Þjálfari Dana um Ísland: „Nokkrir af bestu handboltamönnum heims“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. janúar 2026 22:27 Nikolaj Jacobsen er enn á ný kominn með danska landsliðið í leiki um verðlaun. Getty/ Sanjin Strukic/ Nikolaj Jacobsen, þjálfari danska landsliðsins, var spurður út í íslenska landsliðið eftir að lið hans vann Noreg í kvöld og tryggði sér undanúrslitaleik á EM á móti strákunum okkar.
Danir byrjuðu ekkert vel en skiptu síðan í gírinn og rúlluðu Norðmönnunum upp og unnu fjórtán marka sigur. Ísland og Danmörk mætast klukkan 19.30 á föstudagskvöldið. Jacobsen var einnig spurður út í línumanninn Emil Bergholt sem meiddist í kvöld en danski þjálfarinn sagði að meiðslin litu ekki vel út. Hann segir jafnframt að meiðslin séu í fætinum. „Bergholt hefur gert eitthvað við fótinn á sér. Við vitum ekki hvað það er enn þá. En við þurfum auðvitað að láta skoða það. En eins og staðan er núna lítur þetta ekki mjög jákvætt út,“ sagði Nikolaj Jacobsen eftir leik. Hann var spurður út í það hvort það væri hætta á því að hann gæti ekki notað Bergholt á móti Íslandi á föstudaginn. „Eins og ég segi, ég veit það ekki enn þá. Ég vil heldur ekki standa hér og tala um eitthvað sem ég veit ekki. En eins og staðan er núna lítur þetta ekki sérstaklega jákvætt út en nú líður einn dagur og svo þurfum við auðvitað að láta skoða hvað þetta er,“ sagði Jacobsen. Hann var spurður út í íslenska landsliðið. Hvers konar andstæðingur verður það? „Það verður erfitt. Þaðan koma nokkrir af bestu handboltamönnum heims og þeir munu veita okkur mótspyrnu, bæði hvað varðar hraða og í einn á einn leik. Þetta verður mjög erfitt verkefni en líka spennandi verkefni,“ sagði Jacobsen.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Varð skotmark með því að ráða Frey: „Ákveðin áhætta fyrir mig“ Fótbolti Mun saga Arons endurtaka sig? Fótbolti „Eins og að horfa á bíómynd“ Sport „Setjum pressu á leikmenn að haga sér fullkomlega næstu tvö árin“ Fótbolti Strákarnir á Saga Class en stelpurnar aftar í vélinni Sport Boehly selur og kveður Chelsea Enski boltinn Tætti í sig fulltrúa ungstirnisins: „Hvernig eruð þið að hugsa um þennan strák?“ Enski boltinn Enn eitt áfallið fyrir Manchester United Enski boltinn Biðjast afsökunar eftir að keppandi kúkaði á sig Sport „Ef þetta hefði verið ég þá hefði ég hætt keppni“ Sport Fleiri fréttir Í skýjunum með dönsku nýlenduna í Þorpinu „Erum að spila fyrir allt Þórs samfélagið“ „Þetta móment á þessum stað á móti KA fyrir mitt félag að sjá fögnuðinn og upplifa hann var bara æðislegt“ Haukar á toppinn og jafntefli á Selfossi Valur bætti vörnina úr síðasta leik Elín Rósa og Díana Dögg unnu stórsigur Þórsarar höfðu betur í slagnum um Akureyri Orri Freyr markahæstur gegn Íslendingaliðinu Ófært frá Eyjum og leiknum frestað Íslendingaliðið vann bikarinn með tvo ólöglega Missti eins árs gamlan son sinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Snorri Steinn valdi elítuhóp úr Olís-deildinni Valur rétti af skelfilega byrjun Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Sjá meira
„Þetta móment á þessum stað á móti KA fyrir mitt félag að sjá fögnuðinn og upplifa hann var bara æðislegt“