Auglýstu vörur á verði sem ekki stóð neytendum til boða Atli Ísleifsson skrifar 3. desember 2025 11:30 Í svörum fyrirtækisins segir að auglýsingarnar hafi verið teknar úr birtingu á meðan á meðferð málsins stóð. Google Neytendastofa hefur slegið á putta verslunarinnar Á. Óskarssonar og Co í Mosfellsbæ eftir að hún auglýsti vörur á samfélagsmiðlum á verði sem ekki stóð neytendum til boða og sömuleiðis lægsta verð vöruflokks þar sem birt var mynd af talsvert dýrari vöru innan vöruflokksins.
Neytendastofa birti í morgun ákvörðun sína í málinu þar sem segir að stofnunin hafi talið að framsetning auglýsinganna hafi verið villandi og kynni að vekja þau hughrif hjá neytendum að hægt sé að fá myndbirta vöru á lægra verði en raunin væri. Hefur Neytendastofa bannað Á. Óskarssyni og Co. að viðhafa slíka viðskiptahætti. Í ákvörðuninni segir að á meðan á meðferð málsins stóð hafi auglýsingar Á. Óskarssonar verið teknar úr birtingu, en í svörum fyrirtækisins segir að auglýsingarnar hafi verið unnar af þriðja aðila. Á. Óskarsson og Co sérhæfir sig í sölu á vörum og búnaði fyrir íþróttahús, sundlaugar, skóla og leikskóla. Í ákvörðuninni segir að körfuboltaspjald og vöruflokkurinn jógadýnur hafi verið auglýst á lægra verði en neytendum hafi staðið til boða. Þá hafi vöruflokkarnir fótboltar, körfuboltar, frisbígolf og padel verið auglýstir með þeim hætti að birt hafi verið mynd af vöru innan auglýsts vöruflokks og fyrir neðan hana hafi komið fram heiti vöruflokksins og lægsta verð vöruflokksins sem birt hafi verið sem „verð frá“. Við nánari skoðun Neytendastofu kom í ljós að þær vörur sem myndbirtar voru í auglýsingunum voru umtalsvert dýrari en auglýst lægsta verð vöruflokksins.
Neytendur Úrskurðar- og kærunefndir Mosfellsbær Auglýsinga- og markaðsmál Mest lesið Hagkerfið allt í hættu Viðskipti innlent Boðar ódýrara súkkulaði í sumar vegna hruns á kakóverði Neytendur Pepsi víkur fyrir Coca-Cola í vélum Icelandair Neytendur 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Viðskipti innlent Sönnuðu ekki fullyrðingar um lækningamátt og fá háa sekt Neytendur Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Viðskipti innlent Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Viðskipti erlent Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Viðskipti erlent Mun leiða Fab Lab Reykjavík Viðskipti innlent Í hvað eru peningarnir þínir að fara? Samstarf Fleiri fréttir Sönnuðu ekki fullyrðingar um lækningamátt og fá háa sekt Pepsi víkur fyrir Coca-Cola í vélum Icelandair Boðar ódýrara súkkulaði í sumar vegna hruns á kakóverði Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Ein og hálf milljón í sekt vegna villandi auglýsinga Bílstólarnir gagnlausir ef þeir eru vitlaust festir Á að fá endurgreidd gler eftir gallaða sjónmælingu Engin svör að fá sem skýra „rán um hábjartan dag“ Fjölga verslunum í Danaveldinu Innkalla ungbarnakex vegna aðskotahluta Aðskotahlutur í lifrarpylsu: „Mál sem við tökum mjög alvarlega“ Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Sjá meira