efni með falinni myndavél eða með því að ganga á eftir viðmælendum sem vildu ekki tala. Á NFS voru líka endalausar beinar útsendingar frá hinum og þessum viðburðum, til dæmis frá Hinsegin dögum og Menningarnótt, sem hafði ekki verið gert áður og langflesta daga voru beinar útsendingar oft á dag sem hafði heldur ekki verið vaninn áður. Þá var í fyrsta skipti í íslenskri sjónvarpssögu farið að taka viðtöl við fréttamenn sem þekktu mál inn og út og fá þá til að fara betur yfir stór fréttamál. Á NFS sást líka í fyrsta skipti skemmtileg veðurkort, ólík þeim sem áður höfðu sést, og krakkaveður sem var alveg nýtt fyrirbrigði. Já, og á NFS fóru fréttamenn út og tóku upp sjónvarpsviðtöl einir og klipptu og kláruðu sjálfir, eitthvað sem margir fréttamenn kunna og gera í dag. Að ógleymdri fréttaveitunni á visir.is sem með NFS fékk heldur betur upplyftingu. Í fyrsta skipti sáum við myndskeið og klippur á visir.is og gátum hlustað og eða horft á fréttir á vef í beinni útsendingu. Þannig að þótt ekki hafi tekist að reka NFS í lengri tíma en þetta þá braut hún blað í íslenskri fréttamiðlun. Hún var full af orku, hugmyndum og fólki sem var óhrætt við að prófa sig áfram og læra af reynslunni. Fólki sem lagði líf sitt og sál í að gera fréttir áhugaverðar og aðgengilegar fólki, almenningi, okkur. Þess vegna segi ég til hamingju með 20 ára afmæli NFS - og þið öll sem komuð að þessari stórkostlegu og mögnuðu stöð. Höfundur er fyrrverandi „tökubarn“ (fréttamaður) á NFS. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Fjölmiðlar Mest lesið Þessir píkubörðu menn Eva Hauksdóttir Skoðun Er virkilega hvergi pláss fyrir einhverfan forritara? Elísabet Guðrúnar Jónsdóttir Skoðun Ísland að grotna niður í fjöldaferðamennsku Eggert Sigurbergsson Skoðun Draumurinn um jafna foreldraábyrgð sem varð að martröð þolenda ofbeldis í nánum samböndum Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir,Kolbrún Dögg Arnardóttir Skoðun Gervigreindin brotlendir: Notendum fækkar, áhugi minnkar, ávinningur enginn, traustið núll Brynjólfur Þorvarðsson Skoðun Hvernig eigum við að mæta gervigreind í skólanum? Geir Finnsson Skoðun Hver vill eldast ? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Getulausar getraunir Daði Laxdal Gautason Skoðun Af hverju er ekki hægt að framfylgja ákvörðunum Útlendingastofnunar? Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir Skoðun Má (ég) banna börnum að nota móðurmál í skólanum? Donata Honkowicz Bukowska,Fríða Bjarney Jónsdóttir,Hermína Gunnþórsdóttir,Renata Emilsson Pesková Skoðun Skoðun Skoðun Þegar Guð breytist í ljósmóður – og þegar kvöldmáltíðin breytist í annað en borð Drottins Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Reiði og bjartsýni á COP30 Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Heldur málþófið áfram? Bolli Héðinsson skrifar Skoðun Gervigreindin brotlendir: Notendum fækkar, áhugi minnkar, ávinningur enginn, traustið núll Brynjólfur Þorvarðsson skrifar Skoðun Þessir píkubörðu menn Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Tolladeilur og hagsmunavörn í alþjóðaviðskiptum Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Betra námsumhverfi fyrir börn í Reykjavík Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Á sjötugsaldri inn í nýja iðnbyltingu: Ferðalagið mitt og tækifæri Íslands í gervigreind Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ísland að grotna niður í fjöldaferðamennsku Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Er virkilega hvergi pláss fyrir einhverfan forritara? Elísabet Guðrúnar Jónsdóttir skrifar Skoðun Fjárfesting til framtíðar - Fjárfestum í börnum Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Kæra foreldri, verður barnið þitt af verulegum árs- og ævitekjum ? