Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepin í mótmælunum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 27. janúar 2026 08:47 Myndir hafa ratað á samfélagsmiðla sem sýna lík liggja í röðum fyrir utan sjúkrahús og líkhús. AP/UGC Heilbrigðisstarfsmenn og starfsfólk sjúkrahúsa í Íran segja allt að 30 þúsund hafa verið drepna í aðgerðum stjórnvalda gegn mótmælendum í landinu. Yfirvöld hafa gefið út að um 3.000 hafi látist, á meðan mannréttindasamtök segja fjöldann að minnsta kosti yfir 6.000 og þá séu 17.000 dauðsföll til viðbótar til rannsóknar.
Guardian fjallar um grimmilegar aðgerðir stjórnvalda gegn mótmælendum og viðleitni þeirra til að hylma yfir raunverulegan fjölda látinna. Rætt er við lækninn Ahmadi, sem tók á móti sjúklingum utan kerfisins, til að ekki væri hægt að elta þá uppi. Í fyrstu var aðallega um að ræða skrámur sem þurfti að sauma en eftir því sem mótmælin urðu háværari fóru áverkarnir að verða alvarlegri. Margir komu með alvarleg stungu- eða skotsár, aðallega á höfði, brjóstkassa eða kynfærum. Yfir 40 voru drepnir í smábænum hans. Ahmadi setti sig í samband við yfir 80 heilbrigðisstarfsmenn í tólf af 31 héruðum Íran. Eftir að hafa borið saman bækur sínar áætla þeir að mögulega hafi yfir 30.000 verið drepnir. Vitnisburðir starfsmanna sjúkrahúsa, líkhúsa og grafreita benda til þess að yfirvöld hafi kerfisbundið reynt að fela raunverulegt umfang ofbeldisins, þar sem kældir flutningabílar og fjöldagrafir koma við sögu. Þá eru vísbendingar uppi um að útsendarar yfirvalda hafi farið á milli sjúkrastofnana og myrt einstaklinga sem höfðu leitað sér læknisaðstoðar. Fjöldi líka hafi fundist þar sem viðkomandi virðast hafa verið undir læknishöndum, til dæmis með öndunarbúnað eða lyfjabrunna á sér, þegar þeir voru skotnir á stuttu færi. Hér má finna umfjöllun Guardian.
Íran Mótmælaalda í Íran Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira