Utan vallar: Ég get ekki meir Henry Birgir Gunnarsson skrifar 20. janúar 2026 14:00 Ungverjar fagna sigri gegn Íslandi í Kristianstad árið 2023. Svona myndir viljum við ekki sjá í kvöld. vísir/epa Íslenska handboltalandsliðið og grýlur. Það er verulega þreytt og Ungverjagrýlan er litlu skárri en Svíagrýlan á sínum tíma.
Staffan Olsson, Mats Olsson, Magnus Wislander og fleiri goðsagnir Svía eyðilögðu svefn Íslendinga á árum áður en síðustu ár hafa það verið menn eins og Laszlo Nagy og Bence Banhidi frá Ungverjalandi. Jarðarför Svíagrýlunnar er mér mjög eftirminnileg enda fór hún fram í Stokkhólmi árið 2006. Þá hafði Ísland ekki unnið Svía í alvöru landsleik í heil 42 ár. Ísland vann 28-32 í Globen þar sem stóru sleggjurnar hjá Einari Hólmgeirs standa upp úr. Ég gleymi seint gleðinni er ég hljóp niður þrönga stiga Globen-hallarinnar með sigurbros á vör. Ég hreinlega sveif niður. Yndislegt. Svíagrýlan var svo formlega jörðuð í Laugardalshöll þann 17. júní í seinni leik liðanna í umspili um laust sæti á HM 2007. Það reyndar gleymist í sigurvímunni að leikurinn í Höllinni tapaðist. Stóri sigurinn í Stokkhólmi sá til þess að liðið fór samt áfram. Okkur hefur gengið ágætlega að glíma við Svía síðan og vonandi náum við að skella þeim aftur á þeirra heimavelli í milliriðlinum. Síðasta sólarhringinn hafa hellst yfir mann ömurlegar minningar frá leiknum gegn Ungverjum í Kristianstad fyrir þremur árum síðan. Ég mun seint skilja hvernig strákarnir köstuðu þeim leik frá sér. Sex mörkum yfir komu átján mínútur frá helvíti. Liðinu féll allur ketill í eld og tapaði lokakaflanum 11-3. Martröð! Þó ekkert í líkingu við martröðina á ÓL árið 2012 er Ungverjar krömdu öll hjörtu íslensku þjóðarinnar. Leikurinn sem ekki má tala um. Svo muna margir eftir því er Ungverjar eyðilögðu leið strákanna okkar í undanúrslit í Kumamoto 1997. Til að bæta gráu ofan á svart þá flengdu Ungverjarnir okkar lið á EM fyrir tveimur árum síðan. Grýlan lifir svo sannarlega góðu lífi. Þetta er orðið hrikalega þreytt og ég trúi ekki öðru en að strákarnir okkar mæti í hefndarhug og jarði þessa blessuðu Ungverjagrýlu með stæl í kvöld. Það bara verður að gerast. Ég get ekki meir.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Segir félagið í skítnum Enski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Sjá meira