Selja húsnæði Vélfags á Ólafsfirði Kjartan Kjartansson skrifar 24. febrúar 2026 13:56 Frá verkstæði Vélfags að Múlavegi 18 á Ólafsfirði sem nú hefur verið selt með fyrirvara. Fasteignasalan Hvammur Verkstæði tæknifyrirtækisins Vélfags á Ólafsfirði hefur verið selt með fyrirvara. Fasteignasali segir að samþykki bæði lánastofnunar og utanríkisráðuneytis þurfi áður en salan getur gengið í gegn.
Húsnæði Vélfags á Múlavegi 18 á Ólafsfirði var auglýst til sölu fyrir 65 milljónir króna í haust. Kaupandi að húsinu er nú fundinn með fyrirvara um fjármögnun. Vélfag, sem framleiðir ýmsan tækjabúnað fyrir sjávarútveg, var stofnað á Ólafsfirði fyrir um þrjátíu árum. Fjármögnun er þó ekki eini fyrirvarinn á sölunni því bæði utanríkisráðuneytið og Arion banki þurfa að gefa grænt ljós á viðskiptin í ljósi viðskiptaþvingana sem aðaleigandi Vélfags sætir vegna ætlaðra tengsla við svonefndan skuggaflota Rússa. Vélfag framleiðis ýmsan tækjabúnað tengdan sjávarútvegi. Starfsemi Vélfags hefur legið niðri um margra mánaða skeið eftir að Arion banki frysti fjármuni þess á grundvelli viðskiptaþvingana Evrópusambandsins gangvart Rússlandi síðasta sumar. Héraðssaksóknari gerði húsleit hjá Vélfagi og handtók lykilstjórnendur í síðasta mánuði í tengslum við rannsókn á meintum brotum gegn refsiaðgerðunum. Björn Davíðsson, fasteignasali hjá Hvammi sem annast söluna, segir söluferlið enn í gangi og að það ætti að skýrast á næstu tveimur til þremur vikum hvort hún gangi eftir. Hann segir að leyfi hafi fengist fyrir sölu á húsnæði Vélfags að Baldursnesi á Akureyri í fyrra eftir fjármunir félagsins voru frystir. Vélfag hefur haft starfsemi í húsnæðinu að Múlavegi frá árinu 2012, að því er kom fram í frétt Héðinsfjarðar, fréttavefs Fjallabyggðar, í haust. Hæstiréttur ætlar að taka fyrir mál Vélfags og Ivans Kaufmann, meirihlutaeiganda fyrirtækisins, sem krefjast þess að utanríkisráðuneytið aflétti frystingu fjármuna þess.
Viðskiptaþvinganir gegn Vélfagi Fasteignamarkaður Fjallabyggð Evrópusambandið Rússland Tengdar fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Lögmaður stofnenda Vélfags segir að þeim sé haldið utan við fyrirætlanir stjórnarformanns þess. Þá hafi þeir ekki óskað eftir því að eignir væru fjarlægðar úr starfsstöðum félagsins. Staðhæfingar stjórnarformanns og lögmanns Vélfags í fjölmiðlum séu rangar. 30. janúar 2026 15:58 Kannast ekki við tilraunir til að stofna nýtt Vélfag Stjórnarformaður Vélfags segist ekki hafa beinar upplýsingar um að reynt hafi verið að stofna nýtt félag fyrir starfsemina eftir að fjármunir þess voru frystir. Hann hafi fjarlægt tölvur úr höfuðstöðvum fyrirtækisins að beiðni eigenda þess. Lögmaður Vélfags segir fréttir um slíkt „þvælu“. 29. janúar 2026 14:49 Unnu að því að stofna „Vélfag 2.0“ og tölvur með teikningum fjarlægðar Lykilstjórnendur hjá Vélfagi hafa unnið að því að halda starfsemi gangandi í nýju félagi með því að kaupa búnað þess ódýrt. Þá hafa þeir fjarlægt tölvur úr húsnæði fyrirtækisins sem innihalda teikningar af vélum. Nokkrir starfs- og stjórnarmenn Vélfags voru handteknir í aðgerðum saksóknara í dag. 21. janúar 2026 15:45 Mest lesið Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Viðskipti innlent Nýr 40/40 listi: Yngri stjórnendur hógværir og gamli leiðtogastíllinn að víkja Atvinnulíf Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Thule lækkar í prósentu Neytendur Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Samstarf Bylgjan slær enn met í hlustun Samstarf Mango opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sjá meira
Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Lögmaður stofnenda Vélfags segir að þeim sé haldið utan við fyrirætlanir stjórnarformanns þess. Þá hafi þeir ekki óskað eftir því að eignir væru fjarlægðar úr starfsstöðum félagsins. Staðhæfingar stjórnarformanns og lögmanns Vélfags í fjölmiðlum séu rangar. 30. janúar 2026 15:58
Kannast ekki við tilraunir til að stofna nýtt Vélfag Stjórnarformaður Vélfags segist ekki hafa beinar upplýsingar um að reynt hafi verið að stofna nýtt félag fyrir starfsemina eftir að fjármunir þess voru frystir. Hann hafi fjarlægt tölvur úr höfuðstöðvum fyrirtækisins að beiðni eigenda þess. Lögmaður Vélfags segir fréttir um slíkt „þvælu“. 29. janúar 2026 14:49
Unnu að því að stofna „Vélfag 2.0“ og tölvur með teikningum fjarlægðar Lykilstjórnendur hjá Vélfagi hafa unnið að því að halda starfsemi gangandi í nýju félagi með því að kaupa búnað þess ódýrt. Þá hafa þeir fjarlægt tölvur úr húsnæði fyrirtækisins sem innihalda teikningar af vélum. Nokkrir starfs- og stjórnarmenn Vélfags voru handteknir í aðgerðum saksóknara í dag. 21. janúar 2026 15:45