Nei elskan, við eigum hlutfall af heildarlaxamagni heima Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar 28. janúar 2026 11:47 Ég hef áhuga á tungumálinu og hvernig það er notað. Ég hef áður skrifað um skrumskælingu hluta með kerfistungumáli. Með því að nota orð, sem enginn skilur, og hljóma jafnvel sakleysislega er hægt að koma hlutum í gegn um ótrúlegustu nálaraugu. Nýtt dæmi um slíkt eru laxahlutur sem skilgreinist sem hlutfall rekstrarleyfishafa af heildarlaxamagni sem svo skilgreinist sem heimild rekstrarleyfishafa til eldis á frjóum laxi í sjó hverju sinni, mælt í lífmassa. Þessi orðskrípi væru svosem ekki frásögu færandi ef frumvarp um lagareldi sem hefur nýlokið umsagnarferli á samráðsgátt, feldi ekki í sér að þessi laxahlutur er bæði framseljanlegur og veðsetjanlegur. Í gær hafnaði Hanna Katrín ráðherra því í kastljósi að slíkt feli í sér kvótavæðingu á fjörðum landsins. En frumvarpið líkist lögum um fiskveiði að því leyti að það býður upp á að þau sem hafa rekstrarleyfi í íslenskum fjörðum gætu stórgrætt á þeim, selt þá og tekið lán með veð í leyfinu. Þó að það sé tekið fram í 2. mgr. 39. gr. frumvarpins að úthlutun og skráning laxahlutar myndi ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila gefur það lítið öryggi. Um er ræða sama orðalag og fram kemur í 1. gr. laga um stjórn fiskveiða. Laxahlutur, sem er framseljanlegur og hefur sjálfstætt fjárhagslegt gildi í höndum handhafa nýtur óumdeilanlega ríkari eignarréttarverndar en hefðbundið opinbert starfs- eða rekstrarleyfi. Þannig það er alveg sama hvort það er kallað laxahlutur, kvóti, eða hlutfall af heildarlaxamagni. Það er augljóst að verið er að gefa íslenska firði með þessu frumvarpi. Þar stjórnar ekki hugsjón um vernd á Íslenskri náttúru og ekki almannahagsmunir. Höfundur er formaður Landverndar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorgerður María Þorbjarnardóttir Mest lesið Kosningalimran 2026 Freyr Snorrason,Arnar Ingi Ingason Skoðun Reykjavík þarf Regínu Alma D. Möller Skoðun Við bjóðum okkur fram til þess að bera ábyrgð Björg Magnúsdóttir Skoðun Fráleitar tillögur um að einkavæða orkufyrirtækin okkar Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Halldór 16.05.2026 Halldór Kaus áður Sjálfstæðisflokkinn, nú Pírata Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir Skoðun Þversögn umburðarlyndis og góðmennsku Meyvant Þórólfsson Skoðun Rannsókn staðfestir fúsk Seðlabanka Íslands Örn Karlsson Skoðun Borgarlínan - hvað hefði Guðjón Samúelsson sagt? Þorsteinn Helgason Skoðun Breiðholtið þar sem hjartað mitt slær Bjarni Fritzson Skoðun Skoðun Skoðun Nei, gervigreindartónlist er ekki lýðræðisafl Mikael Lind skrifar Skoðun Viljum við efla fólk eftir áföll? Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Breytir tæknin tilveru lesblindra? Guðmundur S. Johnsen skrifar Skoðun Afhverju X við P? Unnar Þór Sæmundsson skrifar Skoðun Kosningalimran 2026 Freyr Snorrason,Arnar Ingi Ingason skrifar Skoðun Setjum X við D Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Við bjóðum okkur fram til þess að bera ábyrgð Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Þversögn umburðarlyndis og góðmennsku Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Daglegt líf sem virkar í Fjarðabyggð Stefán Þór Eysteinsson skrifar Skoðun Dagur óbærilegrar spennu Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Breiðholtið þar sem hjartað mitt slær Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Kópavogur er í sókn – kjósum áfram sömu stefnu Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Kaus áður Sjálfstæðisflokkinn, nú Pírata Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hlustið á fólkið! Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Píratar: Rödd mannréttinda í 12 ár Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns,Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Veljum að gera betur Ingvar P. Guðbjörnsson skrifar Skoðun Áheyrn og árangur í skólamálum í Hveragerði Halldóra Jóna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Höfum staðreyndir á hreinu áður en við kjósum Geir Finnsson skrifar Skoðun Northvolt: Þegar „græna byltingin“ bítur í skottið á sér Júlíus Valsson skrifar Skoðun Síðustu hálmstrá ráðhússhersins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Geta kosningar verið máttlaus öryggisventill? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Borgarlínan - hvað hefði Guðjón Samúelsson sagt? Þorsteinn Helgason skrifar Skoðun Þegar ekki er mögulegt að fara heim Grímur Sigurðarson skrifar Skoðun Skólastarf til fyrirmyndar skrifar Skoðun Rannsókn staðfestir fúsk Seðlabanka Íslands Örn Karlsson skrifar Skoðun Hversu lengi nennir þú að bíða? Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Meira af íþróttum fyrir alla í Múlaþingi Ævar Orri Eðvaldsson skrifar Skoðun Gefum íbúum rödd í Fjarðabyggð Hjördís Helga Seljan skrifar Skoðun Fréttaflutningur RÚV um „óháða“ skýrslu ísraelsks rannsóknarhóps Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Fjölskyldan í forgang Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir skrifar Sjá meira
Ég hef áhuga á tungumálinu og hvernig það er notað. Ég hef áður skrifað um skrumskælingu hluta með kerfistungumáli. Með því að nota orð, sem enginn skilur, og hljóma jafnvel sakleysislega er hægt að koma hlutum í gegn um ótrúlegustu nálaraugu. Nýtt dæmi um slíkt eru laxahlutur sem skilgreinist sem hlutfall rekstrarleyfishafa af heildarlaxamagni sem svo skilgreinist sem heimild rekstrarleyfishafa til eldis á frjóum laxi í sjó hverju sinni, mælt í lífmassa. Þessi orðskrípi væru svosem ekki frásögu færandi ef frumvarp um lagareldi sem hefur nýlokið umsagnarferli á samráðsgátt, feldi ekki í sér að þessi laxahlutur er bæði framseljanlegur og veðsetjanlegur. Í gær hafnaði Hanna Katrín ráðherra því í kastljósi að slíkt feli í sér kvótavæðingu á fjörðum landsins. En frumvarpið líkist lögum um fiskveiði að því leyti að það býður upp á að þau sem hafa rekstrarleyfi í íslenskum fjörðum gætu stórgrætt á þeim, selt þá og tekið lán með veð í leyfinu. Þó að það sé tekið fram í 2. mgr. 39. gr. frumvarpins að úthlutun og skráning laxahlutar myndi ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila gefur það lítið öryggi. Um er ræða sama orðalag og fram kemur í 1. gr. laga um stjórn fiskveiða. Laxahlutur, sem er framseljanlegur og hefur sjálfstætt fjárhagslegt gildi í höndum handhafa nýtur óumdeilanlega ríkari eignarréttarverndar en hefðbundið opinbert starfs- eða rekstrarleyfi. Þannig það er alveg sama hvort það er kallað laxahlutur, kvóti, eða hlutfall af heildarlaxamagni. Það er augljóst að verið er að gefa íslenska firði með þessu frumvarpi. Þar stjórnar ekki hugsjón um vernd á Íslenskri náttúru og ekki almannahagsmunir. Höfundur er formaður Landverndar.
Skoðun Píratar: Rödd mannréttinda í 12 ár Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns,Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar