Fá sálfræðitíma en vilja bætur Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 13. febrúar 2026 11:07 Apríl 1967, vöggustofa Thorvaldsensfélagsins við Dyngjuveg. Lítið barn á labbi í svefnherbergi elstu barnanna, þar sem rimlarúm eru með fram veggjum. Ljósmyndasafn Reykjavíkur Reykjavíkurborg hyggst greiða fyrir tíu sálfræðitíma fyrir þá sem vistaðir voru á Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins árin 1974 til 1979. Í skýrslu um starfsemina er ekki hægt að fullyrða að börnin hafi sætt illri meðferð en þó hafi ýmislegt verið ábótavant. Nokkur þeirra hafa biðlað til forsætisráðherra um sanngirnisbætur.
Sálfræðiþjónustan er ætluð þeim sem voru vistaðir á vöggustofunni árin 1974 til 1979. Þetta er meðal aðgerða sem borgarráð samþykkti í kjölfar útgáfu skýrslu nefndar um starfsemi vöggustofunnar. Tvær nefndir voru skipaðar til að taka fyrir starfsemi Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins, annars vegar árin 1949 til 1973 og hins vegar árin 1974 til 1979. Fyrri nefndin taldi það hafið yfir allan vafa að vera barnanna á vöggustofunni hefði umtalsverð áhrif á líf þeirra en þau lifðu almennt skemur en jafnaldrar þeirra og voru líklegri til að fara á örorku. Seinni nefndin komst hins vegar að því að ekki væri hægt að fullyrða það í skilningi laga að börnin sættu illri meðferð meðan á dvöl þeirra stóð. Þau lifðu þó einnig almennt skemur og voru líklegri til að fara á örorku. Tíu sálfræðiviðtöl Reykjavíkurborg hefur nú samið um sálfræðiþjónustu fyrir börnin í seinni hópnum, það er börnin sem dvöldu á vöggustofunum árin 1974 til 1979. Þeim er bent á að hafa samband við Reykjavíkurborg og óska eftir þjónustunni. Þau hyggjast greiða fyrir allt að tíu sálfræðiviðtöl fyrir hvern einstakling samkvæmt fréttatilkynningu. Þetta er álíka úrræði og boðið var upp á í kjölfar fyrri skýrslunnar en þar stóðu einnig til boða tíu fríir sálfræðitímar. Biðla til forsætisráðherra Þá hafa fjórir þeirra sem dvöldu annað hvort á Vöggustofunni Hlíðarenda eða Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins sent Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra bréf þar sem óskað eftir sanngirnisbótum. Í bréfinu er bent á að rúmlega 1500 börn voru vistuð á vöggustofunum og áðurnefndar skýrslur sýni fram á að afleiðingar starfseminnar hafi reynst mjög alvarlegar. Þær afleiðingar hefðu til að mynda verið útlistaðar þegar Katrín Jakobsdóttir, þáverandi forsætisráðherra, talaði fyrir frumvarpi um almennar sanngirnisbætur. Ósjálfbjarga börn hafi verið svipt tengslum við foreldra sína og meðhöndluð sem hlutir. Eftir að lög um sanngirnisbætur féllu úr gildi í árslok 2023 hafi engar lagareglur um meðferð umsókna um sanngirnisbætur verið til staðar. Með bréfinu vilja þau hvetja Kristrúnu til að greiða þeim sem dvöldu á vöggustofunum sanngirnisbætur. Þá vilja þau fá áheyrn við útfærslu laga og reglna um efnið til að koma á framfæri reynslu sinni og sjónarmiðum.
Vöggustofur í Reykjavík Reykjavík Borgarstjórn Börn og uppeldi Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Innlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira