„Eins og handboltaþjálfari sem er á bekknum“ Agnar Már Másson og Rafn Ágúst Ragnarsson skrifa 15. febrúar 2026 17:11 Lilja Alfreðsdóttir var kjörinn nýr formaður Framsóknarflokksins og hafði betur gegn Ingibjörgu Isaksen. Vísir/Lýður Lilja Alfreðsdóttir, nýr formaður, Framsóknarflokksins segist ætla að vinna náið með þingflokknum þrátt fyrir að eiga ekki sæti þar sjálf. Hún líkir því að vera handboltaþjálfari. Þingflokksformaðurinn laut í lægra haldi í formannskjörinu. „
Mér líður mjög vel, ég er svo tilbúin í þetta verkefni,“ sagði Lilja í samtali við Rafn Ágúst, fréttamann Vísis, eftir að úrslit höfðu verið tilkynnt á Hótel Hilton við Suðurlandsbraut á fjórða tímanum eftir hádegi. Lilja hlaut 58 prósent atkvæða af sex hundruð atkvæðum. Hún sagði að fyrsta skref nýs formanns myndi vera að hitta þingflokk Framsóknar á mánudag en Lilja viðurkennir að það sé óvenjulegt að hún sé sjálf ekki á þingi. Lilja hyggst eiga í nánu samstarfi með þingflokknum en Ingibjörg Isaksen, mótframbjóðandi hennar, er einmitt formaður þingflokksins. „Ég náttúrulega gjörþekki þingið. Ég verð bara eins og handboltaþjálfari sem er á bekknum en er að vinna með sínu liði,“ bætti nýkjörni formaðurinn við, sem er fyrst kvenna til að vera kjörin formaður af flokksþingi. Lilja Alfreðsdóttir var kjörin ný formaður Framsóknarflokksins í dag. Ingibjörg Isaksen, sem stendur þarna á bakvið Lilju, laut í lægra haldi.Vísir/Lýður Lilja segir þetta þó ekki í fyrsta sinn í stjórnmálasögu landsins sem formaður flokksins er utan þings og nefnir Ragnar Arnaldsson, sem var formaður Alþýðubandalagsins utan þings um þriggja ára skeið frá 1968 þar til hann tók þingsæti á ný 1971. Stjórnmálafræðingur sem Vísir ræddi við í dag líkti því við akkilesarhæll að formaður flokks væri ekki sjálfur á þingi. „Hressandi barátta“ Formannsskipti hjá Framsóknarflokknum hafa verið fremur dramatísk það sem af er þessari öld, til dæmis þegar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, nú formaður Miðflokksins, tók við formennsku Framsóknar 2009 og svo þegar Sigurður Ingi tók við af honum eftir sigur 2016. Ingibjörg nefndi í samtali við Sýn í dag að „alls konar hafi gengið á“ í kosningabaráttunni. „Mér fannst þetta mjög hressandi barátta,“ segir Lilja. „Við vorum auðvitað að ræða málefni og hvernig við getum bætt samfélag okkar, það skiptir auðvitað mestu máli. Hér voru auðvitað ólíkir frambjóðendur og ég fékk skýrt umboð til þess að leiða Framsóknarflokkinn inn í nýjan Framsóknaráratug.“ Sjá einnig: Flokksþing Framsóknar 2026. „Erum að undirbúa næstu kosningar“ Hvernig Framsóknarformaður telur þú þig munu vera? „Ég hef auðvitað mjög skýra sýn fyrir Ísland. Ég vil auðvitað að hér séu aukin lífskjör í landinu. Mér er mjög annt um það að unga fólkinu okkar takist að reisa hér hagkvæmari hús eða eignast íbúð. Og ég var að kynna hér í ræðu minni lífskjarasáttmála fyrir ungt fólk sem unga fólkið hér í flokknum er að fara að vinna með mér,“ segir hún. „Þannig að við erum að undirbúa næstu kosningar.“
Flokksþing Framsóknar 2026 Framsóknarflokkurinn Alþingi Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Bein útsending: Lilja formaður eftir spennandi flokksþing Innlent „Við erum áratugum of sein“ Innlent Lilja Alfreðsdóttir er nýr formaður Framsóknarflokksins Innlent Veiktist er hann reyndi að afsanna Havana-heilkennið Erlent „Ég er heppin að hafa ekki brotnað“ Innlent „Það gekk alls konar á en ég er sátt við mína kosningabaráttu“ Innlent „Eins og handboltaþjálfari sem er á bekknum“ Innlent Obama um apamyndbandið: Ákveðin „trúðasýning“ og skortur á sómakennd Erlent „Hrækjandi drullu eins og maður sé að steypa án grímu“ Innlent Drápu þúsundir í „fordæmalausri“ ofbeldisöldu Erlent Fleiri fréttir Ritari og varaformaður kjörnir: Báðar Liljur utan þings Gómaður með hamar, hnífa og þýfi „Eins og handboltaþjálfari sem er á bekknum“ „Það gekk alls konar á en ég er sátt við mína kosningabaráttu“ Lilja Alfreðsdóttir er nýr formaður Framsóknarflokksins Áþreifanleg eftirvænting eftir nýja formanninum Formaður Bændasamtakanna hefur aldrei orðið hræddur við tré „Erfitt fyrir formann að taka við sitjandi utan þings“ Bein útsending: Lilja formaður eftir spennandi flokksþing „Við erum áratugum of sein“ „Margt jákvætt að gerast en allir á tánum“ Mikil spenna fyrir formannskjör Framsóknarflokksins „Ég er heppin að hafa ekki brotnað“ Öryggi, heilbrigðismál, Evrópa og efnahagur á Sprengisandi Tölvuárás á Grund: Afrituðu gögn um tugi þúsunda manns Rósin segir sig úr fulltrúaráði Samfylkingarinnar Ný samræmd próf lögð fyrir Framsókn þurfi að þora að svara rangfærslum og hálfsannleik popúlista „Hrækjandi drullu eins og maður sé að steypa án grímu“ Kjartan er kominn heim til Íslands Aldrei fleiri útskrifast frá Bifröst Gagnrýnir hversu seint og illa endurreisn Grindavíkur gengur Íslendingar stemmningsfólk sem taki öllum gleðidögum fagnandi Bein útsending: Sigurður Ingi ávarpar Framsóknarmenn í síðasta sinn sem formaður Segir einkaðila ekki hafa fengið svör í marga mánuði Ánægja með bæjarstjórann en Sjálfstæðismenn með mest fylgi Uppnám á bráðamóttökunni og seinagangur í Grindavík Fluttur á sjúkrahús eftir líkamsárás í Grafarvogi WhatsApp-skilaboð Auðuns til konunnar ekki metin gild Safnstjórinn segir þessa flugvél merkasta gripinn Sjá meira