Handbolti

Ómar segist eiga meira inni

Valur Páll Eiríksson skrifar
Ómar Ingi Magnússon er fyrirliði og lykilmaður í íslenska liðinu.
Ómar Ingi Magnússon er fyrirliði og lykilmaður í íslenska liðinu. Vísir/Vilhelm

Ómar Ingi Magnússon, fyrirliði íslenska karlalandsliðsins í handbolta, segist eiga inni hvað frammistöðu varðar á yfirstandandi Evrópumóti.

Landsliðið kom til Malmö í fyrradag og hefur komið sér vel fyrir á hóteli í borginni eftir ferðalag frá Kristianstad.

Klippa: Ómar Ingi klár í Króatana

„Það er bara gott. Þetta var stutt ferðalag. Við erum búnir að koma okkur ágætlega fyrir, búnir að æfa og erum bara klárir,“ segir Ómar Ingi. En hvað tekur liðið með sér úr riðlakeppninni?

„Við erum á fínum stað og með þessi tvö stig með okkur, búnir að taka þrjá góða sigra sem hafa verið mismunandi. Þrír góðir sigrar, er aðalatriðið,“ segir Ómar sem býst við erfiðu verkefni gegn Króötum í fyrsta leik í milliriðli í dag.

„Ég býst við hörkuleik. Þeir verða tilbúnir að mæta okkur og þeir þurfa að vinna. Þeir mæta brjálaðir til leiks og við verðum gíraðir í það líka,“ segir Ómar.

Króatíska liðið er öflugt og vann góðan sigur á Íslandi á HM í fyrra sem skaut okkar drengjum úr keppni. Hvað þarf að gera til að hafa betur gegn þeim króatísku?

„Heilt yfir þurfum við að spila heilsteyptan leik og vera með gott plan. Við munum vera með gott plan og klárir í það sem þeir ætla að gera, hvernig þeir útfæra sínar sóknir,“ segir Ómar.

Ómar hefur verið einn allra besti handboltamaður heims undanfarin ár og í samræmi við það verið burðarás í íslenska landsliðinu. Hann hefur þó ekki skorað mikið það sem af er móti og flest mörk hans af vítalínunni. Handboltasérfræðingar segja hann eiga töluvert inni. En hvað þykir honum sjálfum, á hann eitthvað inni?

„Já, auðvitað,“ segir stuttorður Ómar. Er hann þá ósáttur við frammistöðu sína hingað til?

„Ég veit það ekki. Það eru einhver atriði sem má gera betur, einhver sem eru bara fín. En liðið er að vinna, það er mikilvægast. Fókusinn er þar, við þurfum að spila sem lið og höfum verið að gera það og gerum það áfram,“ segir Ómar Ingi.

Viðtalið má sjá í spilaranum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×