Að byggja upp samfélag Pétur Björgvin Sveinsson skrifar 5. febrúar 2026 07:30 Samfélag er eitt fallegasta íslenska orðið. Það lýsir því sem skiptir öllu máli: að við tilheyrum, að við stöndum saman og að við búum í bæ þar sem öll finna að þau skipta máli. Þegar ég tók ákvörðun um að gefa kost á mér sem leiðtogi Viðreisnar í Kópavogi fann ég að drifkrafturinn var skýr, mig langar að byggja upp sterkara samfélag í Kópavogi. Samfélag sem umvefur alla íbúa bæjarins. Hvort sem fólk býr á Kársnesinu, í Hvömmunum, í Lindunum eða efri byggðum. Kópavogur sem ein heild Kópavogur er bær margra ólíkra hverfa, en hann á að vera ein heild: samtengdur, samheldinn og hlýr. Ég ólst upp í Grundunum og er fjórðu kynslóðar Kópavogsbúi. Kópavogur hefur gjörbreyst frá því að ég var að alast upp og bærinn stendur nú á tímamótum. Hann hefur vaxið hratt, samfélagið breyst og þarfir íbúa þróast. Þetta eru áskoranir en líka tækifæri. Eitt megineinkenni Viðreisnar er ábyrgur rekstur og að þora að takast á við flókin viðfangsefni. Tala fyrir kerfisbreytingum og klára málin. Það er eitt að tala um vandamálin, annað að leysa þau. Lausnir þurfa að vera raunhæfar og byggðar á traustum grunni. Ný kynslóð leiðtoga Verði ég leiðtogi Viðreisnar í Kópavogi mun ábyrgur rekstur og skynsamleg nýting fjármuna íbúanna vera mitt leiðarstef. Ég mun ekki veigra mér við að taka erfiðar ákvarðanir. Við eigum alltaf að spyrja okkur hvort ákvarðanir sem við tökum skili raunverulegum ávinningi fyrir samfélagið okkar. Hvort fjármunum bæjarins sé varið á réttan hátt. Ég vil tilheyra nýrri kynslóð leiðtoga. Kynslóð sem sameinar reynslu, fagmennsku og ferska nálgun. Ungt fólk er stór og vaxandi hluti Kópavogs og það er mikilvægt að rödd ungs fólks heyrist mun skýrar og þeirra áherslur fái hljómgrunn öllum bæjarbúum til hagsbóta. Grunnþjónusta sem virkar Ég hef átt ótal samtöl við íbúa bæjarins síðustu daga. Það sem fólk nefnir helst er að það sé skortur á samtali við íbúa. Að gjáin milli stjórnkerfisins og fólksins sé of breið. Leikskólamálin eru fólki ofarlega í huga, það er nauðsynlegt að kerfið sé sveigjanlegt en leikskólagjöldin eru of há. Þar verðum við að gera betur og lækka gjöldin. Við þurfum öflugra frístundastarf og áframhaldandi skjól fyrir ungt fólk í félagsmiðstöðvum bæjarins. Einnig nefnir íbúar að almenningssamgöngur milli hverfa séu ekki nægilegar og að tryggja þurfi betri þjónustu við íbúa. Við þurfum grunnþjónustu sem virkar, óháð hverfum. Þetta eru auðvitað algeng stef í sveitarstjórnarmálum og kemur líklega fáum á óvart. En þá skiptir öllu máli að vera með leiðtoga sem þorir að stinga á kýlið og fylgja málum eftir. Ég hlakka til að leiða Kópavog að sterkari, stoltari og hlýrri framtíð.Gerum þetta saman. Höfundur er býður sig fram til að leiða lista Viðreisnar í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Pétur Björgvin Sveinsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar