Einkunnir Strákanna okkar á móti Króatíu: Enn og aftur erfiður Dagur gegn Króatíu Íþróttadeild Sýnar skrifar 1. febrúar 2026 16:46 Ómar Ingi Magnússon skoraði tólf mörk í bronsleiknum og var með hundrað prósent skotnýtingu. vísir/vilhelm Íslenska karlalandsliðið í handbolta tapaði með minnsta mun fyrir Króatíu, 33-34, í leiknum um bronsið á EM í dag. Íslendingar voru nær allan tímann í eltingarleik en áttu gott áhlaup undir lok leiks sem dugði þó ekki til. Of mörg dauðafæri fóru í súginn og markvarslan var takmörkuð framan af leik. Þetta var annað eins marks tap Íslands fyrir Króatíu á þessu mótinu og þriðja tapið fyrir Króötum á stórmóti á einu ári. Íslendingum voru mislagðar hendur í færunum sínum í upphafi leiks. Sex dauðafæri fóru í súginn á fyrstu átta mínútum. Á meðan skutu Króatar okkar menn í kaf eins og þeir gerðu í fyrri tveimur leikjunum. Viktor Gísli Hallgrímsson náði sér engan veginn á strik í íslenska markinu en Björgvin Páll Gústavsson átti góða innkomu. Króatar leiddu með þremur mörkum í hálfleik, 14-17. Ísland minnkaði muninn í 16-18 en Króatía skoraði næstu þrjú mörk og náði fimm marka forskoti, 16-21. Króatar voru með góða stjórn á leiknum og náðu mest sex marka forskoti, 23-29. Þá tók íslenska liðið við sér og fór að minnka muninn. Viktor kom aftur í markið og varði tvö víti á lokamínútunum. Tíðar brottvísanir gerðu Íslandi þó erfitt fyrir og þá fékk Viggó Kristjánsson rauða spjaldið eftir sjö mínútna leik í seinni hálfleik. Óðinn Þór Ríkharðsson minnkaði muninn í 30-32 en Marin Jelinic svaraði að bragði, 30-33. Á endanum munaði einu marki á liðunum, 33-34. Fyrirliðinn Ómar Ingi Magnússon skoraði tólf mörk, þar af tíu úr vítaköstum, og var með hundrað prósenta skotnýtingu. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði sex mörk. Niðurstaða íslenska liðsins á mótinu er því 4. sæti sem er besti árangur þess á stórmóti síðan það vann bronsið á EM 2010. Einkunnir Íslands gegn Króatíu: - Byrjunarlið Íslands í leiknum - Viktor Gísli Hallgrímsson, markvörður - 2 (6/2 varin skot - 25:43 mín.) Þriðja leikinn í röð gegn Króötum skoruðu þeir ítrekað með skotum utan af velli án þess að Viktor fengi neitt við ráðið. Fór af velli þegar tæpar tuttugu mínútur voru liðnar og Björgvin tók stöðu hans. Viktor kom aftur inn í markið undir lokin og gaf íslenska liðinu von með því að verja tvö vítaköst. Viktor átti tvo góða leiki á EM en getur og verður að gera miklu betur en hann sýndi á mótinu. Bjarki Már Elísson, vinstri hornamaður - 4 (4 mörk - 51:30 mín.) Spilaði allan leikinn. Skaut í stöngina úr fyrsta skotinu sínu en nýtti hin fjögur færin sín. Elsti útileikmaðurinn í íslenska hópnum sýndi að hann hefur enn fullt fram að færa. Janus Daði Smárason, vinstri skytta - 2 (1 mark - 38:10 mín.) Spilaði frábærlega í undanúrslitaleiknum gegn Danmörku en náði sér ekki á strik í dag. Klikkaði á opnu færi snemma leiks og fann ekki rétta taktinn, hvorki í vörn né sókn. Gísli Þorgeir Kristjánsson, leikstjórnandi - 4 (6 mörk - 38:24 mín.) Eins og áður í mótinu mæddi mikið á Gísla. Gaf allt í leikinn og réðist hvað eftir annað á króatísku vörnina. Skoraði sex mörk en hefði mátt nýta færin sín betur. Gaf fimm stoðsendingar og sótti fjögur víti. Langbesta stórmót Gísla með landsliðinu. Ómar Ingi Magnússon, hægri skytta - 5 (12/10 mörk - 37:03 mín.) Sýndi ótrúlegt öryggi