Handbolti

Danir með tromp á hendi: „Auð­vitað hrika­lega mikil­vægt“

Sindri Sverrisson skrifar
Gísli Kristjánsson er stoðsendingahæstur á EM og algjör prímusmótor í sóknarleik Íslands.
Gísli Kristjánsson er stoðsendingahæstur á EM og algjör prímusmótor í sóknarleik Íslands. Getty/Sanjin Strukic

Danir telja sig hafa ansi sterkt tromp á hendi gegn ásunum í íslensku sókninni, fyrir undanúrslitaleik þjóðanna á EM í handbolta í kvöld.

Danir hafa nefnilega í sínum röðum línumanninn Magnus Saugstrup sem tekið hefur virkan þátt í hinni gríðarlegu velgengni danska landsliðsins á síðustu sjö árum.

Hinn 29 ára gamli Saugstrup nýtur þeirra forréttinda að spila í sínu félagsliði með þeim Gísla Þorgeiri Kristjánssyni og Ómari Inga Magnússyni, sem og Elvari Erni Jónssyni sem hætta þurfti á EM vegna meiðsla, og þeir sjá um að mata hann á sendingum í Magdeburg. Liðið hefur farið á kostum í þýsku deildinni í vetur og ekki tapað leik.

TV 2 í Danmörku bendir á að Saugstrup viti allt sem þurfti að vita um það hvernig Gísli og Ómar spili. Þannig séu Danir með ás í erminni til að verjast Gísla, sem er stoðsendingahæstur allra á EM, og Ómari sem er einn markahæsti maður mótsins.

Magnus Saugstrup og Ómar Ingi Magnússon hafa spilað saman í Magdeburg síðustu ár. Hér eru þeir saman til varnar í leik gegn Flensburg.Getty/Hendrik Schmidt

Nikolaj Jacobsen, landsliðsþjálfari Dana, fór ekki heldur í neinar grafgötur með það að leitað yrði til Saugstrup í undirbúningnum fyrir leikinn við Ísland.

„Það verður auðvitað mjög mikilvægt. Á því leikur enginn vafi. Þar höfum við eitthvað sem við getum nýtt okkur varðandi þekkingu Saugstrup,“ sagði Jacobsen.

Leita að réttu jafnvægi gegn Gísla og Ómari

Hvort það dugar að vita hvernig Gísli og Ómar vilja spila verður svo að koma í ljós og eins má segja að þeir viti allt sem þarf að vita um Saugstrup. Línumaðurinn segir að það verði að minnsta kosti erfitt að eiga við þessa tvo bestu sóknarmenn Íslands.

„Gísli mun spila af öllum sínum krafti í „einn á einn“ leiknum og stýra sókninni. Ómar mun spila skynsamlega og nýta sér yfirtöluna sem skapast.

Við þurfum að finna hve langt fram á að stíga og rétta stuðninginn. Við þurfum að finna góða fjarlægð og sjá hvort við getum leyft einhver skot og fengið hraða út úr því. En það verður erfitt,“ sagði Saugstrup við TV 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×