Gular viðvaranir á suðvesturhorninu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 3. mars 2026 06:34 Skyggni gæti orðið slæmt á Hellisheiðinni í dag. Vísir/Vilhelm Spáð er austan og suðaustan 13-20 m/s sunnan- og vestantil í dag og fer að snjóa þar upp úr hádegi en von á rigningu eða slyddu síðdegis. Vindur verður hægari og úrkomulítið um landið norðaustanvert. Veður fer hlýnandi og hiti víða núll til átta stig síðdegis, hlýjast sunnan heiða.
Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular viðvaranir á suðvesturhluta landsins í dag og taka þær gildi klukkan níu og standa til klukkan eitt. Reikna má með skafrenningi og litlu skyggni á köflum svo sem á Hellisheiði og Þrengslum en líka á Kjalarnesi og Snæfellsnesi. Vindhviður gætu náð 30 m/s við fjöll sem er varasamt ökutækjum sem taka á sig vind. Því gæti orðið von á samgönguröskunum. Það snýst svo í sunnan og suðvestan 8-15 m/s í kvöld og nótt með éljum suðvestanlands en birtir til norðaustantil. Hiti í kringum frostmark á morgun. Spákort fyrir klukkan 14. Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Sunnan og suðvestan 5-13 m/s og él víða um land, en bjartviðri á Norður- og Austurlandi. Hiti 0 til 3 stig við sjóinn, en vægt frost inn til landsins. Á fimmtudag: Suðlæg átt, 5-13 m/s og él, en bjartviðri um landið norðaustanvert. Frost yfirleitt 0 til 5 stig. Á föstudag: Ákveðin sunnan- og suðaustanátt og snjókoma, en slydda eða rigning suðaustantil. Úrkomuminna norðanlands. Hiti kringum frostmark. Á laugardag: Hvöss sunnan- og suðaustanátt og snjókoma eða slydda, en þurrt að kalla norðan- og norðaustanlands. Hiti nærri frostmarki. Á sunnudag: Suðvestlæg átt og él, en bjart að mestu norðaustanlands. Hiti kringum frostmark. Á mánudag: Útlit fyrir vestlæga átt með éljum norðanlands, en annars úrkomulítið.
Ölfus Reykjavík Árborg Mosfellsbær Garðabær Kópavogur Borgarbyggð Akranes Hafnarfjörður Reykjanesbær Veður Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Innlent Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða Innlent „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Innlent Birtir skilaboð um uppsögn: „Kominn tími á að sannleikurinn komi í ljós“ Innlent Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Erlent „Þetta var rétt ákvörðun“ Innlent Inga spurð út í Guðmund Inga: „Þér væri nær að stíga inn í eigin skítapott“ Innlent Fleiri fréttir Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Gætu orðið hressilegar dembur inn til landsins Skýjað að mestu og hæg norðlæg eða breytileg átt Rigning og skúrir víða um land Bætir í úrkomu eftir hádegi Sjá meira