Handbolti

Skýrsla Vals: Haukur í horni

Valur Páll Eiríksson skrifar
Haukur Þrastarson mætti á stóra sviðið og hefði mátt hneigja sig eftir sýninguna.
Haukur Þrastarson mætti á stóra sviðið og hefði mátt hneigja sig eftir sýninguna. EPA/Cornelius Poppe NORWAY OUT

Átta marka sigur á Póllandi á EM í kvöld var síst of stór. Tveir vendipunktar og haukar í horni okkar skiluðu öðrum geggjuðum sigri í röð.

Það var smá slaki í byrjun. Janus Daði náði ekki að fylgja eftir frábærum leik og tveir aðrir Selfyssingar, Elvar Örn Jónsson og Ómar Ingi Magnússon aðeins hikandi líka.

En við eigum Hauk í horni. Eða í skyttu. Enn einn Selfyssingurinn, Haukur Þrastarson, var aðalmaðurinn í kvöld. Það hefur lengi verið beðið eftir því að hann stígi upp á stóra sviðinu í janúar og hann gerði það í kvöld.

Pólverjarnir voru ekkert spes og virtust bjóða okkur upp á að ná góðri forystu ítrekað en við þáðum ekki pólska hlaðborðið. Þar til Haukur kom til skjalanna.

Tekið var fast á honum þegar hann mætti inn á og sleginn harkalega í bakið. Hann svaraði fyrir það með beinni aðkomu að næstu fjórum mörkum. Kassinn fór út og hann leit ekki um öxl.

Það var fyrsti vendipunktur leiksins, enda náði Ísland loks að slíta sig aðeins frá. Annar vendipunkturinn kom í byrjun seinni hálfleiks þegar Ómari Inga var vísað af velli eftir myndbandsskoðun.

Það hefði getað reynst vendipunktur sem sveiflaðist til Pólverja en það var þveröfugt. Við áttum annan Hauk í horni: Íslensku stuðningsmennina.

Íslenski bekkurinn trylltist, stúkan trylltist og úr varð einhver ótrúleg orka. Stuðningurinn var sturlaður. Stúkan gjörsamlega slökkti á Pólverjunum.

Ísland spilandi fimm gegn sjö sugu þessa orku í sig. Þeir stálu boltanum ítrekað, refsuðu með hraðaupphlaupum og eftir tvö leikhlé Pólverja á fimm mínútum voru svörin enn engin. Ekki nein.

Fyrstu tveir leikirnir að baki, ólíkir leikir að öllu leyti nema því að strákarnir kláruðu þessi verkefni einkar fagmannlega.

Haukur í svona standi gæti reynst virkilega mikilvægt tól í sífellt stækkandi verkfærakassa Snorra Steins. Svo eigum við fyrirliðann Ómar Inga enn inni.

Nú er bara að grýta þessari grjótleiðinlegu Ungverjagrýlu út í hafsauga á þriðjudaginn kemur.


Tengdar fréttir

Uppgjörið: Pólland - Ísland 23-31 | Önnur hindrun yfirstigin

Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann öruggan átta marka sigur er liðið mætti Pólverjum í 2. umferð riðlakeppninnar á EM í handbolta í dag. Sigurinn kemur íslensku strákunum í kjörstöðu til að vinna riðilinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×