Vegatollar Borgarlínu - Refsiaðgerð gegn venjulegu fólki Sigfús Aðalsteinsson, Baldur Borgþórsson og Hlynur Áskelsson skrifa 14. febrúar 2026 14:02 Í Reykjavík vofir martröð yfir borgarbúum: Innleiðing vegatolla til að fjármagna Borgarlínu. Svonefnt „hraðvagnakerfi“ sem mun reyndar LENGJA ferðatíma notenda strætó, ekki stytta. Hversu galið er það, að bifreiðareigendur eigi að borga fyrir fáránlegt kerfi sem þjónar fáum og sama tíma rústar þeirra eigin ferðamáta – ferðamáta sem yfir 90% kjósa að nota? Fólk verður þvingað til að borga fyrir þetta skemmdarverk úr eigin vasa. Með vegatollum. Samgöngusáttmálinn svokallaði, felur í sér þessa tolla sem er hrein refsing fyrir almenning. Almennig sem treystir á bílinn vegna rysjótts veðurs, mikillar atvinnuþátttöku og skorts á þjónustu í nærumhverfi sem kemur til af endalausum mistökum í skipulagsmálum á liðnum árum. Skipulagsmál sem virðast ekki lengur snúast um velferð borgarbúa – heldur hagsmuni fjárfesta. Innheimta vegatolla verður í fyrstu á helstu stofnbrautum, með hæstu gjöldum á álagstímum – einmitt þegar fólk þarf að keyra til vinnu eða skóla.Vegatollar munu nema hundruðum króna fyrir hverja einustu ferð, þúsundir króna á dag. Á ári hverju mun þetta því nema hundruðum þúsunda fyrir venjulega fjölskyldu. Fjárfestar fá sinn skerf eins og venjulega – Velferð þeirra er tryggð því þeir stjórna þessu! Ekki má heldur gleyma að fyrir liggur stórfelld hækkun fargjalda fyrir notendur strætó – Þeirra hagur er því húfi líka! Segjum Nei takk og snúum okkur að raunhæfum lausnum. Lausnin – Okkar Borg Sleppum Borgarlínu - Frítt í strætó – Spörum milljarða - Vísir Breytum þessari martröð í fallega framtíðarsýn – Framtíð sem bætir daglegt líf allra. Við höfum áður kynnt frábærar lausnir sem munu tryggja þessa framtíðarsýn og raungera - sjá viðhengi hér ofan. Verjum frelsi okkar til að velja sjálf þann ferðamáta sem kjósum og teljum þjóna okkur best.Frelsi verður ekki metið til fjár - Frelsið er ómetanlegt! Veljum frelsi – Veljum Okkar Borg! Höfundar skipa efstu þrjú sætin framboðslista Okkar Borg í komandi borgarstjórnarkosningum þann 16. maí nk. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Okkar borg Samgöngur Reykjavík Borgarlína Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Sjá meira
Í Reykjavík vofir martröð yfir borgarbúum: Innleiðing vegatolla til að fjármagna Borgarlínu. Svonefnt „hraðvagnakerfi“ sem mun reyndar LENGJA ferðatíma notenda strætó, ekki stytta. Hversu galið er það, að bifreiðareigendur eigi að borga fyrir fáránlegt kerfi sem þjónar fáum og sama tíma rústar þeirra eigin ferðamáta – ferðamáta sem yfir 90% kjósa að nota? Fólk verður þvingað til að borga fyrir þetta skemmdarverk úr eigin vasa. Með vegatollum. Samgöngusáttmálinn svokallaði, felur í sér þessa tolla sem er hrein refsing fyrir almenning. Almennig sem treystir á bílinn vegna rysjótts veðurs, mikillar atvinnuþátttöku og skorts á þjónustu í nærumhverfi sem kemur til af endalausum mistökum í skipulagsmálum á liðnum árum. Skipulagsmál sem virðast ekki lengur snúast um velferð borgarbúa – heldur hagsmuni fjárfesta. Innheimta vegatolla verður í fyrstu á helstu stofnbrautum, með hæstu gjöldum á álagstímum – einmitt þegar fólk þarf að keyra til vinnu eða skóla.Vegatollar munu nema hundruðum króna fyrir hverja einustu ferð, þúsundir króna á dag. Á ári hverju mun þetta því nema hundruðum þúsunda fyrir venjulega fjölskyldu. Fjárfestar fá sinn skerf eins og venjulega – Velferð þeirra er tryggð því þeir stjórna þessu! Ekki má heldur gleyma að fyrir liggur stórfelld hækkun fargjalda fyrir notendur strætó – Þeirra hagur er því húfi líka! Segjum Nei takk og snúum okkur að raunhæfum lausnum. Lausnin – Okkar Borg Sleppum Borgarlínu - Frítt í strætó – Spörum milljarða - Vísir Breytum þessari martröð í fallega framtíðarsýn – Framtíð sem bætir daglegt líf allra. Við höfum áður kynnt frábærar lausnir sem munu tryggja þessa framtíðarsýn og raungera - sjá viðhengi hér ofan. Verjum frelsi okkar til að velja sjálf þann ferðamáta sem kjósum og teljum þjóna okkur best.Frelsi verður ekki metið til fjár - Frelsið er ómetanlegt! Veljum frelsi – Veljum Okkar Borg! Höfundar skipa efstu þrjú sætin framboðslista Okkar Borg í komandi borgarstjórnarkosningum þann 16. maí nk.
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar