Erlent

Vaktin: Maduro hand­tekinn eftir á­rás á Venesúela

Agnar Már Másson og Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifa
Nicolás Madúro, forseti Venesúela, og eiginkona hans Cilia Flores, voru handtekin og flutt úr landi þegar Bandaríkin gerðu árás á Venesúela í skjóli nætur.
Nicolás Madúro, forseti Venesúela, og eiginkona hans Cilia Flores, voru handtekin og flutt úr landi þegar Bandaríkin gerðu árás á Venesúela í skjóli nætur. AP

Donald Trump Bandaríkjaforseti fyrirskipaði í nótt loftárás á Venesúela þar sem Nicolás Maduro var tekinn höndum ásamt eiginkonu hans og þau flutt til New York þar sem þau verða að líkindum dregin fyrir dómstóla. Hjónin hafa verið ákærð af bandarískum yfirvöldum fyrir fíkniefnahryðjuverk og kókaíninnflutning.

Íbúar höfuðborgarinnar Karakas í Venesúela vöknuðu upp við sprengingar skömmu fyrir klukkan 2 að staðartíma í morgun (kl. 6 að íslenskum tíma). Herflugvélum var flogið yfir borgina og reykur sást rísa upp úr herstöðvum, þar á meðal bækistöðum flughersins í Tiega Fierta og herstöðinni La Carlota. 

Fjöldi látinna og særðra liggur ekki fyrir.

Veistu meira? Ertu mögulega í Karakas? Þú getur sent okkur fréttaskot hér.


Trump staðfesti í morgun að Maduro hefði verið handtekinn ásamt eiginkonu sinni og þau flutt úr landi. Venesúelski forsetinn hafði skrifað í yfirlýsingu að árásin væri „grafalvarlega hernarðaraðgerð“.

Sjá meira: Fréttir af stöðunni í Venesúela

Pam Bondi, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, skrifar á X að Maduro hafi verið ákærður í New York ríki fyrir fíkniefnahryðjuverk, kókaíninnflutning og vopnahald.

„Þetta var snilldaraðgerð,“ sagði Donald Trump við New York Times í dag. Bandaríkin hafa á síðustu mánuðum ráðist á 35 venesúelska báta sem bandarísk yfirvöld höfðu sagt flytja inn eiturlyf til Bandaríkjanna. Bandaríkjaher er talinn hafa drepið um hundrað manns í árásum á báta síðustu vikur.

Trump vildi ekki tjá sig um hvort hann hefði fengið heimild frá Bandaríkjaþingi fyrir árásinni.

Klukkan 16 heldur Trump blaðamannafund í Mar-a-Lago.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×