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Nóvember er tími netsvikara Gústaf Steingrímsson skrifar Skoðun Hvernig eigum við að mæta gervigreind í skólanum? Geir Finnsson skrifar Skoðun Valkvæð Sýn Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Draumurinn um jafna foreldraábyrgð sem varð að martröð þolenda ofbeldis í nánum samböndum Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir,Kolbrún Dögg Arnardóttir skrifar Skoðun Virkjanir í byggð – er farið að lögum? Gerður Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver vill eldast ? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Frá stressi í sjálfstraust: Skrefin sem skipta máli á prófatíma Elín A. Eyfjörð Ármannsdóttir skrifar Skoðun Þögnin, skömmin og kerfið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Af hverju er ekki hægt að framfylgja ákvörðunum Útlendingastofnunar? Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Logndagur eins og þessi – hugleiðing um vindorkuna Einar Sveinbjörnsson skrifar Skoðun Er hægt að sigra frjálsan vilja? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Það þarf bara rétta fólkið Helga Þórisdóttir skrifar Skoðun Keflavíkurlausnin: Innflytjendadómstóll gæti sparað okkur milljarða Ómar R. Valdimarsson skrifar Skoðun Má (ég) banna börnum að nota móðurmál í skólanum? Donata Honkowicz Bukowska,Fríða Bjarney Jónsdóttir,Hermína Gunnþórsdóttir,Renata Emilsson Pesková skrifar Skoðun Hver er uppruni íslam? Finnur Thorlacius Eiríksson skrifar Skoðun Hvað þýðir „að vera nóg“ Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Nýjar lóðir í betri og bjartari borg Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Tími kominn til að hugsa um landið allt Ingibjörg Isaksen skrifar Sjá meira
Draumurinn um jafna foreldraábyrgð sem varð að martröð þolenda ofbeldis í nánum samböndum Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir,Kolbrún Dögg Arnardóttir Skoðun
Gervigreindin brotlendir: Notendum fækkar, áhugi minnkar, ávinningur enginn, traustið núll Brynjólfur Þorvarðsson Skoðun
Af hverju er ekki hægt að framfylgja ákvörðunum Útlendingastofnunar? Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir Skoðun
Má (ég) banna börnum að nota móðurmál í skólanum? Donata Honkowicz Bukowska,Fríða Bjarney Jónsdóttir,Hermína Gunnþórsdóttir,Renata Emilsson Pesková Skoðun
Skoðun Þegar Guð breytist í ljósmóður – og þegar kvöldmáltíðin breytist í annað en borð Drottins Hilmar Kristinsson skrifar
Skoðun Gervigreindin brotlendir: Notendum fækkar, áhugi minnkar, ávinningur enginn, traustið núll Brynjólfur Þorvarðsson skrifar
Skoðun Á sjötugsaldri inn í nýja iðnbyltingu: Ferðalagið mitt og tækifæri Íslands í gervigreind Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Kæra foreldri, verður barnið þitt af verulegum árs- og ævitekjum ? Jón Pétur Zimsen skrifar
Skoðun Draumurinn um jafna foreldraábyrgð sem varð að martröð þolenda ofbeldis í nánum samböndum Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir,Kolbrún Dögg Arnardóttir skrifar
Skoðun Frá stressi í sjálfstraust: Skrefin sem skipta máli á prófatíma Elín A. Eyfjörð Ármannsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju er ekki hægt að framfylgja ákvörðunum Útlendingastofnunar? Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir skrifar
Skoðun Keflavíkurlausnin: Innflytjendadómstóll gæti sparað okkur milljarða Ómar R. Valdimarsson skrifar
Skoðun Má (ég) banna börnum að nota móðurmál í skólanum? Donata Honkowicz Bukowska,Fríða Bjarney Jónsdóttir,Hermína Gunnþórsdóttir,Renata Emilsson Pesková skrifar
Draumurinn um jafna foreldraábyrgð sem varð að martröð þolenda ofbeldis í nánum samböndum Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir,Kolbrún Dögg Arnardóttir Skoðun
Gervigreindin brotlendir: Notendum fækkar, áhugi minnkar, ávinningur enginn, traustið núll Brynjólfur Þorvarðsson Skoðun
Af hverju er ekki hægt að framfylgja ákvörðunum Útlendingastofnunar? Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir Skoðun
Má (ég) banna börnum að nota móðurmál í skólanum? Donata Honkowicz Bukowska,Fríða Bjarney Jónsdóttir,Hermína Gunnþórsdóttir,Renata Emilsson Pesková Skoðun