Enginn á að vera einn í Reykjavík Ellen Calmon skrifar 3. mars 2026 22:00 Einmanaleiki er ein stærsta lýðheilsuáskorun samtímans. Hann snertir fólk á öllum aldri, börn, ungmenni, fullorðna og eldra fólk. Í ört vaxandi borg þar sem byggð þéttist og samfélagsform breytast verðum við að spyrja: hvernig tryggjum við að engin manneskja upplifi sig eina? Í borgarstjórn í dag þann 3. mars var samhljóða samþykkt tillaga borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna um aðgerðir gegn einmanaleika og um eflingu frístundaþjónustu og að hafin verði heildstæð endurskoðun á stefnu Reykjavíkurborgar um frístundaþjónustu. Núverandi stefna er frá 2017. Síðan þá hefur samfélagið tekið miklum breytingum og þörfin fyrir markvissar aðgerðir er augljós. Frístundaþjónusta gegn félagslegri einangrun Frístundaþjónusta er ein af grunnstoðum lýðheilsu og öflug forvörn gegn félagslegri einangrun. Samfélagshús, sundlaugar, bókasöfn og félagsmiðstöðvar eru ekki bara þjónustustofnanir heldur eru þau einnig hjarta hvers hverfis. Þar tekur fólk þátt, tengsl myndast og þar með styrkist samfélagið. Ég trúi því að ein áhrifaríkasta leiðin til að draga úr einmanaleika er að blanda kynslóðum markvisst saman. Við sjáum nú þegar jákvæð dæmi í samfélagshúsum borgarinnar þar sem opin leikskólastarfsemi er sums staðar starfrækt en hún skapar vettvang þar sem eldri borgarar njóta samveru við ungviði. Þar fá börnin hlýju og athygli og eldra fólkið finnur til sín í að sinna ungviði, kjá og spjalla og tekur virkan þátt. Styrkjum kynslóðatengsl Mikilvægt er að styrkja tengsl milli kynslóða þannig eflist samkennd og andleg heilsa þeirra sem eiga í hlut styrkist. Börn sem alast upp í fjölbreyttu tengslaneti eru líklegri til öðlast öryggi og félagsfærni. Eldra fólk sem hefur tækifæri til fjölbreytilegrar þátttöku í samfélaginu býr við betri lífsgæði. Þetta gerist ekki af sjálfu sér, heldur krefst meðvitaðrar stefnumótunar og hönnunar rýma sem hvetja til samveru. Ég vil leggja áherslu á að byggð verði upp fleiri fjölskylduvæn svæði þar sem algild hönnun er höfð sem gæðaviðmið fyrir öll svæði. Leikvellir og almenningsrými eiga að vera aðgengileg öllum, óháð aldri eða færni. Þegar barn í hjólastól, afi með göngugrind og unglingur í leik geta deilt sama rými eykst þátttaka íbúa sem svo aftur skapar samfélag og traust. Samfélagslegt verkefni Markmið tillögunnar sem samþykkt var í dag er að fela borgarstjóra að láta vinna aðgerðaáætlun gegn einmanaleika og endurskoða frístundastefnu borgarinnar með það að leiðarljósi að fjölga tækifærum til samveru og virkni. Við þurfum að auðvelda aðgengi, auka sýnileika þjónustunnar og styrkja samstarf milli sviða, því fagna ég þessari tillögu. Reykjavík á að vera borg sem býður upp á vettvang fyrir fólk til að hittast og njóta samvista. Einmanaleiki er ekki einkamál einstaklingsins heldur samfélagslegt verkefni. Með markvissri stefnumótun, blöndun kynslóða og fjölskylduvænum rýmum getum við byggt borg sem heldur betur utan um sitt fólk enda á enginn að þurfa að vera einn í Reykjavík. Höfundur er varaborgarfulltrúi og formaður borgarstjórnarflokks Samfylkingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ellen Jacqueline Calmon Samfylkingin Reykjavík Geðheilbrigði Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson Skoðun Skoðun Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Sjá meira
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar