„Að vera í þessum íþróttum er stanslaus þjáning“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 4. mars 2026 20:34 Arnar Pétursson fagnar á hliðarlínunni í leik kvöldsins. Vísir/Hulda Margrét „Við bara leystum þetta frábærlega,“ sagði landsliðsþjálfarinn Arnar Pétursson eftir fræinn eins marks sigur íslenska kvennalandsliðsins í handbolta gegn Svartfjallalandi í undankeppni EM í kvöld. „
Mér fannst stelpurnar ótrúlega flottar og bara sterkar. Þetta er gott lið sem við erum að spila við í kvöld sem endaði í áttunda sæti á HM, tapaði fyrir noregi í átta liða úrslitum og fóru illa með okkur á því móti. En við fundum það líka þegar við vorum að horfa á þann leik aftur og gera mótið upp að við gátum gert betur og við gerðum það heldur betur í kvöld. Ég er bara stoltur af stelpunum og afskaplega kátur.“ Strax frá fyrstu mínútu leiksins var ljóst að íslenska liðið bjó yfir gríðarlegri orku í leik kvöldsins. „Já, það er alveg hárrétt. Það er búið að ganga á ýmsu og við erum búin að missa stóra og sterka pósta út úr þessu. En mér fannst við alveg frá fyrstu mínútu vera með einhverja orku. Við vourm að skapa okkur fullt af færum sem við vorum kannski ekki alveg að nýta nægilega vel í upphafi, en við héldum alltaf áfram. Við spiluðum bara virkilega vel og unnum þetta sætt.“ Íslenska liðið varð fyrir áfalli seint í leiknum þegar markvörðurinn Hafdís Renötudóttir þurfti að fara af velli eftir að hafa fengið skot í andlitið. Sara Sif Helgadóttir kom inn á í hennar stað og varði víti á ögurstundu, en eðlilega eru vondar fréttir fyrir liðið ef aðalmarkvörðurinn er frá. „Ég veit ekki hvernig staðan er á henni. Hún var bara ekki klár í að spila áfram. Sama með Katrínu Tinnu í fyrri hálfleik. Við tökum enga sénsa með þessi höfuðhögg og þurfum bara að meta stöðuna í kvöld.“ „Sara kom flott inn í þetta og tók þetta víti sem skipti sköpum og ég er með fullt af flottum stelpum í þessu liði. Við erum með ungan, skemmtilegan og viljugan hóp. Ég treysti þeim öllum til að spila, en auðvitað spilaðist þetta þannig í dag að það voru misskipt hlutverk, en þú finnur það að orkan er góð. Þær eru allar klárar og allar tilbúnar í þetta og tilbúnar að taka þátt og fagna með liðinu.“ „Svo ég klári að svara spurningunni þá neyddist ég til að taka Hafdísi út af í kvöld, en vonandi er það ekkert alvarlegt. Við verðum bara að sjá hvernig það verður á eftir því við fljúgum auðvitað bara út í nótt.“ Já, flug í nótt og annar leikur gegn Svartfellingum strax á sunnudaginn. Getur íslenska liðið hadlið uppi sama orkustigi þá og í kvöld? „Nú reynir bara svolítið á okkur. Við ætlum klárlega að njóta svolítið í kvöld og ætlum að njóta þess í fluginu að hafa gert svona vel. Að vera í þessum íþróttum er stanslaus þjáning þannig að þegar það er tilefni til að njóta þá verðum við að leyfa okkur það. Svo verðum við að ná að hvíla á morgun, núllstilla okkur og byrja að einbeita okkur að leiknum á sunnudaginn. Það reynir aðeins á okkur núna að ná þessu upp aftur, en ég treysti þessum stelpum alveg til þess. Þetta eru karakterar.“ Arnar vildi þó ekki fara of langt fram úr sér þrátt fyrir að fyrsti sigurinn í riðlinum væri kominn í hús. „Við erum enn í brekku í þessum riðli og þurfum bara að halda áfram að gera vel til að reyna að spóla upp hana áfram. Það er markmiðið. Okkur langar á annað stórmót og til að það gerist þurfum við að vinna vel og halda þessu áfram,“ sagði Arnar að lokum.
EM kvenna í handbolta 2026 Landslið kvenna í handbolta Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Sport Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Fleiri fréttir „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Sjá meira