Sér fyrir sér bronsverðlaun um hálsinn Valur Páll Eiríksson skrifar 1. febrúar 2026 11:30 Elliði Snær Viðarsson hefur verið meðal betri leikmanna Íslands á yfirstandandi móti. Hann vill ljúka því á góðum nótum. Vísir/Vilhelm „Maður er eins góður og við má búast. Maður hefur reynt að gleyma svekkelsinu og einblína á Króatana,“ sagði Elliði Snær Viðarsson, línumaður íslenska landsliðsins, þegar hann var tekinn tali í gær. Ísland mætir Króatíu í leik um bronsið á EM í dag.
Danaleikurinn sat eðlilega í mönnum þegar fjölmiðlaviðburður fór fram í gærmorgun. Klippa: Sér fyrir sér bronsmedalíu um hálsinn „Þetta var gífurlega mikið svekkelsi. Við ætluðum alla leið í úrslitin og fannst við eiga það skilið. En þetta er handbolti og það má lítið fara úrskeiðis til að Danirnir hafi unnið þetta. Það gerðist, það voru smáatriði sem við klikkuðum og þeir ná að nýta sér. En samt sem áður fannst mér við spila góðan leik og eiga meira skilið,“ segir Elliði sem þurfti ásamt öðrum leikmönnum að rífa sig á lappir til að mæta snemmmorguns á fjölmiðlaviðburð eftir langa nótt. „Maður getur ekkert sofið endalaust fram eftir. Ég hefði viljað sitja aðeins lengur við morgunmatinn og fá mér tvo kaffibolla í viðbót. En maður mætir bara þar sem maður á að mæta,“ segir Elliði léttur. Hvað þreytu varðar eftir átta leiki á 15 dögum segist Elliði ætla að taka stöðuna á skrokknum síðar. „Það er bara brons í boði á sunnudaginn og svo er hægt að spá í það hvernig skrokkurinn hafi það.“ Ísland mætir Króötum í annað sinn á mótinu eftir að hafa tapað með eins marks mun í fyrsta leik í milliriðli í Malmö fyrir viku síðan. Bæta á fyrir það. „Okkur leið eins og við hefðum getað gert mikið betur í síðasta leik og eigum við inni eftir hann. Við erum spenntir að takast á við þá,“ segir Elliði. Halda eigi uppteknum hætti, keyra á Króatana og setja þreytuna til hliðar. „Hún verður að gera það. Það er ekkert annað í boði. Við ætlum að hlaupa á þá, það er leikplanið okkar og við hættum því ekki. Við höfum fengið auðveldustu mörkin okkar úr því að hlaupa á andstæðingana okkar. Þreyta er bara afsökun núna, það telur ekki með,“ Ertu búinn að sjá bronsið fyrir þér um hálsinn? „Klárlega.“ Ísland og Króatía mætast klukkan 14:15 í dag í leik um bronsið á EM. Teymi Sýnar mun fylgja liðinu áfram eftir hvert fótmál fram að leik.
Landslið karla í handbolta EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Sögulegur samningur Víkinga Íslenski boltinn Missti næstum því fingur á móti Liverpool Fótbolti Þjálfari HK-kvenna braut siðareglur Íslenski boltinn Samningur í höfn: Írar treysta Heimi fyrir EM á heimavelli Fótbolti Mörkin í Meistaradeild: Sjáðu stóru liðin setja upp sýningu Fótbolti Vill ekki falla í sömu gryfju og Svíar Fótbolti Fresta ákvörðun um hugsanlegt bann á Trump Sport Deilan leyst og spilað í Boston Fótbolti Guardiola: Liverpool-liðið hans Klopp er erfiðasta áskorunin en ekki Real Enski boltinn Schmeichel um áfall sonarins: „Vil ekki að þetta endi svona“ Fótbolti Fleiri fréttir Bronslið Dags Sig burstaði Svisslendinga í fyrsta leik eftir EM Frábært að sleppa við austantjaldið Heilluðust af Ölfu Brá á HM og sömdu við hana Mætir með vænt glóðarauga: „Þetta var smá barningur“ Berta Rut snýr heim í Hauka Deildarmeistarar Vals unnu nauman sigur fyrir norðan Uppgjörið: Stjarnan - Fram 34-34 | Stjarnan heldur lífi í fallsætisbaráttunni „Ekki endilega það sem maður vildi“ Leiðtoginn Sigvaldi fer til Þýskalands Alfreð með skýrt svar: „Þeir verða að ráða framhaldinu“ Strákarnir okkar slógu í gegn í Smáralindinni „Allt of snöggur og óvæntur endir“ Hægt að hitta handboltahetjurnar í dag Enginn slaki gefinn Hótar eigin leikmönnum og þjálfurum Ísak dró sig úr hópnum gegn Svíum VIP-miðar í boði til að komast nær strákunum okkar Viggó og Andri fengu skell gegn meisturunum Nýbakaði faðirinn með níu mörk Íslendingaliðið úr leik eftir tap í undanúrslitum Víkingur Reykjavík upp í Olís deildina „Þetta er ekki búið“ Sara Dögg í miklum ham er ÍR styrkti stöðu sína Valur - Fram 32-31 | Risaleikur Lovísu kláraði Fram „Hefði verið leiðinlegt að skora öll þessi mörk og tapa“ Donni drjúgur og Elvar með frábæran leik Selfoss hafði sætaskipti við Stjörnuna á botninum Haukar stöðvuðu sigurgöngu Eyjakvenna Stiven flaug áfram í átta liða úrslit Teitur og Elliði unnu Íslendingaslaginn Sjá meira