Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina Samúel Karl Ólason skrifar 19. febrúar 2026 16:52 Svona eiga nýjar forsetaflugvélar Bandaríkjanna að líta út. Flugher Bandaríkjanna Flugher Bandaríkjanna hefur opinberað hvernig nýjar forsetaflugvélar ríkisins eiga að líta út. Þær verða bláar, rauðar og hvítar, með dass af gulli, eins og Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, lagði til á sínu fyrra kjörtímabili.
Boeing vinnur að því að breyta tveimr 747-800 þotum sem forstaflugvélar og munu þær þá kallast VC-25B. Þar að auki verður gerð ein til viðbótar af gerðinni 747-8i, samkvæmt AP-fréttaveitunni. The Warzone segir að nokkrar af þotum flughersins sem notaðar eru til að flytja háttsetta herforingja og embættismenn séu þegar komnar í nýja haminn. Flugvélarnar verða dökkbláar að neðan en hvítar að ofan. Um þær miðjar verða svo rendur, ein gulllituð og tvær rauðar með hvítu á milli. Þá verður fáni Bandaríkjanna á stéli flugvélanna. Þessa liti tilkynnti Trump á sínu fyrra kjörtímabili en þá vakti athygli að litirnir voru mjög svo líkir litum einkaflugvélar hans sjálfs, sem gjarnan er kölluð „Trump Force One“. Í rauninni eru þetta sömu litirnir en þeim hefur verið snúið við. Trump Force One var einnig með blaktandi bandarískan fána á stélinu. Einkaflugvél Donalds Trump, sem gjarnan er kölluð Trump Force One.Creative commons/Tomás Del Coro Gömlu flugvélarnar eru ljósbláar að neðan og hvítar að ofan og stóð til að hafa nýju flugvélarnar í sömu litum Rannsókn leiddi í ljós að litabreytingin myndi auka kostnað og tefja afhendingu forsetaflugvélanna. Joe Biden felldi litabreytinguna úr gildi í mars 2023. Í síðasta mánuði ítrekaði Trump svo að hann ætlaði að láta breyta litum flugvélarinnar. „Við viljum öflugan bláan. Ekki barnabláan,“ sagði Trump. Svona hafa forsetaflugvélar Bandaríkjanna litið út um árabil.AP/Arnd Wiegmann Frá því hann tók aftur við embætti forseta Bandaríkjanna hefur Trump lagt mikið kapp á að setja stílbragð sitt á ýmislegt sem tengist Hvíta húsinu og embættinu. Stór hluti Hvíta hússins hefur til að mynda verið rifinn og stendur til að reisa stærðarinnar veislusal á lóðinni. Hvíta húsið hefur þar að auki verið skreytt með gulli á víð og dreif. Þar að auki hefur Trump sett nafn sitt á fjölmörg hús og annað í eigu bandaríska ríkisins. „John F. Kennedy Memorial Center for the Performing Arts“ heitir til að mynda núna „The Donald J. Trump and The John F. Kennedy Memorial Center for the Performing Arts“. Friðarstofnun Bandaríkjanna, sem Trump lét loka snemma í seinni forsetatíð sinni, kallast nú „Donald J. Trump United States Institute of Peace“. Ný og umdeild tegund nýrra herskipa mun kallast „Trump-class U.S.S. Defiant“ og þá eiga nýjust herþotur Bandaríkjanna að kallast F-47 en hann er 45. og 47. forseti Bandaríkjanna. Auðugir menn sem vilja flytja til Bandaríkjanna geta keypt sér „Trump gullkortið“ fyrir milljón dala. Þar að auki ætlar Trump að stofna sparnaðarreikninga fyrir börn í Bandaríkjunum en þeir reikningar munu kallast „Trump Accounts“. Þá kallast ný opinber síða þar sem fólk á að geta keypt ódýrari lyf að kallast „TrumpRx“.
Bandaríkin Donald Trump Fréttir af flugi Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira