Tími til að breyta: Lóðaskortur og skipulagsleysi hækkar íbúðaverð Aðalsteinn Leifsson skrifar 28. janúar 2026 07:47 Reykjavík þarf skýra framtíðarsýn í skipulagsmálum og einfaldari og fyrirsjáanlegri stjórnsýslu án pólitískra afskipta af smáatriðum, sanngjarnari gjaldtöku og skipulagi sem miðast við þarfir íbúanna. Hlutverk borgarinnar er ekki að skapa skort, heldur jafnvægi, ekki að vinna gegn markaðinum heldur með honum. Ekki að búa til byggingarfélag, eins og meirihlutinn lagði til fyrir nokkrum dögum, heldur að skapa byggingafélögum á almennum markaði heilbrigðan og skýran ramma. Skortur hækkar verð Skortur á byggingarhæfum lóðum í Reykjavík, ásamt löngu og ófyrirsjáanlegu skipulagsferli, hefur ýtt lóðaverði upp og haft keðjuverkandi áhrif á allan húsnæðismarkaðinn. Þegar lóðir eru allt of fáar og dýrar fara byggingaraðilar þá leið að byggja stórt, hátt og þétt. Útkoman eru of dýrar íbúðir. Kröfur Reykjavíkurborgar um stærð íbúða sem lítil eftirspurn er eftir gerir illt verra. Krafan um atvinnuhúsnæði á fyrstu hæð, sem síðan selst ekki, bætir gráu ofan á svart. Fólki og atvinnulífi er ýtt burt Hátt íbúðaverð ýtir fólki frá borginni. Það þurfa ekki öll að búa í Reykjavík en mörg þeirra sem flytja frá Reykjavík vildu gjarnan búa þar og sækja enn vinnu í höfuðborginni. Þetta lengir ferðatíma, eykur umferð og mengun og vinnur gegn jafnrétti kynjanna, þar sem konurnar eru líklegri til að minnka við sig vinnu.Verktakar og fyrirtæki hika við að byggja í Reykjavík vegna þess að skipulagsferlið er of langt og of ófyrirsjáanlegt. Fyrirtæki forðast auk þess ákveðin svæði í borginni vegna umferðartafa og skorts á bílastæðum. Þetta þarf ekki og á ekki að vera svona erfitt Nýr meirihluti í Reykjavík þarf að laga þetta ástand. Setja hvata til þess að byggja húsnæði sem eftirspurn er eftir og hraða uppbyggingu. Dæmi um það gætu verið skýr tímaviðmið í skipulagsferli þannig að umsóknir teljist samþykktar ef þær eru ekki afgreiddar innan ákveðins tíma. Draga úr sífelldum breytingabeiðnum sem kæfa kerfið. Uppbyggingarsamningar þurfa að vera tímabundnir, líkt og í nágrannalöndum, til að koma í veg fyrir lóðabrask eins og við höfum nýleg dæmi um í höfuðborginni. Það er kominn tími til að breyta til í Reykjavík. Höfundur er frambjóðandi í oddvitakjöri Viðreisnar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Viðreisn Reykjavík Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Aðalsteinn Leifsson Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Reykjavík þarf skýra framtíðarsýn í skipulagsmálum og einfaldari og fyrirsjáanlegri stjórnsýslu án pólitískra afskipta af smáatriðum, sanngjarnari gjaldtöku og skipulagi sem miðast við þarfir íbúanna. Hlutverk borgarinnar er ekki að skapa skort, heldur jafnvægi, ekki að vinna gegn markaðinum heldur með honum. Ekki að búa til byggingarfélag, eins og meirihlutinn lagði til fyrir nokkrum dögum, heldur að skapa byggingafélögum á almennum markaði heilbrigðan og skýran ramma. Skortur hækkar verð Skortur á byggingarhæfum lóðum í Reykjavík, ásamt löngu og ófyrirsjáanlegu skipulagsferli, hefur ýtt lóðaverði upp og haft keðjuverkandi áhrif á allan húsnæðismarkaðinn. Þegar lóðir eru allt of fáar og dýrar fara byggingaraðilar þá leið að byggja stórt, hátt og þétt. Útkoman eru of dýrar íbúðir. Kröfur Reykjavíkurborgar um stærð íbúða sem lítil eftirspurn er eftir gerir illt verra. Krafan um atvinnuhúsnæði á fyrstu hæð, sem síðan selst ekki, bætir gráu ofan á svart. Fólki og atvinnulífi er ýtt burt Hátt íbúðaverð ýtir fólki frá borginni. Það þurfa ekki öll að búa í Reykjavík en mörg þeirra sem flytja frá Reykjavík vildu gjarnan búa þar og sækja enn vinnu í höfuðborginni. Þetta lengir ferðatíma, eykur umferð og mengun og vinnur gegn jafnrétti kynjanna, þar sem konurnar eru líklegri til að minnka við sig vinnu.Verktakar og fyrirtæki hika við að byggja í Reykjavík vegna þess að skipulagsferlið er of langt og of ófyrirsjáanlegt. Fyrirtæki forðast auk þess ákveðin svæði í borginni vegna umferðartafa og skorts á bílastæðum. Þetta þarf ekki og á ekki að vera svona erfitt Nýr meirihluti í Reykjavík þarf að laga þetta ástand. Setja hvata til þess að byggja húsnæði sem eftirspurn er eftir og hraða uppbyggingu. Dæmi um það gætu verið skýr tímaviðmið í skipulagsferli þannig að umsóknir teljist samþykktar ef þær eru ekki afgreiddar innan ákveðins tíma. Draga úr sífelldum breytingabeiðnum sem kæfa kerfið. Uppbyggingarsamningar þurfa að vera tímabundnir, líkt og í nágrannalöndum, til að koma í veg fyrir lóðabrask eins og við höfum nýleg dæmi um í höfuðborginni. Það er kominn tími til að breyta til í Reykjavík. Höfundur er frambjóðandi í oddvitakjöri Viðreisnar í Reykjavík.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar