Kínverjarnir selja sig út úr Elkem Árni Sæberg skrifar 13. febrúar 2026 10:39 Járnblendisverksmiðja Elkem á Íslandi er á Grundartanga. Vísir/Vilhelm Kínverska félagið Bluestar hefur samið um sölu á öllum eignarhlut sínum í norska félaginu Elkem AS, sem rekur meðal annars járnblendisverksmiðju á Grundartanga. Kaupverðið verður allt greitt með einni af þremur deildum Elkem, sem verður klofin frá félaginu, og enginn peningur fer á milli aðila. Breytingarnar hafa engin áhrif á rekstur Elkem á Grundartanga.
Bluestar er fyrir viðskiptin meirihlutaeigandi Elkem með 52,9 prósenta eignarhlut. Aðrir eigendur eru að mestu norskir lífeyris- og fjárfestingarsjóðir, sem fara með miklum mun minni eignarhluti en kínverska félagið. Þannig er Folketrygdfondet, fjárfestingarsjóður almannatrygginga Noregs, næststærsti hluthafinn með 3,65 prósenta hlut. Engin áhrif á Grundartanga Samkvæmt fréttatilkynningu frá Elkem verður kaupverðið allt greitt með því að Bluestar heldur eftir svokallaðri silíkonadeild félagsins (e. silicones). Silíkonar eru framleiddir úr mikið unnum kísli og eru notaðir í nánast allt milli himins og jarðar, allt frá tölvuíhlutum til sjampós. Hinar tvær deildir Elkem, sem eftir standa, eru sílíkonvörur (e. silicon products), sem framleiðir meðal annars kísilmálm og kísiljárn, og kolefnisvörur (e. carbon solutions). Rekstur Elkem á Íslandi tilheyrir þeirri fyrrnefndu og því hafa breytingarnar engin áhrif á reksturinn hér á landi, að sögn Álfheiðar Ágústsdóttur, forstjóra Elkem á Íslandi. Gagnist öllum hluthöfum „Eftir yfirgripsmikið mat á öllum tiltækum valkostum er það staðföst trú Elkem að gerð samningsins skili hagstæðustu niðurstöðunni fyrir bæði silíkonadeildina og fyrirtækið, sem að lokum gagnast öllum hluthöfum. Sem stærsti hluthafi Elkem og fyrrverandi eigandi hluta af eignum silíkonadeildarinnar býr Bluestar yfir djúpstæðri þekkingu á silíkonadeild Elkem og hefur það að stefnu að þróa stöðu sína í virðiskeðju kísiliðnaðarins,“ segir í fréttatilkynningu Elkem. Þá segir að salan sé háð samþykki hluthafafundar, samþykki lánardrottna og öðrum hefðbundnum fyrirvörum.
Stóriðja Hvalfjarðarsveit Kína Noregur Mest lesið Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fá að kaupa Pei og Motus Viðskipti innlent Fleiri fréttir Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Sjá meira