Handbolti

75 prósent tapleikja á síðustu tveimur stórmótum á móti Degi Sig

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dagur Sigurðsson hefur unnið alla þrjá leikina á móti Íslandi á síðustu tveimur stórmótum sem sá til þess að hann vann silfur á HM í fyrra og brons á EM í ár.
Dagur Sigurðsson hefur unnið alla þrjá leikina á móti Íslandi á síðustu tveimur stórmótum sem sá til þess að hann vann silfur á HM í fyrra og brons á EM í ár. EPA/Henning Bagger/Thomas Traasdahl

Dagur Sigurðsson vann verðlaun á öðru stórmótinu í röð þegar Króatar tryggðu sér bronsverðlaun á Evrópumótinu í handbolta með sigri á Íslendingum í gær. Dagur virðist vera orðinn algjört „kryptonite“ fyrir íslenska landsliðsþjálfarann Snorra Stein Guðjónsson.

Króatar unnu eins marks sigur á Íslandi í leiknum um bronsið og þetta var annar sigur Króata á íslenska landsliðinu á þessu móti. Krótar unnu einnig Ísland í fyrsta leik liðanna í milliriðlinum. Báðir leikirnir unnust með aðeins einu marki.

Ísland tapaði aðeins þremur leikjum á þessu Evrópumóti en þriðja tapið kom í undanúrslitaleiknum á móti verðandi Evrópumeisturum Dana.

Íslenska landsliðið tapaði líka aðeins einum leik á heimsmeistaramótinu í fyrra en það tap kom einmitt á móti Degi Sigurðssyni og lærisveinum hans í Króatíu. Það tap var afar dýrkeypt en íslenska liðið hafnaði aðeins í níunda sæti mótsins þrátt fyrir að vinna fimm af sex leikjum sínum.

Íslensku strákarnir hafa því aðeins tapað fjórum leikjum af fimmtán á síðustu tveimur stórmótum sínum undir stjórn Snorra Steins Guðjónssonar. Tíu leikjanna hafa unnist og einn endaði með jafntefli.

Um leið þýðir það að 75 prósent tapleikja íslenska handboltalandsliðsins á síðustu tveimur stórmótum voru á móti Degi Sigurssyni.

  • Sigurleikir Íslands á síðustu tveimur stórmótum: (Samtals 10)
  • 13 marka sigur á Grænhöfðaeyjum á HM 2025 (34-21)
  • 21 marks sigur á Kúbu á HM 2025 (40-19)
  • 5 marka sigur á Slóveníu á HM 2025 (23-18)
  • 3 marka sigur á Egyptalandi á HM 2025 (27-24)
  • 9 marka sigur á Argentínu á HM 2025 (30-21)
  • 13 marka sigur á Ítalíu á EM 2026 (39-26)
  • 8 marka sigur á Póllandi á EM 2026 (31-23)
  • 1 marks sigur á Ungverjalandi á EM 2026 (24-23)
  • 8 marka sigur á Svíþjóð á EM 2026 (35-27)
  • 8 marka sigur á Slóveníu á EM 2026 (39-31)
  • -
  • Jafntefli Íslands á síðustu tveimur stórmótum (Samtals 1)
  • 38-38 jafntefli á móti Sviss á EM 2026
  • -
  • Tapleikir Íslands á síðustu tveimur stórmótum (Samtals 4)
  • 6 marka tap fyrir Króatíu á HM 2025 (26-32)
  • 1 marks tap fyrir Króatíu á EM 2026 (29-30)
  • 3 marka tap fyrir Danmörku á EM 2026 (28-31)
  • 1 marks tap fyrir Króatíu á EM 2026 (33-34)



Fleiri fréttir

Sjá meira


×