Innlent

Heiðar búinn að stofna Dreka um nýja olíu­leit

Kristján Már Unnarsson skrifar
Heiðar Guðjónsson, þáverandi stjórnarformaður Eykons, við olíuleitarskipið sem hélt á Drekasvæðið frá Reyðarfirði haustið 2015 á vegum CNOOC-hópsins.
Heiðar Guðjónsson, þáverandi stjórnarformaður Eykons, við olíuleitarskipið sem hélt á Drekasvæðið frá Reyðarfirði haustið 2015 á vegum CNOOC-hópsins. Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.

Nýtt félag, Dreki Kolvetni, hefur verið stofnað um olíuleit og fer Heiðar Guðjónsson fjárfestir fyrir félaginu. Hann var áður stjórnarformaður Eykons Energy, sem fyrir áratug var helsta íslenska félagið í olíuleit á Drekasvæðinu.

Í fréttum Sýnar var rifjað upp þegar íslensk stjórnvöld úthlutuðu fyrstu olíuleitarleyfunum í Ráðherrabústaðnum árið 2013 í tíð ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur en meðal viðstaddra var olíumálaráðherra Noregs. 

Drekasvæðið er norðaustur af Íslandi á lögsögumörkum Íslands og Noregs. Vegna Jan Mayen-samnings Íslendinga og Norðmanna eiga þjóðirnar gagnkvæman nýtingarrétt á hluta svæðisins.

Guðni Jóhannesson orkumálastjóri afhenti fyrstu olíuleitarleyfin í Ráðherrabústaðnum í janúar 2013 að viðstöddum Steingrími J. Sigfússyni ativnnuvegaráðherra og Ola Borten Moe, olíumálaráðherra Noregs.Vísir

Koma rannsóknarskips til Reyðarfjarðar haustið 2015 sýndi að sérleyfishafar voru farnir að leggja milljarða í olíuleitina. Íslenska félagið Eykon, sem Heiðar Guðjónsson fór fyrir, stóð fyrir leiðangrinum ásamt samstarfsaðilum sínum, kínverska ríkisolíufélaginu CNOOC og norska ríkisolíufélaginu Petoro.

Tíu mánuðum síðar, sumarið 2016, birtist annað olíuleitarskip á ytri höfninni í Reykjavík, einnig á leið á Drekasvæðið til bergmálsmælinga. Það var á vegum sérleyfishóps undir forystu kandadíska félagsins Ithaca. Alls voru þrír fyrirtækjahópar þá með leyfi frá íslenskum stjórnvöldum til olíuleitar.

Rannsóknarskipið Harrier Explorer var það síðasta sem leitaði olíu á Drekasvæðinu sumarið 2016. Hér er skipið á ytri höfninni í Reykjavík áður en lagt var í leiðangurinn.Arnar Halldórsson

Það þótti til marks um jákvæðar niðurstöður rannsókna að síðla árs 2017 veitti norska Stórþingið ríkisolíufélaginu Petoro fjárheimildir svo unnt væri að senda borskip á Drekasvæðið. Þá lá fyrir áætlun um að bora þrjár holur.

Það kom því mjög á óvart þegar hinir erlendu samstarfsaðilar Eykons tilkynntu í ársbyrjun 2018 að þeir væru hættir við. Þeir gáfu þá skýringu að þeir teldu líkur á að finna arðbæra olíulind á Drekasvæðinu of litlar til að réttlæta frekari olíuleit.

Tilkynningin í Lögbrtingarblaðinu um stofnun Dreka. Stofnendur eru félögin Ursus ehf. og Refskegg ehf. Heiðar Guðjónsson er einn skráður stjórnarmaður og prókúruhafi. Í varastjórn er skráður Haukur Óskarsson.grafík/Heiðar Aðalbjörnsson

En Heiðar Guðjónsson er ekki búinn að gefast upp. Í Lögbirtingarblaðinu í fyrradag birtist tilkynning um að hann hefði stofnað félagið Dreka Kolvetni ehf. Tilgangur félagsins væri olíuleit og -vinnsla og tengd starfsemi.

Heiðar kvaðst í dag ekki vilja koma í viðtal vegna nýja félagsins. Í viðtali við Vísi fyrir þremur mánuðum sagði hann að olíuvinnsla á Drekasvæðinu væri aftur komin á borðið. Kvaðst hann bjartsýnn á að fá sterk alþjóðleg fyrirtæki í lið með sér til að sækja um vinnslu- og leitarleyfi og boðaði frekari tíðindi í vetur.

Hér má sjá frétt Sýnar:


Tengdar fréttir

Stofnar félag um olíuleit

Heiðar Guðjónsson fjárfestir og fyrrverandi forstjóri Sýnar hefur stofnað olíuleitarfélagið Dreka Kolvetni ehf. Greint er frá stofnun félagsins í Lögbirtingablaðinu í dag.

Olíu­leit á teikni­borðinu og býst við tíðindum í vetur

Heiðar Guðjónsson segir aðkomu alþjóðlegra fyrirtækja að olíuvinnslu á Drekasvæðinu á borðinu og segir að menn séu byrjaðir að skoða málið. Hann fagnar sjónarmiðum umhverfis-, orku- og loftslagsmálaráðherra, sem sagðist í viðtali á dögunum ekki sjá ástæðu til að banna olíuleit á svæðinu.

Vill að hagkvæmni olíuleitar á Drekasvæðinu verði metin

Bæjarráð Fjarðabyggðar beinir því til stjórnvalda að meta að nýju hagkvæmni olíuleitar á Drekasvæðinu í ljósi þess að orkuskipti ganga hægar en gert var ráð fyrir. Þetta segir í bókun sem samþykkt var á bæjarráðsfundi í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×