Forsetinn hótar lögsókn: „Vertu viðbúinn Noah“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 2. febrúar 2026 19:21 Trump hefur hótað að lögsækja Trevor. Samsett/EPA Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað að lögsækja grínistann Trevor Noah vegna brandara sem hann sagði á Grammy-verðlaunaathöfninni.
Grammy-verðlaunaathöfnin fór fram í gærkvöldi í Bandaríkjunum en meðal þeirra sem hrepptu verðlaun var íslenska tónlistarkonan Laufey. Suður-afríski grínistinn Trevor Noah fékk hlutverk kynnisins í sjötta skiptið. „Lag ársins - það eru Grammy-verðlaun sem allt tónlistarfólk vill næstum jafn mikið og Trump vill Grænland, sem er skiljanlegt því að eyja Epstein er horfin, hann þarf nýja eyju til að eyða tíma með Bill Clinton á,“ sagði Noah. Fjallað hefur verið um Jeffrey Epstein, viðskiptajöfur og barnaníðing, eftir að dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna tók til við að birta skjöl tengd rannsókn þeirra á máli hans. Trump er nefndur á nafn mörg hundruð sinnum í nýbirtum skjölum þar sem hann er ásakaður um að hafa brotið á stúlkum niður í þrettán ára aldur. Gerður er sá fyrirvari að ásakanirnar virðast hafa borist í aðdraganda bandarísku forsetakosninganna 2020. Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, kemur einnig fyrir í skjölunum meðal annars á ljósmyndum með Epstein. Hótar lögsókn Í kjölfar ummælanna tók Trump sig til og birti færslu á samfélagsmiðlinum sínum Truth Social þar sem hann sagði verðlaunin svo slæm að ekki væri hægt að horfa á útsendinguna. „Kynnirinn, Trevor Noah, hver sem hann er, er næstum eins slæmur og Jimmy Kimmel á ömurlegu Óskarsverðlaunahátíðinni. Noah sagði, RANGLEGA, um mig, að Donald Trump og Bill Clinton hefðu eytt tíma á Epstein-eyju. RANGT!!!“ skrifaði forsetinn. Vísaði hann í þáttastjórnandann Jimmy Kimmel en hlé var gert á framleiðslu þáttanna eftir ummæli Kimmels um Charlie Kirk sem var myrtur í fyrra. Til stóð að hætta að senda út þættina í kjölfar þrýstings frá bandarískum yfirvöldum. Trump fagnaði því þegar þáttur Kimmel var tekinn úr loftinu og sagði fleiri þáttastjórnendur vera næsta. Trump kallar Noah „algjöran lúser“ í færslunni og segir að hann ætti að hafa staðreyndir á hreinu. „Það lítur út fyrir að ég muni senda lögfræðinga mína til að lögsækja þennan aumingjalega, vesæla, hæfileikalausa kynni, og lögsækja hann fyrir væga summu,“ segir forsetinn. „Vertu viðbúinn Noah, ég ætla að skemmta mér að þér!“
Donald Trump Hollywood Bandaríkin Grammy-verðlaunin Laufey Lín Mest lesið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Lífið Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum Lífið Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Lífið Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Tónlist Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Lífið Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Lífið „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Lífið „Þetta snýst um líf og dauða“ Bíó og sjónvarp Edda með tárin í augunum Lífið Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu Lífið samstarf Fleiri fréttir Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Sjá meira