á vítalínunni. Skoraði úr öllum tíu vítunum sínum og sýndi stáltaugar hvað eftir annað. Fiskaði sjálfur þrjú víti en hefði kannski mátt reyna meira utan af velli. Fékk tvær brottvísanir í fyrri hálfleik og spilaði lítið í vörninni í þeim seinni. Ómar óx vel inn í mótið og endaði sem einn markahæsti maður þess. Óðinn Þór Ríkharðsson, hægri hornamaður - 4 (5 mörk - 49:29 mín.) Spilaði að venju allan leikinn og skoraði fimm mörk. Eflaust svekktur með skotin þrjú sem hann klikkaði á en Óðinn skilaði sínu eins og hann gerði allt mótið. Elliði Snær Viðarsson, línumaður - 2 (2 mörk - 50:37 mín.) Eftir þrjá frábæra leiki í röð átti Elliði algjöran slakan leik í dag. Fékk þrjú dauðafæri á fyrstu þremur mínútum leiksins en brenndi af þeim öllum. Það reyndist rándýrt. Endaði með tvö mörk úr sex skotum, greip ekki tvær línusendingar og var ekki góður í vörninni. Elliði er íslenska liðinu gríðarlega mikilvægur en þetta var ekki hans dagur. Ýmir Örn Gíslason, varnarmaður - 3 (0 mörk - 34:18 mín.) Átti í vandræðum í vörninni eins og í fyrri leiknum gegn Króatíu. Reyndi hvað hann gat að rífa íslenska liðið áfram en Íslendingar náðu aldrei að þétta vörnina nógu vel. - Menn sem komu inn af bekknum í leiknum - Arnar Freyr Arnarsson, línumaður - 3 (1 mark - 8:14 mín.) Spilaði ekki mikið en skoraði úr eina skotinu sem hann tók. Hafði ekki mikil áhrif á mótið. Viggó Kristjánsson, hægri skytta - 2 (0 mörk - 9:16 mín.) Eftir stórleikinn gegn Svíum fjaraði undan Viggó á mótinu. Spilaði lítið í dag enda fékk hann rautt spjald snemma í seinni hálfleik. Haukur Þrastarson, vinstri skytta - 3 (2 mörk - 21:03 mín.) Sumt gott, sumt ekki jafn gott hjá Hauki í dag. Tapaði boltanum einu sinni í seinni hálfleik og fékk svo klaufalega brottvísun en átti sinn þátt í endurkomu íslenska liðsins. Maður vill alltaf sjá meira til Hauks en staðan á honum er mun betri en fyrir ári síðan og vonandi lætur hann meira til sín taka í landsliðinu. Einar Þorsteinn Ólafsson, varnarmaður - 3 (0 mörk - 9:18 mín.) Kom með nýja vídd í íslenska varnarleikinn og átti sinn þátt í hleypa leiknum upp undir lokin. Björgvin Páll Gústavsson, markvörður - 4 (9 varin skot - 29:09 mín.) Minnti á sig með góðri innkomu í dag. Allt annað að sjá Björgvin en í fyrri leiknum gegn Króatíu. Varði níu skot, eða 35 prósenta þeirra skota sem hann fékk á sig. Orri Freyr Þorkelsson, vinstri hornamaður - (spilaði ekkert) Sigvaldi Björn Guðjónsson, hægri hornamaður - (spilaði ekkert) Þorsteinn Leó Gunnarsson, vinstri skytta - (spilaði ekkert) Líkt og áður þá gefur íþróttadeild Vísis og Sýnar leikmönnum einkunnir fyrir frammistöðu sína. Leikmenn fá einkunn á bilinu 1-6 með umsögn, en neðst í fréttinni má sjá hvað hver einkunn þýðir. Útskýring á einkunnum 6 - Heimsklassa frammistaða 5 - Frábær frammistaða 4 - Góð frammistaða 3 - Sæmileg frammistaða - skilaði sínu 2 - Ekki nógu góð frammistaða 1 - Slakur leikur EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Enski boltinn Fleiri fréttir Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Sjá meira
6 - Heimsklassa frammistaða 5 - Frábær frammistaða 4 - Góð frammistaða 3 - Sæmileg frammistaða - skilaði sínu 2 - Ekki nógu góð frammistaða 1 - Slakur leikur
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Enski boltinn Fleiri fréttir Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Sjá meira