„Beint flug til Köben og nokkrir veikindadagar“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 20. janúar 2026 22:26 Viktor Gísli Hallgrímsson átti stórkostlegan leik í marki Íslands gegn Ungverjalandi. sýn sport Vel lá á Viktori Gísla Hallgrímssyni eftir eins marks sigur Íslands á Ungverjalandi, 23-24, í F-riðli á Evrópumótinu í handbolta í dag. Viktor átti stórleik og varði 23 skot. „
Maður er í smá spennufalli. Þetta er sturluð tilfinning og takk fyrir alla áhorfendurna sem komu og studdu okkur og ég vonast til að sjá sem flesta í Malmö. Þetta er beint flug til Köben og nokkrir veikindadagar. Ég vil sjá sem flesta,“ sagði Viktor í samtali við Val Pál Eiríksson eftir leikinn. Klippa: Viðtal við Viktor Gísla Talsverð ásókn var í Viktor eftir leik en hann þurfti að fara í ófá viðtölin á hinum ýmsu tungumálum. „Danskan er enn allt í lagi. Ég æfi hana á hverjum degi með makkernum hjá Barcelona,“ sagði Viktor og vísaði til danska landsliðsmarkvarðarins Emils Nielsen. Viktor sagði sterkan varnarleik hafa dregið íslenska liðið yfir línuna í kvöld, þrátt fyrir að Elvar Örn Jónsson hafi meiðst og Ýmir Örn Gíslason fengið rautt spjald snemma í seinni hálfleik. „Sturluð vörn og eins og í öllum leikjunum. Við misstum Elvar og Ými sem hafa spilað nánast allar mínúturnar,“ sagði Viktor en Ísland átti ás uppi í erminni: Einar Þorstein Ólafsson sem missti af fyrstu tveimur leikjunum vegna veikinda. „Ég er ekki búinn að sjá hann í þrjá daga en svo kemur hann bara inn og gerir það sem hann gerði í dag. Hann og Elliði eiga stórt hrós skilið. Janus [Daði Smárason] líka. Hann er ekki sá hávaxnasti en blokkaði tvo. Sturluð vörn og loksins klukkaði ég einhverja bolta fyrir aftan,“ sagði Viktor sem var nokkuð rólegur í tíðinni í fyrstu tveimur leikjum Íslands á EM. „Ég var pirraður og fannst ég geta gert betur. Þessir fyrstu tveir leikir voru kannski ekki auðveldir fyrir markmann en ég er með ákveðna standarda fyrir mig og ég uppfyllti þá ekki. En ég hélt áfram að einbeita mér að hlutum sem ég get stjórnað og stundum dettur maður í gang eins og núna.“ Í aðdraganda leiksins í kvöld var mikið rætt um Ungverjagrýluna en þeir ungversku hafa oftar en ekki gert Íslendingum grikk á ögurstundu. Að þessu sinni vann Ísland hins vegar og tekur tvö stig með sér í milliriðil. „Við höfum spilað alltof oft á móti Ungverjum og [Richard] Bodo hefur alltof oft skotið í gegnum mig. Það er ekki mjög gaman að spila á móti honum. Þetta er búið að vera markmiðið síðan Snorri tók við. Hann hefur alltaf imprað á því hvað þetta er mikilvægt, að fara með tvö stig inn í milliriðil,“ sagði Viktor. „Við fáum að upplifa það í þetta skipti og þetta var mikið þroskamerki. Við fengum mikið í andlitið í dag og hefðum getað brotnað undan pressunni en einhvern veginn fann maður enga taugaveiklun frá neinum. Mér fannst alltaf eins og við værum að fara að vinna. Þetta var mjög áhugaverð tilfinning.“ Viðtalið við Viktor má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Tengdar fréttir Uppgjörið: Ísland - Ungverjaland 24-23 | Ísland fer með tvö stig í millirðil Ísland vann frækinn eins marks sigur gegn Ungverjum í hreinum úrslitaleik um efsta sæti F-riðils á EM í handbolta í kvöld. 20. janúar 2026 21:22 „Ég hef prófað þetta og þetta virkar“ Landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson segir að púlsinn sé á niðurleið eftir sigur Íslands gegn Ungverjum á EM í handbolta í kvöld. 20. janúar 2026 22:23 „Bara vá, ég er svo glaður“ „Vá, maður er bara ótrúlega léttur á því einhvernveginn,“ sagði brosmildur Gísli Þorgeir Kristjánsson eftir sigur Íslands gegn Ungverjalandi á EM í handbolta í kvöld. 20. janúar 2026 22:02 Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Almar ekki í kassanum Fótbolti Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira
Uppgjörið: Ísland - Ungverjaland 24-23 | Ísland fer með tvö stig í millirðil Ísland vann frækinn eins marks sigur gegn Ungverjum í hreinum úrslitaleik um efsta sæti F-riðils á EM í handbolta í kvöld. 20. janúar 2026 21:22
„Ég hef prófað þetta og þetta virkar“ Landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson segir að púlsinn sé á niðurleið eftir sigur Íslands gegn Ungverjum á EM í handbolta í kvöld. 20. janúar 2026 22:23
„Bara vá, ég er svo glaður“ „Vá, maður er bara ótrúlega léttur á því einhvernveginn,“ sagði brosmildur Gísli Þorgeir Kristjánsson eftir sigur Íslands gegn Ungverjalandi á EM í handbolta í kvöld. 20. janúar 2026 22:02