Nú er tíminn! Ása Valgerður Sigurðardóttir skrifar 27. febrúar 2026 21:30 Tónlist er kennd í grunnskólum. Morgunsöngur þar sem börn eru böðuð upp úr tungumálinu og auka við orðaforða sinn. Taktþjálfun sem er ekki bara skemmtileg heldur styrkir líka lestrarfærni. Samspil á trommur, tréspil, ukulele, hljómborð og fleiri hljóðfæri sem stuðlar að samvinnu, sköpun og skráð með hefðbundinni nótnaskrift eða grafískt. Tónlist og tölvur þar sem lært er að vinna með raftónlist. Virk hlustun þar sem tónlist er greind og skoðuð með tilfinningalegri skynjun eða tónlistarlegum formerkjum. Uppsetning á söngleikjum, hinu fullkomna kennsluformi, þar sem hægt er að finna öllum verkefni við hæfi. Árstíðabundin tónlist sem er sungin, myndgerð eða gefin merking með hreyfingu og dansi. Kórstarf þvert á árganga þar sem nemendur þjálfa ekki aðeins rödd sína og tjáningu gegnum tónlist, leiki og samsköpun heldur auka samhliða því félagsfærni sína og hæfileika til að vinna saman.Þessi upptalning er aðeins brotabrot af fjölbreyttu tónlistarstarfi grunnskólanna. Nýtur barnið þitt einhvers af ofangreindu eða fer það jafnvel á mis við tónlistarkennslu í grunnskóla?Tónlist er ekki kennd í öllum grunnskólum. Því miður eru vísbendingar um að tónmennt sé aðeins kennd í sem nemur öðrum hverjum grunnskóla. Skólastjórnendum er í sjálfsvald sett hvaða list og verkgreinar þau setja í forgang. Í einum grunnskóla Reykjavíkur er sem dæmi starfandi deildarstjóri tónlistar og sköpunar. Nemendur þess skóla, sem flest eru fjöltyngd, blómstra í hljóðfæranámi og söng og unnu meðal annars Skrekk árlega hæfileikakeppni grunnskólanna nú í vor. Skólinn er dæmi um hversu megnugir grunnskólar eru ef stjórnendur hafa skilning á áhrifamætti tónlistar.Á vorin planta skólastjórnendur niður laukum sínum og vænta uppskeru með næsta skólaári. Á teikniborði þeirra nú eru þær námsgreinar sem settar verða í forgang í haust og þar með hvaða kennurum verður auglýst eftir til að ná tilsettum markmiðum. Nú er því tíminn til að huga að því hvers konar skóla við viljum bjóða börnunum okkar.Foreldrum er tíðrætt um kostnað og fyrirhöfn í tengslum við tómstundir barna sinna. Það vill gleymast að innan grunnskólans fyrirfinnast list og verkgreinar sem börn fá innan lögbundins skóladags. Áherslur mótast með samtali milli skólastjórnenda, nemenda og allra þeirra sem láta sig varða nám grunnskólabarna.Biðlistar eru í tónlistarskóla og skólahljómsveitir. Hundruðir barna á Íslandi komast ekki að í tónlistarnámi á hverju ári. Til samanburðar má spyrja sig hvenær barni væri vikið frá íþróttastarfi. Börnum skyldi ekki mismunað eftir áhugasviði. Inni í grunnskólanum eru hins vegar engir biðlistar. Þar er farvegur til að skapa jöfn tækifæri í námi.Þeim sem er annt um að börn fái tónlistarkennslu hafa nú tækifæri til að láta í sér heyra, spyrja skólastjórnendur hvort tónmennt eða kór séu kennd í viðkomandi skóla. Eftirspurn hefur áhrif. Ef við höldum því ekki á lofti að tónlistarkennsla innan grunnskólans skipti máli þá getur önnur námsgrein allt eins haft forgang.Tónlist þroskar samspil hugar og handar, sálar og líkama. Tónlist hefur sameiningarafl, opnar hjörtun, jafnar taugakerfið og dreifir gleði. Skóli sem hefur tónlistarkennara á sínum snærum, að ekki sé talað um kór, býr yfir skólabrag sem einkennist af samkennd og samvinnu. Alþjóðlegar kannanir sýna fram á að þessa eiginleika skorti meðal íslenskra nemenda. Tónlistarkennsla í grunnskólum er fyrir öll börn og ef eftirspurnin er til staðar þá svara stjórnvöld kallinu. Nú er tíminn! Höfundur er formaður Tónmenntakennarafélags Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tónlistarnám Mest lesið Hvað breyttist þegar þjóðin sagði nei? Hilmar Kristinsson Skoðun Stjórnun gervigreindar og öryggi Marinó G. Njálsson Skoðun Hvað merkir íslenskt nei? Erna Bjarnadóttir Skoðun Meðaltalið borgar ekki húsaleiguna Finnbjörn A. Hermannsson Skoðun Umferð í Reykjavík og samgönguásar höfuðborgarsvæðisins Elías B Elíasson Skoðun Fimm mínútur sem geta skipt sköpum í neyð Birna G. Magnadóttir Skoðun Um helmingur lækna á Landspítala í fullu starfi Sigurður Helgi Pálmason Skoðun Hvenær verður nóg nóg? Borgar Antonsson (Boggi Tona) Skoðun Geta stofnanir sparað og bætt þjónustuna? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Hafrannsóknastofnun vissi af gloppunni en gerði ekkert Þórólfur Júlían Dagsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað breyttist þegar þjóðin sagði nei? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Stjórnun gervigreindar og öryggi Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Hafrannsóknastofnun vissi af gloppunni en gerði ekkert Þórólfur Júlían Dagsson skrifar Skoðun Reikningurinn sem svefninn getur ekki borgað Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Er þetta allt sama tóbakið? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Danski bærinn Akureyri Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Píeta samtökin í 10 ár Hildur Eir Bolladóttir skrifar Skoðun Fimm mínútur sem geta skipt sköpum í neyð Birna G. Magnadóttir skrifar Skoðun Hvenær verður nóg nóg? Borgar Antonsson (Boggi Tona) skrifar Skoðun Hvað merkir íslenskt nei? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Meðaltalið borgar ekki húsaleiguna Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Geta stofnanir sparað og bætt þjónustuna? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver ber kostnaðinn þegar landinu er lokað? Friðrik Árnason skrifar Skoðun Dýnamík hópeineltis, hóphegðun fína og ófína fólksins Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Gervigreindin og ragnarök: Raunveruleg hætta eða mesta svikamylla sögunnar? Hólmfríður Gísladóttir skrifar Skoðun Umferð í Reykjavík og samgönguásar höfuðborgarsvæðisins Elías B Elíasson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: Hvar liggja mörk sjálfræðis? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Ferðaþjónustan gerir Ísland skemmtilegra Ragnhildur Ágústsdóttir skrifar Skoðun Um helmingur lækna á Landspítala í fullu starfi Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Hvað hefur presturinn að segja yfir gröfinni? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Erum við í hættu? Ólgan kringum gervigreind Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht skrifar Skoðun Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin og ragnarök: Raunveruleg hætta eða mesta svikamylla sögunnar? Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar