Handbolti

Beint af EM í toppslag: „And­legi hlutinn sem ég þarf að eiga við“

Aron Guðmundsson skrifar
Björgvin Páll í bronsleiknum gegn Króötum á EM þar sem að hann átti frábæra innkomu
Björgvin Páll í bronsleiknum gegn Króötum á EM þar sem að hann átti frábæra innkomu Vísir/Vilhelm

Björg­vin Páll Gústavs­son er mættur heim eftir EM í hand­bolta og á fyrir höndum stór­leik í kvöld með liði Vals gegn Haukum í Olís deildinni. Það getur verið krefjandi að skipta um gír eftir stór­mót en Björg­vin býr að mikilli reynslu frá fyrri árum.

„Ég er bara peppaður, þekki lítið annað. Hef gert þetta nítján sinnum áður, að fara beint í leik af stór­móti,“ segir Björg­vin Páll í sam­tali við Vísi. „Það er eftir­vænting hjá manni og ekki verra að leikurinn í kvöld er stór­leikur. Þetta er toppslagur og fínt að byrja bara á því.“

Þrátt fyrir að Vals­menn vermi toppsæti Olís deildarinnar um þessar mundir, með eins stigs for­skot á Aftur­eldingu og tveggja stiga for­skot á Hauka í þriðja sætinu, eru það gestirnir úr Hafnarfirðinum sem hafa haft yfir­höndina í leikjum liðanna til þessa á tíma­bilinu.

Liðin mættust síðast í október í fyrra, þá í bikarnum, í leik sem fór alla leið í víta­keppni og endaði með sigri Hauka.

„Haukar eru með frábært lið og vel að því komnir að vera búnir að sigra okkur í þessum tveimur leikjum á tíma­bilinu til þessa. Ég held líka að það sé kominn tími fyrir okkur núna til þess að snúa þessu við. Þetta eru tvö sterk lið sem hafa átt harðar rimmur síðustu ár. Við þurfum að gíra okkur í þetta og koma okkur al­menni­lega fyrir á toppi deildarinnar. Þetta verður hörku leikur eins og leikir þessara liða hafa verið til þessa á tíma­bilinu. Það að leikur okkar í bikarnum hafi farið alla leið í víta­keppni segir alla söguna varðandi það hversu jöfn þessi lið eru.“

Björg­vin Páll er nýkominn heim eftir að hafa tekið þátt á EM með ís­lenska lands­liðinu þar sem að liðið var nálægt því að vinna til verð­launa en tapaði leiknum um bronsið gegn Króötum og endaði því í fjórða sæti á mótinu sem er besti árangur Ís­lands á stór­móti síðan á EM 2010.

Úr EM búbblunni kemur Björg­vin Páll beint heim í al­vöruna í Olís deildinni, aðstæðurnar að mörgu leiti ólíkar þó svo að íþróttin sé sú sama.

„Þetta er öðru­vísi og maður er farinn að elda matinn sinn sjálfur aftur, það er kannski helsta breytingin. En auðvitað er þetta breyting og flestir leik­menn koma ör­lítið laskaðir frá svona ævintýri, annað hvort á líkama eða sál. Fyrir mig persónu­lega er það and­legi hlutinn sem ég þarf að eiga við. Bæði gagn­vart von­brigðunum að ná ekki að vinna medalíu á EM en á sama tíma þakk­læti og gleði yfir því að ná svona langt á mótinu. En maður hefur ekki tíma til að hugsa um það núna, það kemur kannski seinna en ekki fyrir leikinn í kvöld.“

Toppslagur Vals og Hauka í Olís deild karla í handbolta hefst klukkan 19:30 á N1-vellinum að Hlíðarenda í kvöld. Leiknum verður lýst í beinni textalýsingu hér á Vísi. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×