Týndu börnin Telma Sigtryggsdóttir skrifar 3. mars 2026 09:02 Hundruð barna gætu glímt við ógreindan heyrnarvanda á meðan þau bíða eftir annarri greiningu. Ísland er eitt fárra landa í Evrópu sem skimar ekki heyrn grunnskólabarna. Kerfi sem bíður og börn sem bíða Langir biðlistar barna eftir greiningu og nauðsynlegri þjónustu eru orðnir staðreynd í íslensku samfélagi. Bið eftir talmeinafræðingum, ADHD-greiningum og sálfræðiþjónustu getur tekið langan tíma og fáar lausnir virðast í sjónmáli. Ferlið að finna rétta greiningu er oft flókið og tímafrekt. Fyrst vaknar grunur um málþroskaröskun og barnið fer á biðlista. Síðar kemur í ljós að vandinn liggur annars staðar og þá hefst ný bið eftir annarri greiningu, til dæmis ADHD. Í sumum tilfellum líða mörg ár þar til rétt greining fæst og viðeigandi meðferð hefst. Það kemur jafnvel fyrir að barn er komið í framhaldsskóla, eða lengra, áður en kerfið grípur það – ef það gerist yfirhöfuð. Einn mögulegur lykill að þessum vanda hefur fengið litla athygli: heyrn barna. Gleymdi hlekkurinn: heyrn barna Ísland er eitt fárra landa í Evrópu sem skimar ekki heyrn grunnskólabarna. Þótt allir nýburar séu skimaðir fyrir heyrnarskerðingu segir það lítið um stöðuna síðar á barnsaldri. Margt getur gerst frá fæðingu til sex ára aldurs. Endurteknar eyrnabólgur, veikindi og erfðatengd vandamál geta haft veruleg áhrif á heyrn. Fyrir um tuttugu árum var hætt að skima heyrn grunnskólabarna hér á landi, með þeim rökum að það svaraði ekki kostnaði. Rannsóknir frá nágrannalöndum sýna þó að vandinn er verulegur. Í stórri rannsókn á 7–8 ára börnum í Póllandi kom í ljós að um 20% barnanna voru með einhvers konar eyrna- eða heyrnarvandamál og 1,5–2% með heyrnartap á öðru eða báðum eyrum(1). Ef sambærilegar tölur eiga við hér á landi má ætla að 70–90 börn í hverjum árgangi glími við heyrnarvandamál. Án reglubundinnar skimunar greinir Heyrnar- og talmeinastöð Íslands hins vegar aðeins um 15–20 börn í hverjum árgangi. Svipaðar niðurstöður fengust í Tyrklandi þar sem um 15 þúsund börn voru skimuð við upphaf grunnskóla. Rúm 5% féllu á skimunarprófi og af þeim reyndust 43,6% vera með heyrnartap. Það jafngildir um 2,2% af öllum skimuðum börnum (2). Ef þessi hlutföll eiga við á Íslandi eru það yfir 90 börn í hverjum árgangi. Hvar eru þessi börn? Getur verið að þau séu á biðlistum vegna málþroskaröskunar, ADHD, hegðunarvanda eða námsörðugleika – án þess að undirliggjandi heyrnarvandi hafi verið greindur? Reglubundin heyrnarskimun grunnskólabarna gæti skipt sköpum. Hún gæti ekki aðeins bætt líðan og námsárangur barna heldur einnig dregið úr óþarfa greiningum og stytt biðlista í kerfinu. Það er bæði sorglegt og alvarlegt að hugsa til þess að börn glatist í kerfinu vegna þess að ekki er skimað fyrir heyrn af kostnaðarástæðum. Heyrn er ekki síður mikilvæg en sjón þegar kemur að námi, félagsþroska og þátttöku í samfélaginu. Tækninni hefur fleygt fram á síðustu árum og skimunartæki eru orðin mun einfaldari í notkun. Ekki þarf lengur sérfræðing til að framkvæma grunnskimun. Í tilefni dags heyrnar hefur ÖBÍ ákveðið að styrkja Heyrnar- og talmeinastöð Íslands um eitt heyrnarskimunartæki og hvetur stjórnvöld eindregið til að hefja heyrnarskimun grunnskólabarna á ný. Finnum týndu börnin. Höfundur er formaður Heyrnarhjálpar og formaður heilbrigðishóps ÖBÍ. Heimildir 1.Prevalence of hearing loss among polish school-age children from rural areas -Results of hearing screening program in the sample of 67416 children; H.Skarzynski et al; International Journal of Pediatric Otorhinolaryngology, Vol. 128, Jan 202 School-age hearing screening outcomes analysis of 24258 students; D.Sahin et al: European Journal of Pediatrics, Volume 184, 29.October 2025 Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Málefni fatlaðs fólks Mest lesið Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar