Fjórir sinueldar á sólarhring: „Við skulum bara leggjast á bæn og vona að það komi snjór“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa 22. febrúar 2026 13:20 Frá sinueldinum á Kjalarnesi. Aðsend Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur slökkt í fjórum sinueldum á innan við sólahring. Ekki hefur ringt né snjóað í lengri tíma á höfuðborgarsvæðinu. „Það er bara búið að vera óvenju þurrt eins og fólk hérna í Reykjavík veit og hérna, það er ekki kominn dropi úr lofti hérna í langan tíma. Gróðurinn er þurr, skrælnar og þá er alltaf hætta á gróðureldum,“ segir Stefán Már Kristinsson, varðstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, í hádegisfréttum Bylgjunnar. Klukkan hálf þrjú í gær kviknaði sinueldur á landi Mela á Kjalarnesi. Eldurinn barst í heyrúllur en engin hætta var talin steðja að mannvirkjum. Í nótt kviknaði annar sinueldur í Norðlingaholti og enn annar við Vífilsstaðavatn í Garðabæ um sama leyti. Veistu meira um málið? Áttu myndir frá brunanum eða störfum slökkviliðs? Við tökum við ábendingum hér. Sá fjórði kviknaði á Reykjavíkurflugvelli á ellefta tímanum í morgun. „Við erum bara að koma úr einum eldi. Það voru reyndar flugvallarstarfsmenn sem náðu að slökkva hann núna en það var minni háttar. En hættan er samt alltaf til staðar,“ segir Stefán. „Fólk á allavega ekki að henda sígarettustubbunum einhvers staðar út í gras eða í náttúruna og ekki vera kveikja elda eða kveikja í rusli einhvers staðar þar sem hætt er á að það breiðist út. Það segir sig nokkuð sjálft.“ Stefán er bjartsýnn um að það fari að rigna og þá komi ekki upp jafn mörg tilfelli. „Við skulum bara leggjast á bæn og vona að það komi snjór eða rigning.“ Slökkvilið Reykjavík Gróðureldar á Íslandi Gróðureldar Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira
„Það er bara búið að vera óvenju þurrt eins og fólk hérna í Reykjavík veit og hérna, það er ekki kominn dropi úr lofti hérna í langan tíma. Gróðurinn er þurr, skrælnar og þá er alltaf hætta á gróðureldum,“ segir Stefán Már Kristinsson, varðstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, í hádegisfréttum Bylgjunnar. Klukkan hálf þrjú í gær kviknaði sinueldur á landi Mela á Kjalarnesi. Eldurinn barst í heyrúllur en engin hætta var talin steðja að mannvirkjum. Í nótt kviknaði annar sinueldur í Norðlingaholti og enn annar við Vífilsstaðavatn í Garðabæ um sama leyti. Veistu meira um málið? Áttu myndir frá brunanum eða störfum slökkviliðs? Við tökum við ábendingum hér. Sá fjórði kviknaði á Reykjavíkurflugvelli á ellefta tímanum í morgun. „Við erum bara að koma úr einum eldi. Það voru reyndar flugvallarstarfsmenn sem náðu að slökkva hann núna en það var minni háttar. En hættan er samt alltaf til staðar,“ segir Stefán. „Fólk á allavega ekki að henda sígarettustubbunum einhvers staðar út í gras eða í náttúruna og ekki vera kveikja elda eða kveikja í rusli einhvers staðar þar sem hætt er á að það breiðist út. Það segir sig nokkuð sjálft.“ Stefán er bjartsýnn um að það fari að rigna og þá komi ekki upp jafn mörg tilfelli. „Við skulum bara leggjast á bæn og vona að það komi snjór eða rigning.“
Veistu meira um málið? Áttu myndir frá brunanum eða störfum slökkviliðs? Við tökum við ábendingum hér.
Slökkvilið Reykjavík Gróðureldar á Íslandi Gróðureldar Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira