Frá læknamistökum til kerfisbaráttu - tryggingarfélag vill að ríkið borgi fyrst Bryndís Gyða Michelsen skrifar 9. febrúar 2026 08:31 Það er grimmur veruleiki að verða fyrir heilsutjóni vegna læknamistaka. En þegar sá aðili sem á að bæta tjónið – tryggingafélag læknisins, neitar að axla ábyrgð og sendir tjónþolann í hringi í kerfinu eykur það byrði tjónþolans enn frekar. Nýlega vannst mikilvægur sigur fyrir umbjóðanda Bótaréttar fyrir úrskurðarnefnd í vátryggingamálum. Málið varðar alvarleg mistök sjálfstætt starfandi læknis sem framkvæmdi ófrjósemisaðgerð og sinnti í kjölfarið engri eftirfylgni eða eftirmeðferð, með þeim afleiðingum að umbjóðandi okkar hlaut alvarlegt tjón. Tryggingafélag læknisins hafnaði bótaskyldu í upphafi. Úrskurðarnefndin sló bótaskyldu tryggingafélagsins fastri með úrskurði nefndarinnar nr. 362/2025[1]. Tryggingarfélagið hefur ákveðið una úrskurðinum en heldur þrátt fyrir það áfram að tefja málið með því að vísa ábyrgðinni yfir á ríkið. Atvik máls og upphafleg höfnun Málið er tvíþætt af því að það varðar bæði mistök sem áðurnefndur sérfræðilæknir gerði en einnig mistök sem gerð voru á Landspítala. Þessi umfjöllun snýr aðeins að vanrækslu sérfræðilæknisins sem var tryggður vegna starfa sinna hjá tryggingafélaginu sem um ræðir. Okkar skjólstæðingur leitaði til sérfræðilæknis í ófrjósemisaðgerð sem fyrr segir. Alvarlegir fylgikvillar komu fram í kjölfarið en þrátt fyrir ítrekaðar neyðarkallanir sjúklingsins sinnti læknirinn engri eftirfylgni og mat ástandið ranglega í gegnum síma. Afleiðingin var drep í eista og varanlegt líkamstjón sem hefði mátt koma í veg fyrir með réttum viðbrögðum. Tryggingafélag læknisins hafnaði bótaskyldu með vísan til þess að þar sem mistök hefðu einnig átt sér stað á Landspítalanum (LSH) í sama ferli, ætti umbjóðandi okkar að sækja allar sínar bætur til ríkisins, þ.e. Sjúkratrygginga Íslands (SÍ). Sigur vannst en baráttan heldur áfram Við kærðum þessa synjun tryggingafélagsins fyrir hönd umbjóðanda okkar. Í kæru okkar til úrskurðarnefndar í vátryggingamálum byggðum við á því að bótaskylda væri til staðar samkvæmt lögum um sjúklingatryggingu. Rökstuðningur okkar var skýr og reistur á tveimur meginstoðum laganna: 1.Vanræksla við eftirfylgni: Við héldum því fram að komast hefði mátt hjá tjóninu ef eftirmeðferð hefði verið hagað eins vel og unnt var, sbr. 1. tölul. 2. gr. laganna. Læknirinn sem framkvæmdi aðgerðina bar ábyrgð á eftirfylgni. Þrátt fyrir að umbjóðandi okkar hefði ítrekað samband og lýsti alvarlegum einkennum, var honum aldrei boðið að koma í skoðun. Athafnaleysi læknisins var bein orsök þess að ekki var brugðist við í tæka tíð. 2.Samábyrgð: Við áréttuðum að mistök sem kunna að hafa verið gerð á Landspítala útilokuðu á engan hátt ábyrgð læknisins. Sú afstaða var studd áliti landlæknis, sem taldi að bæði læknirinn og Landspítali hefðu ekki sinnt umbjóðanda okkar sem skyldi. Úrskurðarnefnd í vátryggingamálum féllst á öll okkar meginrök. Í úrskurðinum var staðfest að eftirmeðferð læknisins hefði verið ábótavant og að „rétt og tímabær skoðun [læknisins] hefði að öllum líkindum leitt til þess að unnt hefði verið að grípa fyrr inn í ferlið“. Nefndin tók sérstaklega fram að mistök annarra útilokuðu ekki bótaskyldu tryggingafélagsins. Niðurstaðan var því afdráttarlaus: Umbjóðandi okkar á rétt á bótum og fellst tryggingafélagið á það enda hefur það ekki nýtt sér úrræði þeim til handa að hafna niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar með formlegu erindi. Nýtt útspil: ,,Talaðu við ríkið” Maður skyldi ætla að málinu væri þar með lokið og tryggingafélagið myndi vinda sér í að bæta tjónið. Svo er ekki. Þrátt fyrir skýra og afdráttarlausa niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar um bótaskyldu vátryggingafélagsins, heldur félagið uppteknum hætti. Afstaða þeirra er enn sú að eðlilegast sé að umbjóðandi okkar fari í gegnum hið þunga og seinvirka kerfi SÍ, láti ríkið meta tjónið og greiða bætur og láti hið opinbera meta skiptingu skaðabótaábyrgðarinnar á milli sérfræðilæknisins og Landspítalans. Hvað býr að baki? Þessi afstaða stenst enga lagalega skoðun. Lög um sjúklingatryggingu veita tjónþola skýran rétt til að krefja vátryggingafélagið beint um bætur, óháð því hvort aðrir kunni að bera samábyrgð. Með því að vísa á SÍ er félagið í raun að reyna að koma sér undan kostnaði við lögboðið mat á tjóninu og velta þeirri vinnu yfir á ríkið. Slík framganga tefur málið verulega og eykur kostnað og álag á einstakling sem þegar hefur þurft að sækja rétt sinn fyrir úrskurðarnefnd og bera af því kostnað. Það er öfugsnúið að sjúklingur þurfi að standa straum af kostnaði við að fá fram réttmæta niðurstöðu til þess eins að mæta nýjum hindrunum þegar sigur er í höfn. Það er grundvallaratriði að tjónþolar þurfi ekki að berjast við tvö kerfi, fyrst til að ná fram réttlæti og svo til að fá því framfylgt. Afleiðingin bitnar eingöngu á tjónþolanum. Meðferð mála hjá SÍ tekur almennt mun lengri tíma en uppgjör hjá tryggingafélögum. Með því að neita að framkvæma mat og krefjast þess að farin verði krókaleið í gegnum ríkið virðist félagið meðvitað tefja greiðslu bóta til einstaklings sem hefur þegar þurft að bera lögfræðikostnað til að fá rétt sinn viðurkenndan. Við slíka málsmeðferð er ekki unað og verður nú óskað eftir því hjá þar til bærum sérfræðingum að leggja mat á tjónið svo unnt verði að krefja tryggingafélagið um réttmætar skaðabætur. Hvort tryggingafélagið haldi áfram uppi þeim vörnum að framkominni fjárkröfu að skjólstæðingur okkar þurfi fyrst að sækja á ríkið verður áhugavert að fylgjast með. Höfundur er lögmaður hjá Bótarétti og Atlas lögmönnum. [1] https://nefndir.is/wp-content/uploads/SAMANTEKT-URSKURDA-2025-8.1.2026.pdf sjá bls. 573-574. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dómsmál Frjósemi Heilbrigðismál Mest lesið Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Skoðun Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Sjá meira
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun