Trump: „Mér er alveg sama hvort Íran tekur þátt í HM“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. mars 2026 09:33 Donald Trump ræðir við blaðamenn í Hvíta húsinu en hann hefur ekki miklar áhyggjur af þátttöku Írana á HM í fótbolta í sumar. Getty/Win McNamee Donald Trump forseti Bandaríkjanna segir í samtali við vefmiðilinn Politico að honum sé alveg sama hvort Íran taki þátt í heimsmeistaramótinu í fótbolta í sumar eða ekki.
Íran var fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada en er jafnframt eina þátttökuþjóðin sem á ekki fulltrúa á skipulagsfundi þátttökuþjóðanna í Atlanta í þessari viku. Það hefur leitt til aukinna vangaveltna um hvort Íran muni senda lið til úrslitakeppninnar eftir árásirnar á landið um helgina og ef svo er, hvort Bandaríkin muni hleypa írönskum leiðtogum inn í landið. „Mér er alveg sama hvort Íran tekur þátt í HM,“ sagði Trump í einkaviðtali við Politico á þriðjudag. „Íran er sigruð þjóð. Þeir eru gjörsamlega á felgunum,“ sagði Trump. Íran hefur verið dregið í riðil með Nýja-Sjálandi, Belgíu og Egyptalandi og á samkvæmt áætlun að spila leiki sína á vesturströnd Bandaríkjanna, í Los Angeles og Seattle. Ef Bandaríkin og Íran lenda bæði í öðru sæti í sínum riðli mætast þau samkvæmt leikjaskipulagi HM í 32 liða úrslitum í Arlington, Texas, þann 3. júlí. „Það sem er víst er að eftir þetta getum við ekki hlakkað til HM með von í brjósti,“ sagði Mehdi Taj, forseti íranska knattspyrnusambandsins, við íranska íþróttavefinn Varzesh3 eftir að Bandaríkin og Ísrael réðust á landið um helgina.
HM 2026 í fótbolta Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira