Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. janúar 2026 10:11 Serbneski knattspyrnuþjálfarinn Aleksandar Linta er mættur aftur til Íslands. ibvsport.is/Hafliði Breiðfjörð Þjálfaraleit Eyjamanna er á enda en serbneski knattspyrnuþjálfarinn Aleksandar Linta hefur skrifað undir þriggja ára samning við knattspyrnudeild ÍBV og stýrir Eyjaliðinu í Bestu deild karla í sumar.
Eyjamenn staðfesta þjálfararáðninguna á miðlum sínum í dag. Þorlákur Árnason framlengdi við ÍBV síðasta haust en hætti síðan óvænt með liðið þegar einn leikmaður hans, fyrirliðinn Alex Freyr Hilmarsson, var ráðinn yfirmaður hans sem nýr framkvæmdastjóri knattspyrnudeildarinnar. Þjálfaraleit Eyjamanna hefur staðið yfir í nokkra mánuði en þeir hafa nú samið við gamlan Íslandsvin sem lék lengi hér á landi og hóf þjálfaraferil sinn líka á Íslandi. Linta, sem er fimmtugur, á langan leikmannaferil á Íslandi þar sem hann lék í öllum fjórum deildum landsins á sínum tíma sem leikmaður frá árinu 1997 til 2013. Flesta leikina lék hann í 1. deild en þá einnig þrjú tímabil í efstu deild með ÍA og Þór Akureyri. Fyrsta reynsla Linta af Íslandi var þegar hann gekk til liðs við Íslandsmeistara Skagamanna sumarið 1997 en þjálfari ÍA var þá landi hans Ivan Golac. Linta hóf þjálfaraferil sinn á Grundarfirði árið 2012 en hann var þjálfari þar í tvö ár. Hann var aðstoðarþjálfari hjá slóvenska félaginu NK Olimpija Ljubljana og einnig aðalþjálfari þar í stuttan tíma 2018 þar sem Olimpija komst örugglega áfram í undankeppni Evrópudeildarinnar. Leið Linta lá síðan til Kasakstan þar sem hann var aðstoðarþjálfari hjá fimmföldum landsmeisturum FC Irtysh Pavlodar, eftir það fékk hann starf sem aðalþjálfari hjá FK Radnicki 1923 en þar var hann frá 2020 til 2021. Árið 2021 tók hann við FK Vozdovac en nú yfirgefur hann starf í unglingaliðum hjá Rauðu stjörnunni til að taka við ÍBV.
Besta deild karla ÍBV Mest lesið Ísland - Króatía | Brons í boði Handbolti Dreymdi medalíu og fær óskiljanlega emoji kalla frá pabba sínum Handbolti „Verður nú varla verra. Eða jú, kannski“ Handbolti Gísli valinn í úrvalslið EM Handbolti Veikindi í króatíska hópnum og markvörðurinn sat heima Handbolti Sér í gegnum Dag: „Hann er bara að segja þetta til að spila með Íslendinga“ Handbolti Myndaveisla: Íslendingar klárir í lokabardagann á EM Handbolti Man. Utd - Fulham | Heldur draumur Carricks áfram? Enski boltinn „Bæði lið eru á felgunni“ Handbolti Bláir í rauðu hafi: „Eins og við værum boðflennur í einkapartýi“ Handbolti Fleiri fréttir Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Sjá meira