Ekki staðfest að veikindi fimm tengist listeríu í salati Lovísa Arnardóttir skrifar 3. febrúar 2026 11:35 Rannveig segir að fyrirhuguðum framkvæmdum í eldhúsinu á Vitatorgi verði flýtt og þar til að það verður opnað á ný verði samið við annan framleiðanda. Vísir/Ívar Fannar Reykjavíkurborg hefur fengið tilkynningu um veikindi fimm einstaklinga í kjölfar þess að listería fannst í salati við reglubundna sýnatöku í framleiðslueldhúsi borgarinnar á Vitatorgi. Ekki hefur verið staðfest að listería hafi olli veikindunum en það verður aðeins gert með sýnatöku.
Framleiðslueldhúsinu á Vitatorgi var lokað í gær eftir að bakterían Listeria monocytogenes fannst þar við reglubundna sýnatöku í salati sem framreitt var á þriðjudag í síðustu viku. Á Vitatorgi eru framleiddar meira en 900 máltíðir á degi hverjum sem fara ýmist í heimsendingu eða eru bornar fram í félagsmiðstöðvum og þjónustuíbúðum velferðarsviðs. Félagsmiðstöðvarnar sækja aðallega aldraðir. „Við höfum fengið upplýsingar um fimm einstaklinga sem eru með væg einkenni frá meltingarvegi. En það er þó ekkert hægt að fullyrða að veikindi séu vegna þessarar listeríu sem upp kom,“ segir Rannveig Einarsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Hún segir þurfa að taka sýni til að staðfesta sýkingu. „En við höfum ekki fengið neinar upplýsingar um alvarleg veikindi og vonum auðvitað að enginn veikist alvarlega.“ Staðfest á laugardag Hún segir listeríuna hafa fundist í salati sem var borið fram á þriðjudaginn í síðustu viku. Það hafi leikið grunur á því að listería hafi verið til staðar og það hafi fengist staðfesting á því á laugardaginn. Þau hafi strax haft samband við forstöðumenn félagsmiðstöðva og í samráði við heilbrigðiseftirlitið hafi verið ákveðið að loka eldhúsinu í gær. „Til að fyrirbyggja misskilning þá er enginn grunur um að það hafi verið smit í þeim mat sem fór út í gær. Við vildum bara hafa vaðið fyrir neðan okkur og vera algerlega viss um það að það kæmu ekki upp neinar sýkingar.“ Rannveig segir að vegna lokunar eldhússins verði röskun á framleiðslu. Það verði sendur út heitur matur í dag frá öðrum framleiðanda en í félagsmiðstöðvum verði hægt að fá samlokur og skyr næstu daga. Reykjavíkurborg vinni nú að því að semja við fyrirtæki um að framleiða mat fyrir félagsmiðstöðvarnar. „Borgarráð var búið að samþykkja í síðustu viku að fara í endurbætur og byggja upp nýtt eldhús á Vitatorgi. Þannig má kannski segja að þetta flýti þeim framkvæmdum. Við munum því ekki opna eldhúsið aftur fyrr en það er komið nýtt eldhús í Vitatorgi.“ Fylgjast með fólki áfram Einkenni vegna listeríu geta tekið allt að þrjár vikur að koma fram. Rannveig segir að vegna þess verði áfram fylgst náið með fólki. „Við brýnum fyrir fólki að láta strax vita og leita til læknis ef það verður vart við einkenni. En þetta eru bara varúðarráðstafanir hjá okkur. Við auðvitað hörmum að þetta veldur ákveðinni röskun en vonumst auðvitað til að það beri ekki á veikindum.“ Listería getur valdið matarsýkingum, einkum hjá viðkvæmum einstaklingum. Viðkvæmir einstaklingar eru aldraðir, ófrískar konur, ung börn og fólk með skert ónæmiskerfi. Einkenni geta komið fram allt að þremur vikum eftir neyslu. Mikilvægt sé að bregðast við finni fólk fyrir einkennum og leita strax til læknis. Einkenni geta verið mild flensueinkenni, vöðvaverkir, hiti og stundum ógleði og niðurgangur. Á vef Matvælastofnunar segir um listeríu: Listería er mjög útbreidd í náttúrunni og finnst í jarðvegi, plöntum, skólpi og þörmum bæði manna og dýra. Vegna gífurlegrar útbreiðslu bakteríunnar þá er erfitt að koma í veg fyrir mengun af hennar völdum í unnum matvörum. Dýr geta smitast af fóðri og frá dýrunum getur bakterían breiðst meira út í umhverfið. Dýr sem smituð eru af listeríu eru oft á tíðum einkennalausir smitberar. L. monocytogenes finnst oft í hráum matvælum en hún getur einnig fundist í elduðum mat ef um krossmengun er að ræða eftir hitameðhöndlunina. Þannig að bakterían getur fundist í ýmsum tegundum af matvælum eins og til dæmis reyktum og gröfnum fiski, hrámjólk, kjúklingi, kjöthakki, kjötáleggi og grænmeti.
Reykjavík Eldri borgarar Heilbrigðiseftirlit Matvælaframleiðsla Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Erlent Segir upp eftir tvær vikur í starfi Innlent Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Innlent Fleiri fréttir Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Sjá meira