Átta konur eru í slökkviliðum í Árnessýslu Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 21. febrúar 2026 13:05 Pétur Pétursson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu á fundinum þar sem hann kynnti starfsemi slökkviliðsins. Magnús Hlynur Hreiðarsson Um 165 slökkviliðsmenn starfa hjá Brunavörnum Árnessýslu á sjö slökkviliðsstöðvum en nánast allir í hlutastörfum. Átta konur eru í liðinu. Slökkvilið kemur nánast að öllum aðgerðum í sýslunni og oftast þegar sérsveitin er kölluð til.
Pétur Pétursson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu var nýlega gestur á opnum fundi D-listans í Árborg þar sem hann fór yfir starfsemi slökkviliðanna í Árnessýslu en sjö slökkviliðsstöðvar eru í sýslunni í átta sveitarfélögum og vinna slökkviliðsmenn á þeim, sem ein liðsheild. Höfuðstöðvar slökkviliðsins eru í Björgunarmiðstöðinni á Selfossi þar sem 16 fastir starfsmenn eru alltaf til taks. Störf slökkviliðsins eru æði fjölbreytt eins og kom fram hjá Pétri. „Það er í rauninni alveg sama hvað kemur upp á, slökkviliðið er alltaf kallað til, það er meira að segja í flestum sérsveitaaðgerðum, sem eru því miður að verða tíðari á okkar svæði með auknum mannskap, slökkviliðið er alltaf á bak við það líka,” sagði Pétur. Hér sést starfssvæði Brunavarna Árnessýslu mjög vel á kortinu.Magnús Hlynur Hreiðarsson Pétur segir að það sé stundum í umræðunni að það sé miklu líklegra að það kvikni í rafmagnsbílum en öðrum bílum en hann segir það ekki rétt. „Það var Tesla, sem brann hjá okkur fyrir löngu síðan út frá einmitt batteríum en það kviknar í dag miklu oftar í bílum, sem eru að brenna jarðefnaeldsneyti og eldur í rafmagnsbíl svo lengi, sem það er ekki batteríið sem er að brenna er ekkert öðruvísi en eldur í venjulegum bíl og er slökktur með sama hætti,” sagði Pétur. Samvinna viðbragðsaðila er mjög mikilvæg og hefur það fyrirkomulag reynst einstaklega vel.Magnús Hlynur Hreiðarsson Samvinna á milli allra viðbragðsaðila er mjög mikilvæg og eitt af aðaleinkennum Brunavarna Árnessýslu segir Pétur. „Við erum svo heppin að við eigum fullt af öflugu björgunarsveitarfólki úti um allt í sýslunni okkar og við reynum eins og við getum að búa til sameiginlegar æfingar þar. Fyrir til dæmis flugeldasölu þá bjóðum við upp á þjálfun í notkun slökkvitækja til allra slökkviliðsmanna í sýslunni,” sagði Pétur. Átta konur eru í slökkviliðum Brunavarna Árnessýslu.Aðsend Auk þess æfa slökkviliðin reglulega í virkjunum, auk annarra æfinga hér og þar í sýslunni. Fram kom hjá Pétri að það sé alltaf mikil aðsókn í hlutastörfin í slökkviliðinu, aðallega hjá ungum karlmönnum en að það séu þrátt fyrir það nokkrar konur í slökkviliðum sýslunnar. Að sjálfsögðu fékk Pétur gott klapp eftir kynninguna á starfsemi Brunavarna Árnessýslu. Verkefni Brunavarna Árnessýslu eru mjög fjölbreytt.Aðsend
Árborg Slökkvilið Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira